Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1944, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1944, Blaðsíða 39
að taka upp vinnu, sem meðlimir hins hafa lagt niður vegna kjaradeilu, né stuðla að því að hún verði tekin upp, enda styðji samböndin hvort annað eftir föngum í hagsmunamálum sjómanna, og stjórnir þeirra láti hvor aðra fylgjast með undir- búningi allra meiri háttar kjara- og skipulagsmála sjómannastéttarinnar. Enn fremur verði að því unn- ið, að hin einstöku félög beggja sambandanna hafi sem bezta samvinnu sín á milli. 6. gr. Stjórnir sambandanna ákveða hér með, að vinna framvegis sameiginlega að samræmingu launakjara sjómanna almennt og þá einkum að því, að komiö verði á ákveðnu og samræmdu hlutfalli milli launa- kjara yfir- og undirmanna á sjó um land allt. 7. gr. 1 samræmi við það, sem um getur í 5. gr., skulu Alþýðusambandið og Farmannasambandið (A. S. í. og F. F. S. í.) leysa með samkomulagi og samstarfi ágreiningsatriði þau, sem risið hafa út af töxtum þeim, er ýms félög Alþýðusambandsins auglýstu í desember s. 1. fyrir skipstjórnar- og vélamenn og samningi þeim, er fulltrúar skipstjóra- og stýri- mannafélagsins „Grótta“ gerðu við útgerðarmenn 20. jan. s. 1. 8. gr. Samningur þessi gildir frá og með undirskrift hans og er uppsegjanlegur með minnst 6 mánaða fyrirvara, nema þing annars sambandsins taki á- kvöröun um uppsögnina, annars framlengist hann frá ári til árs og miðast ávalt við áramót, einnig þótt sambandsþing segi honum upp. Reykjavík, 3. febr. 1944. F. h. Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Ásg. Sigurðsson. Halldór Jónsson. F. h. Alþýðusambands fslands. Jón Sigurðsson. Jón Rafnsson. Samningur milli Stýrimannafélags Islands og F. F. S. 1. Stýrimannafélag íslands og Farmanna- og fiski- mannasamband íslands gera með sér svohljóðandi samning: 1. Stýrimannafélag íslands gerist aðili að útgáfu Sjómannablaðsins Víkingur með sömu réttindum og skyldum viðvikjandi blaðinu og félög innan F.F.S.Í. hafa. 2. Blaðið „Sjómaðurinn", sem Stýrimannafélag ís- lands hefir gefið út á undanförnum árum, kemur út undir því nafni sem jólablað Sjómannablaðsins Víkings, en Stýrimannafélag íslands er réttur eig- andi að nafninu, sem áður. 3. Samningur þessi gengur í gildi nú þegar. Reykjavík, 8. maí 1944. F. h. Farmanna- og fiskimannasambands íslands Ásgeir Sigurðsson. Halldór Jónsson. F. h. Stýrimannafélags fslands Pétur Sigurðsson Grímur Þorkelsson. Sigurjón Jónsson skipstjóri. F. 8. jan. 1889.- D. 15. júlí 1943. Sægarpi syngja vil óðinn, söknuður brjóstiS þó fylli. Helfregn, svo þögul varö þjóöin, þrumaói landshorna milli. Sægarpur genginn til moldar, geymir nú fullhugann kista, Hetjan er fallin til foldar, fósturjörS hlaust þó aS gista. Sægarpur sigldir um höfin, sókndjarfur eins og hinn frægi. Brostir þá teigSust út tröfin og tafliS var byrjaS viS Ægi. Sægarpur fús til aS fórna fyrstum þér, beint út í voSa. Leikandi sterkur aS stjórna í stormi á ólgandi boSa. Sægarpur byrSina barstu blíSur og hraustur í lundu. MaSur i mannraunum varstu mikill á hættunnar stundu. Sægarpur, síst léstu falla særandi orSin til manna. Ljúfmennskan einkennir alla yfirmenn góSa og sanna. Sægarpur björgina aS búi, berandi orkunnar taki. Ástvinur tryggSar hinn trúi, traustasti faSir og maki. Sægarpur, konan þín kæra, kveSur þig, dóttir og synir. Skipshöfnin, félagar, færa framliSnum þakkir, og vinir. Sægarpur Sigurjón góSur, ég sendi þér kveSjuna mína. LamaSur, hryggur og hljóSur heiSra vil minningu þína. Sægarpur sigldu nú feginn um sólhöfin ódáinslanda. Áfram þar vísar þér veginn vitinn, sem ætíS mun standa. Gamall félagi. VÍKINGUR 151

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.