Morgunblaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 1
„SALAN hefur verið ótrúleg. Vör- urnar fara hraðar út en þær koma inn,“ segir Jón Sveinbjörnsson hjá innkaupadeild BYKO. Góða veðrið síðustu vikur hefur haft þau áhrif að garðvörur seljast betur en nokkurn tíma fyrr og ýmsar vörutegundir hafa selst upp. „Það eru ekki lengur til garðkönnur í búðum. Þær eru búnar á landinu. Flestar gerðir garð- úðara líka. Við eigum sprautubyssur en annað hefur selst upp,“ segir Gísli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Garðheima. Kristinn Einarsson, framkvæmda- stjóri Blómavals, segir að sala á alls konar garðvörum hafi verið með mesta móti og þá sér í lagi á alls kyns tækjum og tólum sem dreifi vatni um garða. Þeir segjast merkja að fólk sé farið að nota heim- ilisgarðinn meira en áður og margir leggi mikið í garða sína. Garðvörurnar eru rifnar úr búðum Slegist er um tæki til að vökva. STOFNAÐ 1913 194. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Réttur dagsins Engjaþykkni “crème de la crème” borið fram með hnetu-, karamellu- og kornkúlu-mélange Nýtt bragð ÁTÖK UM ÁHORFIÐ HVAÐ SEM LÍÐUR ÓLÍKRI TÚLKUN ER EITT VÍST: ÚT OG SUÐUR ER VINSÆLASTI VIKUÞÁTTURINN >> 39 DEILA BRETA OG RÚSSA MAGNAST KALT STRÍÐ EITURMORÐ >> ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HÁSKERPA er það sem koma skal í sjónvarpsútsendingum. Segja sérfræðingar sjónvarpsstöðvanna tæknina mesta stökk fram á við síð- an litasjónvarp leysti hið svarthvíta af hólmi, en með henni verða rúm- lega tvöfalt fleiri punktar í myndinni sem birtist á skjánum en áður. Starfsmenn Símans áforma að dreifa slíku efni á tveimur rásum um adsl- kerfi sitt í haust en 365 miðlar stefna að því að geta sent út háskerpuefni í september. Það verður líklega enski boltinn. Ríkissjónvarpið er ekki á leið í háskerpuna á næstunni en hef- ur þó tryggt sér tíðnisvið fyrir slíka útsendingu. Hjá Skjánum segja menn málið í skoðun en að stökkið verði einungis tekið að vel athuguðu máli, enda dýr fjárfesting innifalin í því. Óæskilegt sé að senda sumt efni út í háskerpu en annað ekki. Því þurfi að endurnýja framleiðslubún- aðinn til að breytingin sé möguleg. Þá er óvíst hvort öll sjónvarpstæki sem sögð eru móttækileg fyrir há- skerpu (merkt „HD-ready“) eru það í raun. 3–4 ára gamlir flatskjáir sem hafa slíka merkingu geta sumir verið úreltir hvað þetta varðar, þar sem staðlar voru ekki fyllilega samræmd- ir á framleiðslutíma þeirra. Mesta bylting frá því litasjónvarpið komFJÖLMARGIR ferðamenn hafa farið um Landmannalaugar í sumar og hef- ur þeim fjölgað jafnt og þétt með hverri vikunni. Landmannalaugar eru einn mest sótti viðkomustaður á hálendinu og þá ekki síst meðal fjall- göngumanna, en þar hefja einmitt margir göngu um Laugaveginn, sem er vinsælasta gönguleið landsins. Þessir göngugarpar fetuðu sig niður ein- stigið á Bláhnúki, en þaðan er útsýnið stórbrotið yfir Jökulgilið og inn að laugunum þar sem er svo gott að skola af sér ferðarykið. Stöðug umferð er nú um hálendið allt en skálaverðir virðast þó sammála um að landið beri fjöldann vel enda landflæmið mikið og umgengnin góð. Skálavörður í Landmannalaugum, Sólrún Jónsdóttir, segir að flestir fari að reglum en það sé helst afmörkun tjaldsvæðanna sem litið sé hjá. „Þetta er innan friðlands svo fólk má ekki leggja bílnum og tjalda hvar sem er. Margir vilja planta sér hvar sem þeim hentar og helst hafa bílinn við hlið- ina á tjaldinu, en þetta svæði býður bara ekki upp á það.“ Þrátt fyrir allt virðist þó sambúð manns og náttúru ganga vel og hefur fjölgun ferðafólks enn ekki svipt hálendið dulúðinni sem það er sveipað í huga svo margra. | 11 Morgunblaðið/RAX Hálendið hefur sérstakt seiðmagn Enski boltinn verður líklega sendur út í háskerpu í haust VÍSINDAMENN hafa komist að þeirri óvæntu niðurstöðu að húð- krabbamein geti verið til marks um heilbrigði, að sögn JyllandsPosten. Húðkrabbamein er auðmeðhöndlað og dregur sjúklinga sjaldan til dauða. Raunar eru líkurnar á því að sjúklingar lifi sjúkdóminn af ríflega 100%, þ.e. þeir sem hafa greinst með húðkrabbamein lifa að með- altali heldur lengur en hinir. Hans Storm, yfirlæknir danskra krabba- meinssamtaka, mótmælir ekki nið- urstöðunum, en bendir engu að síð- ur á að húðkrabbamein sé heldur óskemmtilegt og skilji eftir ljót ör. Húðkrabba- mein til bóta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.