Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 1
EFIMISYFIRLIT SJÓMAN N AB LAÐIÐ Jón Eiríkssion, skipstjóri: Farþegaskip nútíðar og far- þegaskip landnámstíðar. • Sjómælingar: Rætt við Gunnar Bergsteins- son. • Indland: Þórir Hinriksson, skipstjóri segir frá. Jón Steingrímsson, skipstjóri: Kaupskipin skila arði. Dr. Sigfús Schopka: Fiskispár. Knut Salomonsen: Frá skyrbjúg til offitu. Jón Öm Ingvarsson, vélstjóri: Svartolíubrennsla í meðalhrað- gengum dieselvélum. • Félagsmálaopnan: Selandia: Fyrsta kaupskipið. Guðfinnur Þorbjömsson: Frá Ströndum 1951. Guðjón Ólafsson, Hofi: Jólanætur á Halamiðum fyrir 50 ámm. Frívaktin o. m. fl. SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: F.F.S.l. Ritstjórar: Guðm. Jensson (áb.) og Jónas Guðmundsson. Ritnefnd: Guðm. Kjæmested, Guðm. Ibsen, Daníel B. Guð- Guðmundsson. Varamenn: Ólafur Vignir Sigurðsson, Ásgrímur Björnsson, Jón Wium. Ritstjóm og afgreiðsla er að Bámgötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: Sjómannablaðið Víkingur, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 15653. Árgangurinn kostar kr. 1500. Prentað í Isafoldarprentsmiðju hf. VÍKINGUR VÍKINGUR 37. ÁRGANGUR — 2. TÖLUBLAÐ 1975 Jón Eiríksson, skipstjóri: Farþegaskip nutíðar og farþegaskip landnámstíðar í Tímanum hinn 26. sept. 1974 er grein eftir dr. Jóhann M. Kristjánsson, þar sem hann kemur fram með þá hugmynd, að fslendingar og Færeyingar og jafnvel fleiri Norðurlanda- þjóðir kaupi í sameiningu farþegaskip, sem sigli fyrst og fremst á norðurslóðum á sumrum en á fjarlægari höfum á vetrum. Eg ætla ekki að taka hér afstöðu til þessa máls, en ég get vel skilið þá menn, sem saknað hafa hins glæsilega skips Gullfossar, þegar það var selt úr landi án þess að annað kæmi í staðinn og sú hugsun er ásækin, að með þessu hafi eigendur Gullfossar, Eimskipafélag fslands, vikið nokkuð af þeirri leið sem því var upphaflega ætlað að þræða — að flytja jafnt far- þega sem vörur milli íslands og annarra landa og milli hafna hér innanlands. — En tímarnir breytast og það sem átti við fyrir 60 árum, er ekki allt tímabært nú á dögum. Eigi að síð- ur sækir sú kend stöðugt á, að íslenska þjóðin hafi tapað nokkru af reisn sinni með því að eiga ekki millilandafarþega- skip. Ekki má skilja orð mín svo, að ég sé að lá Eimskipafélagi íslands þessar aðgerðir. Gullfoss var rekinn með tapi síðustu árin og enginn sanngjarn maður gat ætlast til að félagið héldi þeim taprekstri áfram án aðstoðar annarsstaðar frá. Ég full- yrði að ríkissjóður ver hærri upphæðum en hér þyrfti með til margra hluta óþarfari en til þess sem hér um ræðir. En það var alls ekki þetta sem ég hafði í huga þegar ég greip pennan. Ég hef villst út af leið (kósinn og hæðin eitt- hvað í ólagi hjá mér) og verð nú að reyna að komast á rétta stefnu aftur. Það er þá fyrst, að hinn djúpi skilningur dr. Jóhann á skipum og eiginleikum þeirra og á samband- inu milli skipsins og stjórnanda þess sem hreif mig. Mér finnst það ekki sæmandi fyrir okkur sjómenn, að láta orð hans sem vind um eyru þjóta, þegja þau í hel. Það er næsta ótrúlegt að maður, sem aldrei hefur um stjórnvöl haldið, mér vitanlega, 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.