Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 25 Vanda- að er erf- s starf, tingar. mann- nu þar ar sem nið á ýlis- ægari til- n og mundi talanum, mínu i og ndrar er ar eru eggja yf- n sem nntur eft- vegna a stöðv- num r svo mikilvægt á Akureyri er að við samsömum okkur við samfélagið. Við þekkjum fólkið, hugsanagang þess og atvinnuhætti. Þetta flýtir fyrir þegar maður hittir mann- eskju í fyrsta skipti. Við Brynj- ólfur erum báðir þeirrar gerðar að telja að félagslegur bak- grunnur og uppvöxtur skipti máli. Það er gagnlegt að skilja rætur fólksins. Við náum að fylgja fólki eftir í langan tíma, og það eru mun fleiri kostir við slíka nálgun. Það sem hefur verið hindrun í t.d. Reykjavík, en ekki á Ak- ureyri, er að hverfaskipting heilsugæslu og félagsþjónustu fellur ekki saman. Hér vinnum við með stofnunum sem hafa ná- kvæmlega sama íbúaupp- tökusvæði. Með samvinnu við aðr- ar hjálparstofnanir komum við í veg fyrir tvíverknað. Við höfum samráð okkar á milli án þess að brjóta trúnað á fólki og höfum haft það á þeim rúmu 20 árum sem geðdeildin hefur starfað. Þetta er til hagsbóta fyrir fólkið sem við vinnum með.“ Eftispurn eftir þjónustu þre- faldast en íbúafjöldi svipaður Sigmundur tekur fram að land- fræðilegar ástæður liggi að nokkrum hluta að baki því að geðdeildin á Akureyri hafi sér- stöðu: „Það liggur í hlutarins eðli þegar maður er með geðlækn- ingar sem sérgrein, úti á landi og langt frá Reykjavík, að þá skap- ast eftirspurn eftir þjónustu sem þarfnast ekki innlagnar við. Meira en 80 prósent verkefnanna má leysa án innlagnar. Út frá eft- irspurninni myndaðist formleg göngudeild eins og á að vera á geðheilbrigðisstöð. Fljótlega varð eftirspurnin svo mikil að við urðum fyrst og fremst að taka inn eftir tilvís- unum frá heilsugæslulæknum, sjúkrahúslæknum, bráðaþjónust- unni á spítalanum, jafnvel prest- um, námsráðgjöfum og fé- lagsþjónustunni, þótt það sé fátíðara. Við fáum til okkar býsna margt fólk, um 700 einstaklinga á ári. Yfirleitt metum við viðkom- andi og látum heilsugæslulækni fá okkar mat og hann getur þá hald- ið áfram með meðferðina, en aðrir fara í meðferð hjá okkur. Eftirspurnin vex ár frá ári. Við héldum að fólk myndi vera tregt til að leita eftir þjónustu okkar, en yngra fólkið gerir lítinn grein- armun á því hvort það sé að koma hingað eða hitta lyflækni. Þrátt fyrir að lítil mannfjölgun hafi ver- ið á Akureyri hefur eftirspurn eftir leguplássum og göngudeild- armeðferð allavega þrefaldast á liðnum árum. Líklega vegna þess að við höfum sannað gildi okkar. Við höfum unnið traust.“ Sigmundur nefnir í þessu sam- hengi nokkrar ástæður: Nú hugsi fólk fyrr um að fá geðhjálp, vegna minni fordóma og/eða umtals frá ánægðum skjólstæðingum deild- arinnar. Einnig hafi eftirspurnin dafnað eftir því sem þjónustuframboðið eykst og verður fjölbreyttara með tilkomu nýrra starfsstétta eins og iðjuþjálfa, félagsráðgjafa og geð- hjúkrunarfræðinga. Sigmundur hefur þó á orði að hjúkrunarfræð- ingum mætti fjölga enn frekar. „Samráðsþröskuldurinn, bæði milli okkar og heilsugæslunnar, og milli okkar og annarra á spít- alanum, er lágur. Þetta ber að sama brunni: Sama fólkið á af- mörkuðu svæði hjálpast að. Allir þekkjast og bera saman bækur sínar. Þetta er öðruvísi í stærri sveitarfélögum eins og Reykjavík, en þeim væri hægt að skipta nið- ur á þennan hátt.“ ynjólfsson g ég vil að eigi að segir ekkja “ yri ngar. ru gu- dag- pít- agsleg koma gslum Ak- gt upp. in n spít- u- FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Tyrkir rífast að sjálfsögðuum hefðbundin deiluefniá borð við efnahagsmáleins og aðrar þjóðir en í þeim efnum hafa þeir ástæðu til að fagna í miðjum kosningaslagnum. Hagvöxtur hefur síðustu árin verið meiri en í flestum ríkjum heims og hagfræðingar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins líta á Tyrki sem fyrirmynd- arnemendur. Og gerðar hafa verið miklar umbætur á sumum sviðum mannréttinda þótt enn skorti þar mikið á. En Tyrkir eru enn miklu fátækari en þær Evrópuþjóðir sem verst eru staddar, þjóðfélagið vanþróað og geysilegur munur á kjörum í millj- ónaborgum eins og Ankara og Ist- anbúl og afskekktum sveitum í aust- urhlutanum. Mikið atvinnuleysi er enn í landinu, konur eru ósáttar við sinn hlut í stjórnmálum og spyrja hvort þær verði að láta sér vaxa yf- irskegg til að verða gjaldgengar. Öðru hverju berast fréttir af hryðju- verkum og blóðugum átökum við kúrdíska uppreisnarmenn. Þótt sumt gangi Tyrkjum í hag- inn þessi árin kraumar undir niðri í samfélaginu, deilur harðna stöðugt milli sanntrúaðra múslíma og ver- aldlega sinnaðra Tyrkja. Og sam- skiptin við Evrópusambandið og Bandaríkin eru flóknari og við- kvæmari en nokkru sinni. Árás á Norður-Írak? Í aðdraganda kosninganna á sunnudag hefur einna mest farið fyrir fyrir heitum umræðum um árásir kúrdískra skæruliða frá Tyrklandi sem hafa bækistöðvar í norðanverðu Írak. Her Tyrklands, sem enn á til að hóta því að grípa fram fyrir hendurnar á kjörnum stjórnmálaleiðtogum, hefur varað ráðamenn í Ankara við og sagt að stöðva verði skæruliðana. Orðrómur er um mikinn liðsafnað hersins við landamærin að Írak. Eldfimt ástand í þessum heims- hluta gæti á skömmum tíma breyst í bál sem enginn sæi fyrir endann á ef Tyrkir gripu til örþrifaráða og gerðu innrás í norðanvert Írak. Þar búa aðallega Kúrdar sem stefna margir að sjálfstæði frá Írak. Tyrkir segja þá og Bandaríkjamenn láta hjá líða að stöðva árásir tyrknesku Kúrdanna yfir landamærin og óttast einnig að fái írösku Kúrdarnir sjálf- stæði muni það ýta undir sjálfstæð- isdrauma tyrkneskra Kúrda. Líklega er það fátt sem sýnir bet- ur vandann sem Tyrkland á við að stríða þegar reynt er að laga sam- félagið að hefðum mannréttinda í Evrópusambandinu en sú kúgun sem Kúrdar búa við. Þegar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir umbúðalaust að Tyrkland sé ekki í Evrópu eru það mál af þessu tagi og stöðug afskipti tyrkneska hersins af stjórnmálum sem hann hefur í huga. Tyrkir sem hafa barist fyrir um- bótum í von um að fá inngöngu í ESB eru beiskir yfir því sem þeim finnst vera svik Evrópuþjóðanna. „ESB gaf Tyrkjum árum saman fyr- irheit. Gaf þeim von. Allir samning- arnir sem gerðir voru vísuðu fram á veginn til fullrar aðildar. En þá breyttust aðstæður. Nú dregur ESB lappirnar,“ segir stjórnmála- skýrandinn Mehmet Ali Birand á vefsíðu blaðsins Turkish Daily News. Fyrr á þessu ári ákvað Er- dogan að svara seinlæti Evrópu- sambandsins með því að frysta í bili frekari samningaviðræður við sam- bandið. Þannig reyndi hann að þagga niður í harðsnúnum þjóðern- issinnum sem höfðu sakað hann um að knékrjúpa fyrir hrokafullum Evrópuleiðtogum. Uppgangur þjóð- ernissinna í kosningabaráttunni sýnir að hann ofmat ekki hættuna frá þeim, særð þjóðernistáin hefur gagnast þeim vel. Fáir hefðu spáð því fyrir ári að Evrópumálin yrðu lítið rædd í næstu kosningum í Tyrklandi en það hefur samt gerst. Þótt stjórn- arsinnar og öflugasti flokkur stjórn- arandstæðinga séu sammála um að Tyrkland eigi að stefna að aðild að Evrópusambandinu hafa þeir ekki hampað þessu gamla metnaðarmáli. ESB nýtur ekki lengur vinsælda meðal almennings vegna neikvæðr- ar afstöðu Frakka og Þjóðverja gagnvart aðild Tyrkja. Deilurnar milli gríska og tyrkneska minnihlut- ans á Kýpur eru enn óleystar, að hluta til vegna stuðnings Tyrkja við þjóðbræður sína í tyrkneska hlutan- um. Tyrkir neita sem fyrr að við- urkenna stjórn Kýpur-Grikkja. Hvernig á að leysa flækjurnar sem koma upp ef Tyrkland fær aðild að ESB en viðurkennir ekki eitt aðild- arríkið? Bandaríkjamenn hafa áratugum lagt áherslu á náið samstarf við Tyrkland sem gegndi lykilhlutverki í kalda stríðinu. Stjórn George W. Bush forseta varð því fyrir þungu áfalli í aðdraganda innrásarinnar í Írak 2003 þegar Tyrkir neituðu að leyfa bandarískum hermönnum að fara um tyrkneskt landsvæði inn í Norður-Írak. Ef Tyrkir réðust inn í Írak yrði áratuga samvinnu við Bandaríkjamenn stefnt í voða og Tyrkir gætu orðið að heyja samtím- is kalt stríð við stórveldið í vestri og Evrópusambandið. Slæður og léttklæddar konur En sérfræðingar um tyrknesk stjórnmál segja að mestu skipti í kosningunum baráttan um sjálft eðli og inntak hins 83 ára gamla lýðveld- is, slagurinn milli þeirra sem vilja halda fast í arf stofnanda lýðveld- isins, Mustafa Kemals og hinna sem vilja auka veg trúar og fornra hefða. Kemal skar að mestu á tengsl milli ríkisvalds og trúar og gerbreytti samfélaginu, tók upp latínuletur og vestrænt tímatal, konur fengu kosn- ingarétt. En léttklæddar konur í Izmir og annars staðar í vestan- verðu landinu sjá nú æ fleiri konur með rætur á hásléttum Anatólíu hylja hár sitt með hefðbundnum slæðum. Slæðuburður er bannaður í opinberum byggingum þar sem hann er talinn stríða gegn aðskilnaði ríkis og trúar. En vestrænt sinnað fólk sér að eiginkonur bæði for- sætisráðherrans og utanríkis- ráðherrans bera slæður og óttast að um sé að ræða teikn um afturhvarf til gamalla lífshátta. Það er kaldhæðnislegt að verald- lega þenkjandi þjóðernissinnar skuli vera hörðustu andstæðingar ESB-aðildarinnar en stjórn sanntrúaðra múslímar beita sér ákaft fyrir aðildarviðræðum. Trúuð- um múslímum hefur aukist ásmegin síðustu árin og flokkur þeirra, AKP, er við stjórnvölinn. Honum er nú spáð verulegri fylgisaukningu. Re- cep Tayyip Erdogan forsætisráð- herra nýtur álits fyrir dugnað og heiðarleika og honum tókst að draga úr ótta margra við að AKP væri úlf- ur í sauðargæru, þ. e. samtök ísl- amskra harðlínumanna sem reyndu að breiða yfir raunverulega stefnu sína með hjali um lýðræði og áhuga á aðild að ESB. En eins og tímaritið The Economist hefur bent á eru fá merki um að AKP sé annað en lýð- ræðislegur flokkur hófsamra en trú- aðra múslíma. Þegar kosið var síðast til þings 2002 hreppti AKP aðeins um 34% atkvæða, kosningareglurnar tryggðu honum hins vegar nær tvo þriðju þingsætanna 550. Svo gæti farið að Erdogan ynni orrustuna en tapaði stríðinu. AKP gæti bætt verulega við sig í atkvæðum á sunnudag en misst samt þingmeiri- hlutann ef tveir eða fleiri stjórnar- andstöðuflokkar fá nægilegt fylgi til að komast á þing. Úlfar í sauðargæru? 01#    #2    ! & #     &   34 5 # 4    !   5  5 56 7 4  &  5 #  &    &5 #  5  &  5 #  5 #   5& &  28 !  6 012)&+212)34  564&*32-1 A J++8K! .7+.6"! . 6.'+# !K "(%!& '++$0()"! 8K! !C6$ I 6!J6"!".56+ $K%"C+ C6$ & A !+ + 0 6 +C  ! 9!$ ". 0  C+.'!!% !C6!$ & *J!6$0%!J6& A++' .%"!74 0 %!6$%0 + 6 %$! 6EE& -(%6!+9!' '!! 48K6 ! $9008"I++6 $ ! !76 C51!' +6, !87'L! C'". 'J!"+6".4!& 0 11 $ 9! : +- M !J!76$ !!I + 6 03=N ;& < = 1# : )> M* 6 0B-=N ;& & = ?& : +> M* 6 0-=ON       8K!7 %+ ''!,8K6%!. 8K! .7+%+ ''"!4!%6 7 %9+07+ C"+6%7 %"++!L'8(! 74 0 @AB0 CD .**. ++* 4 0J P/+J5 04!K" !%+ ''"! M3=N 9!'! !"%+ !.L+C.! + 6 ! !+ + 0+@6!J6!C' .++6+ 6  +4 6 @!C'8K!  8 "! @86 '!%C".,K% !+6& -)- *@6 + %+ ''"! MB-=N/EF Q$76! > A !+ + 0 6"!I 4!"! 9 "!+ 6 0 8K! ! (6"& R !C'!76$ !! 9!'+ IGG5G<& " 6$7'K+ 7.  !C'8" ".  ! .K%++ 1!' % "  !C'88K! !& 9B0G 0'HA(7BB9I0DA  !   Reuters Fortölur Zeynep Dagi (t.v.), einn af frambjóðendum stjórnarflokksins AKP, ræðir við konu í höfuðborginni Ank- ara. Hlutfall kvenna á tyrkneska þinginu er með því lægsta sem þekkist í lýðræðisríkjum og fátt bendir til að breyting verði þar á í þingkosningunum á sunnudag. Mustafa Kemal tryggði konum kosningarétt árið 1943. Eig- inkona hans í tveggja ára, stormasömu hjónabandi, Latifa Ussaki, barðist af einurð fyrir rétti kynsystra sinna. Tyrkir ganga að kjör- borðinu á sunnudag og kjósa nýtt þing. Eitt helsta efni kosninga- baráttunnar eru átökin milli veraldlega sinn- aðra Tyrkja, sem vilja halda fast í aðskilnað ríkis og íslams, og trú- aðra múslíma. Í HNOTSKURN »Skilyrði þess að tyrkneskurflokkur fái þingsæti er að hann fái minnst 10% fylgi, síðast voru það aðeins AKP og Lýð- veldisflokkurinn, CHP, sem náðu því takmarki og skiptu því á milli sín þingsætunum. »Aðstæður voru flokki Erdog-ans hagstæðar þegar hann sigraði 2002, margir kjósendur voru búnir að fá sig fullsadda af spillingu og hagsmunapoti hinna stóru flokkanna. »Könnun sem gerð var í vik-unni gefur til kynna að AKP bæti verulega við sig en þriðji flokkurinn, Þjóðernisfylkingin (MHP), muni fá 14,1%. Liðsmenn MHP eru harðir andstæðingar aðildar að ESB. »Allmargir Kúrdar bjóða signú fram sem óháðir þing- menn og líklegt að sumir þeirra nái kjöri. Ætlun þeirra er að snúa bökum saman í þingflokki að loknum kosningum og reyna að bæta hag þjóðarbrotsins. »Talið er að af 73 milljónumíbúa í Tyrklandi séu 12–14 milljónir Kúrdar. Þeim er í reynd bannað að nota eigið tungumál. Tyrkir segja þessar hömlur nauðsynlegar til að hindra að ríkið klofni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.