Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 1. maí 2009 Íslensk klassík Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 ÆVINTÝRIÐ 1939 kallast sýning sem opnuð verður í dag á Skriðuklaustri í tilefni af því að sjötíu ár eru liðin frá byggingu hins einstæða húss Gunnars Gunnarssonar skálds. Þar verður í máli og myndum sagt frá byggingunni en hátt í hundrað manns unnu sex daga vikunnar frá vori og fram að jólum við að reisa stórhýsið. Sýningin stendur fram á haust. „Réttinn hef ég borið fram fyrir marga gesti við ýmis tækifæri og hann veldur aldrei vonbrigð-um,“ segir Guðrún Edda Bents-dóttir verkefnastjóri. „Rétturinn er úr einni af fyrstu matreiðslu-bókunum sem ég eignaðist sem ber yfirskriftina Great Chin-ese Cooking – From Fire Pot to Food Processor.“ Uppskriftirnar þar eru einfaldaðar og lagaðar að vestrænum matreiðsluaðferð-um. „Rétturinn mun uppruna-lega vera frá norður-Kína,“ segir hún. Guðrún Edda rakst á bókina á námsárunum í New York og hefur hún verið mikið notuð. Guðrún segir réttinn ódýran enda hafi svínakjöt verið á góðu verði að undanförnu. Hún bend-ir á að tilvalið sé að undirbúa sig deginum áður þar sem réttur-inn sé kannski ekki Réttur úr fyrstu bókinni Guðrún Edda Bentsdóttir, verkefnastjóri á grunnskólaskrifstofu hjá Menntasviði Reykjavíkur, er matgæðingur mikill og á ekki í vandræðum með að gefa uppskrift að rétti sem klikkar ekki. Guðrún Edda segir réttinn tilvalinn á veisluborðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÍNVERSKAR KJÖTBOLLUR Í súrsætri sósu (um 30 stykki) FYRIR 3-41-1,5 sm sneið fersk engiferrót 1/2 stk. stór laukur eða 1 stk. lítill 8 stk. vatnahnotur (water chestnuts - frystið afgang-inn úr dósinni og notið síðar) 1 msk. sojasósa (Kikk-oman) 1 msk. fremur þurrt sérrý1 msk. maízenamjöl1 egg 2 tsk. sesamolía1 geiri hvítlaukur450 g svínahakk1 stk. paprika (1/2 rauð og 1/2 græn)1/2 laukur 1 2 Sósa 2 dl vatn eða ananassafi úr dósinni og vatn1/2 dl sykur (eða eftir smekk) 2 msk. vínedik2 msk. tómatsósa1 msk. sojasósa (Kikk-oman) Öllu ofangreindu efni í sósuna blandað saman í skál. 4 tsk. maízenamjöl í 2 msk. vatni (í sér skál) Aðferð: 1. Skerið engiferrót og lauk í bita Setjið steikið bollur. Má gera daginn áður og geyma í ísskáp eða frysta. 2. Hellið olíu af pönnu og þrífið með vatni og þurrkið. Skerið papriku,lauk og gulrætur. Hitið olíu yfir meðalhita og steikið engiferrót í 1 mín og bætið grænmeti út í og steikið í um 2 mín. Takið engiferrót frá og hendið. Hægt að gera tólf tímum fyrir fram. 3. Bætið því iðr o t Næg ókeypis bílastæði við Perluna Ódýrt og gott! Súpubar 620 kr. Salatbar 990 kr.Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og tertur. Nýr A la Carte og 4ra rétta seðillNánari upplýsingar á www perlan i 36,95% 72,75% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Allt sem þú þarft... Fréttablaðið er með 97% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18-49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2008 - janúar 2009. FÖSTUDAGUR 1. maí 2009 — 103. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG FÓLK Gengið hefur verið frá samningum við Ágústu Evu Erlendsdóttur um að hún leiki Bjarnfreði, móður Georgs Bjarn- freðarsonar, í kvikmyndinni Bjarnfreðarson sem byggir á sjónvarpsþáttunum þremur um Ólaf Ragnar, Daníel og áður- nefndan Georg. Leikstjórinn Ragnar Bragason segir Ágústu hafa verið þá einu sem komið hafi til greina. Meðal annarra leikara sem munu birtast í kvikmyndinni eru Örn Árnason, Helga Braga Jónsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson. - fgg / sjá síðu 34 Ágústa Eva Erlendsdóttir: Leikur mömmu Georgs Bjarn- freðarsonar Fær verðugan andstæðing Jóhanna Guðrún mætir Ditu Von Teese ef hún kemst alla leið. FÓLK 34 AUDDI OG SVEPPI Rafbyssan gerð upptæk Vinur Audda ekki par sáttur FÓLK 34 GUÐRÚN EDDA BENTSDÓTTIR Eldar kínverskar kjöt- bollur með súrsætri sósu • matur • helgin Í MIÐJU BLAÐSINS 4 12 12 11 9 RIGNING Í dag verða austan og norðaustan 5-13 m/s. Víða rigning, síst þó fyrir norðan. Hiti 4-13 stig, svalast á Vestfjörðum en mildast til landsins. VEÐUR 4 KEPPT Á KAJÖKUM Haraldur Njálsson fór með sigur af hólmi í Elliðaárródeóinu í kajaksiglingum, sem fram fór í leikholunni við rafstöðvarhúsið í Elliðaárdal í gær. Keppt verður um Reykjavíkurbikarinn á laugardaginn á Geldinganesi, þar sem sumarhátíð Kayakklúbbsins fer fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EFNAHAGSMÁL Undirbúningur að málsókn lántakenda á hendur gömlu bönkunum gengur eftir áætlun og á fjórða hundrað hafa nú skráð sig á heimasíðu Lög- manna Laugardal, segir Björn Þorri Viktorsson lög- maður. Hann segist mjög bjartsýnn á að málaferlin gangi upp. „Við teljum að fjölmargt leiði til þess að ekki sé hægt að líta svo á að þessir lánasamningar séu að öllu leyti skuldbindandi fyrir lántakendur í dag. Þá er öll áhættan af heilu efnahags- og gengishruni lögð á lántakendur, eins og það komi ekki lánveitandanum við,“ segir hann. Fólk sem hafi samið um frystingu lána eftir hrunið kunni að hafa lakari rétt til málaferla. Því bendi hann fólki á að setja fyrirvara við allar skuldbreytingar. Hér á landi skorti lög um hópmálsóknir og því ætli stofa Björns Þorra að setja skuldarana í hópa eftir samningum þeirra og setja svo upp prófmál fyrir hvern og einn hóp, sem gagnist fólki með samsvar- andi samninga. - kóþ Málsókn í þágu lántakenda miðar vel að sögn lögmanns: Mörg hundruð stefna bönkum HEILBRIGÐISMÁL Aðsókn í sjúkra- sjóð tveggja stærstu stéttarfélag- anna, VR og Eflingar, hefur auk- ist um helming eða rúmlega það í kreppunni. Sérstaklega hefur aðsóknin aukist vegna geðrask- ana og stoðkerfisvandamála. Guðrún Óladóttir, sviðsstjóri hjá Eflingu, segir að aðsóknin hafi aukist um rúmlega helming strax eftir efnahagshrunið í haust. Hún sé aðeins minni nú en það sé ekki vegna minni veikinda heldur sé fólk búið með réttindi sín. Aðsóknin í sjúkrasjóð VR hefur líka aukist um helming. VR greiddi tæpar 59 milljónir í mars á þessu ári en rúmar 39 milljónir króna í sjúkradagpeninga í mars í fyrra. „Þetta er svo gífurleg aukning að það er hugsanlegt að við verð- um að skerða réttindi eða setja þak á greiðslur,“ segir Stefanía Magnús- dóttir, formaður framkvæmda- stjórnar VR. „Fólk fellur saman í þessu efnahagsástandi,“ segir hún og bendir á að atvinnuleysi og fjár- hagsáhyggjur séu það versta sem fólk geti orðið fyrir, næst á eftir ástvinamissi og skilnaði. „Þetta er ekkert óeðlilegt. Fólk missir fót- anna gjörsamlega.“ Haukur Sigurðsson sálfræðing- ur segir að auknar greiðslur úr sjúkrasjóðum komi ekki á óvart. Í starfi sínu upplifi hann mikla aukningu á vandamálum sem teng- ist ástandinu; þunglyndi og kvíða. „Þessi vandamál hafa aukist hjá fullorðna fólkinu. Það hefur bein áhrif á heimilislífið og börn- in. Óeðlilega stór hluti þessara barna þiggur örorkubætur eða dagpeninga eftir tíu til fimmtán ár vegna geðrænna vandamála,“ segir hann. Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélagsins, segir að geð- og stoðkerfisvandamál aukist í kreppu og örorka í kjölfar atvinnu- leysis. Þó að ekki hafi verið mikið sótt á neyðarmóttökuna finni lækn- ar úti í bæ fyrir vaxandi ásókn. - ghs Stóraukin ásókn í sjúkrasjóði í kreppu Aukin aðsókn er í sjúkrasjóði stærstu stéttarfélaga. „Fólk fellur saman í þessu efnahagsástandi,“ segir starfsmaður VR. Hugsanlega þarf að skerða réttindi. Opið hús og kökuboð Flugfélag Íslands á Akureyri fagnar tíu ára afmæli. TÍMAMÓT 18 STJÓRNMÁL Öruggt er að næsta ríkisstjórn verður tveggja flokka stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hún verður þó ekki mynduð í dag, heldur á næstu dögum – líklega í lok næstu viku. Eftir er að útfæra það að fullu hvernig Evrópumálin verða leyst, og sögðu forystumenn flokkanna í gær að líklega þyrftu báðir flokkar að gefa eftir í mála- flokknum. Leiðtogar flokkanna hitt- ust á formlegum fundi í Nor- ræna húsinu í gær og ræddu fyrst og fremst ríkisfjármál og atvinnumál. Hlé verður gert á formlegum viðræðum í dag. - sh Evrópumálin enn óútkljáð: Vinstristjórn í næstu viku BESTUR Í DÝFUM Pálmi Rafn Steindórs- son úr Foldaskóla setti Íslandsmet í dýfum. Hann tók heilar 67 dýfur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÍÞRÓTTIR Lið Heiðarskóla í Reykja- nesbæ fór með sigur af hólmi í úrslitakeppni Skólahreystis 2009 sem fram fór í Laugardalshöll- inni í gær. Fjögur Íslandsmet voru slegin á mótinu, og félli tvö þeirra í skaut liðs Heiðarskóla. Sigur Heiðarskóla var nokkuð öruggur, því skólinn hlaut 55 stig í keppninni. Foldaskóli varð í öðru sæti með 46 stig og Háteigs- skóli í því þriðja með 45,5 stig. Mjólkursamsalan gaf verðlaun- in, sem voru 250.000 krónur sem renna til nemendafélags Heiðar- skóla, fjallahjól og ýmsir smærri vinningar. - kg Skólahreysti 2009: Lið Heiðarskóla hraustast allra STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Vinsælasti fata- hönnuður landsins FÖSTUDAGUR FYLGIR Í DAG Á leið til Bretlands? Gunnleifur Gunn- leifsson hefur fengið fyrirspurnir frá breskum liðum. ÍÞRÓTTIR 30 Lið að Neytendastofu „Talsverðar leifar af viðskipta- snilld finnast enn á Íslandi þrátt fyrir hrunið,“ skrifar Sighvatur Björgvinsson. UMRÆÐAN 14

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.