Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 46
30 1. ágúst 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 2-2. 2 Framsóknarflokksins. 3 Þorsteinn Már Baldvinsson. PERSÓNAN LÁRÉTT 2. teikniblek, 6. líka, 8. að, 9. kvk nafn, 11. bókstafur, 12. galsi, 14. klingja glösum, 16. hola, 17. fúadý, 18. pípa, 20. þys, 21. fullnægja. LÓÐRÉTT 1. nef, 3. innan, 4. eyja í Miðjarðarhafi, 5. slagbrandur, 7. fugl, 10. þrá, 13. þukl, 15. gegna, 16. hey- skaparamboð, 19. holskrúfa. LAUSN LÁRÉTT: 2. túss, 6. og, 8. til, 9. gró, 11. ká, 12. gáski, 14. skála, 16. op, 17. fen, 18. rör, 20. ys, 21. fróa. LÓÐRÉTT: 1. gogg, 3. út, 4. sikiley, 5. slá, 7. gráspör, 10. ósk, 13. káf, 15. ansa, 16. orf, 19. ró. „Já, ég er einlægur aðdáandi Skriðjökla – allt frá því að þeir voru að byrja. Þeir eru gamlir í hettunni. Ég heyrði fyrst í þeim í Sjallanum – á heimavelli þeirra,“ segir Gunnar I. Birgisson, fyrr- verandi bæjarstjóri í Kópavogi. Fyrir dyrum stendur verslunar- mannahelgi í Kópavogi. Á nýjum skemmtistað sem heitir Spot. Þar koma fram hljómsveitirnar Hunang, Í svörtum fötum, dúett- inn Þú og ég – og sjálfir Skrið- jöklarnir koma saman af þessu tilefni. Gunnar fagnar því og segir aðspurður gott að djamma í Kópavogi. „Já, það er allt gott í Kópavogi. Þar er gott að búa og allt saman. En þetta eru frískir og hressir drengir sem kunna að halda uppi stuðinu,“ segir Gunn- ar og er helst á að hestalag þeirra Jökla sé þeirra besta framlag til íslenskrar dægurlagatónlist- ar. Og honum lýst vel á hátíðina. „Þetta eru alvöru bönd sem verða þarna, sé ég. Ég ætla í sumarbú- staðinn yfir helgina en það getur þó vel verið að maður kíki. Ann- ars er maður orðinn hálf latur við að fara þetta.“ Skriðjöklarnir eru annálað- ir landsbyggðarjaxlar frá Akur- eyri en nú kveður við annan tón. „Fólk getur sparað sér dýrmæt- an tíma, peninga og fyrirhöfn við að leggjast í löng, óþægileg ferða- lög,“ segir Raggi „Sót“ Gunnars- son, forsöngvari Skriðjöklanna. - jbg Það er gott að djamma í Kópavogi GUNNAR OG JÖKLARNIR Akureyringarnir Karl Örvarsson í Hunangi, Jöklarnir Raggi og Jakob ásamt þeirra helsta aðdáanda, Gunnari I. Birgissyni, sem fagnar því að Skriðjöklar séu nú að koma saman á nýjan leik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Svona bók hefur vantað og er ætluð mönnum á aldrinum 15 til 35 ára. Fátt er sorglegra en menn sem ekki kunna sig og verða sér til skammar,“ segir líkamsræktar- frömuðurinn og rithöfundurinn Egill Einarsson sem flestir þekkja betur sem Gillz eða Þykka eins og hann kallar sig nú. Jónas Sigurgeirsson útgefandi er með ýmsar bækur um hrunið á teikniborðinu – en áhugasvið hans er breiðara. Hann ætlar að gefa út bók fyrir næstu jól eftir Þykka sem þegar hefur haslað sér völl á rithöfundasviðinu með bókinni „Biblía fallega fólksins“ sem kom út árið 2006 – alhliða bók fyrir alvöru karlmenn þar sem lagðar voru línurnar fyrir metrómann- inn. Þykki er að verða gjaldgeng- ur í rithöfundasambandið. Í nýju bókinni fer Þykki yfir það hvern- ig menn eiga að haga sér og bregð- ast við ýmsum aðstæðum í köfl- um sem heita til dæmis: „Hvernig áttu að haga þér þegar þú færð nudd“, „Hvað gerir þú ef að pabbi þinn byrjar að reyna við kærust- una þína“, „Hvernig rakarðu á þér punginn án þess að skera þig“, „Hvenær á að gefa þjórfé“, „Hvern- ig áttu að haga þér þegar þú hittir frægan einstakling“, „Hvað áttu að gera ef þú ert að verða sköllóttur“ og svo framvegis. „Tilgangurinn er að efla kynbræður mína í lífs- leikni, auka lífsgleði þeirra og gera þá að heimsborgurum. Allt frá því að ég gaf út Biblíu fallega fólksins hef ég verið með þessa bók í huga. Þetta er bók sem ég tel að eigi vera til á hverju menningarheimili.“ Þykki bendir á að heimur manna- siðanna geti orðið flókinn. Það sem í sumum löndum þykir dónaskapur er kurteisi í öðrum löndum. „Gott dæmi er ef þú mætir of seint í bíó. Hvort áttu að snúa pungnum eða rassinum í liðið þegar þú ská- skýtur þér á milli sætaraðanna? Í Bandaríkjunum er talin kurteisi að snúa pungnum að fólkinu - á meðan í Evrópu er því öfugt farið.“ Og Þykki segir þetta ekki „hvernig á að leggja á borð“ bók heldur miklu frekar: „Hvernig á að leggja kerl- ingar“ bók. Þá á ég auðvitað við að kurteisir menn sem kunna sig – þeir laða að sér konurnar.“ Þykka finnst hrikalega gaman að koma heim, skella trance tón- list í græjurnar og skrifa eftir erf- iðan dag í ræktinni. Og því verður þessi bók bara númer 2 af mörg- um. Víst er að menningarvitar sjá fátt sammerkt með líkamsræktar- mönnum og rithöfundum. Þykki segir þetta algenga glámskyggni. „Flestir menningarvitar eru hálf- vitar og með kleinuhringjalagað miðsvæði. Sjáið bara Egil Helga- son. En þetta eru risaeðlur sem eru að deyja út.“ Þykki hefur dálæti á ýmsum rithöfundum, svo sem Lax- ness, sem hann hefur lesið allan og eru bækurnar Salka Valka, Sjálf- stætt fólk, Íslandsklukkan og Paradísarheimt í sérstöku uppá- haldi. „Mér hefur alltaf líkað vel við Laxness. Og barnabarnið hans, rapphlunkurinn Dóri DNA, er líka persónulegur félagi minn.“ jakob@frettabladid.is EGILL EINARSSON: FÁTT SORGLEGRA EN MENN SEM EKKI KUNNA SIG Ný mannasiðabók eftir Gillz SÆKIR SÉR INNBLÁSTUR Á GLJÚFRASTEINI Vitjar heimilis kollega síns að Gljúfrasteini en með nýrri bók vill Þykki gera íslenska kynbræður sína að heimsborgurum - nokkuð sem Laxness leitaðist svo mjög við að gera með skrifum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kvikmynd leikstjórans Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, verð- ur heimsfrumsýnd á Toronto-kvik- myndahátíðinni hinn 11. september næstkomandi. Myndin verður sýnd í flokki sem nefnist Special Present- ation þar sem hún keppir til verð- launa. Margir þekktir leikstjórar keppa í sama flokki og má þar nefna menn á borð við Coen-bræður, Pedró Almodóvar og Werner Herzog. Kvikmynd Dags Kára fjallar í stuttu máli um hjartveikan bareig- anda sem ákveður að taka ungan, heimilislausan mann undir sinn verndarvæng með það að markmiði að hann taki við rekstri barsins. Með aðalhlutverkin fara þau Brian Cox, Paul Dano og Isild Le Besco. „Ég er mjög spenntur og hlakka mikið til að frumsýna loksins mynd- ina, það er búið að taka sex ár að undirbúa hana og framleiða. Ég hef lítið verið að fókusera á þessi verð- laun heldur skiptir mestu máli að kvikmyndin nái að fanga athygli dreifiaðila, en það væri frábært að standa uppi sem sigurvegari líka,“ segir Dagur Kári. Aðspurður segist hann vona að aðalleikararnir verði viðstaddir frumsýninguna en hann viti enn ekki hvort þeir verði upp- teknir í öðrum verkefnum á þeim tíma. The Good Heart verður vænt- anlega frumsýnd hér á landi í kjöl- far Toronto-hátíðarinnar, „Það er ekki búið að negla niður endanlega dagsetningu, við erum að skoða það þessa dagana.“ Þegar hann er inntur eftir því hvort önnur kvikmynd sé í bígerð svarar hann því neitandi. „Ég ákvað að taka mér frí í sumar og ganga svo til vinnu með haustinu, þannig ég er ekki með neitt á prjónunum enn sem komið er. Það tók svo mikinn tíma og orku að gera The Good Heart að ég gleymdi að gera ráð fyrir fram- haldi eftir þá mynd.“ - sm Í flokki með goðsögnum HLAKKAR TIL Dagur Kári segist hlakka til að frumsýna myndina sem tók hann sex ár að klára. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Hulda Lind Kristinsdóttir Aldur: 22 ára. Starf: Frá starfi vegna Miss Tourism Queen- keppninnar. Stjörnumerki: Fiskur. Fjölskylda: Foreldrar mínir heita Ragn- hildur Guðrún Ragnarsdóttir og Kristinn Ólafsson. Svo á ég bróður sem heitir Ragnar og systur sem heitir Berglind. Búseta: Ég flakka á milli Reykja- víkur og Suðurnesjanna þar sem foreldrar mínir búa. Hulda Lind keppir í fegurðarsamkeppn- inni Miss Tourism Queen sem haldin er í Kína 7. til 30. ágúst. Landsmenn rýna sig nú rauðeyga í tekjublöðin og sjá margir að þeir eru á alltof lágum launum í öllum samanburði. Sigurður Þ. Ragnarsson hlýtur til að mynda að velta því fyrir sér, sjálfur veðurmað- ur Íslands, hvernig á því standi að vinnuveitandi hans geri ekki betur við hann en svo að greiða honum, samkvæmt tekjublaði Mannlífs, aðeins 175 þúsund í mánaðarlaun. Sigurður er með umfangsmikinn rekstur, tvo bíla, einbýlishús, hús á Spáni og áfram má telja en hætt er við að Sigmundur Ernir Rúnarsson og félagarnir í jeppaklúbbi NFS verði að splæsa einni pylsu eða svo á formann sinn – í leiðangr- inum sem nú stendur yfir á Suðurlandi í grennd við Ara- tungu. Starfsmenn Vínbúðarinnar á Ísafirði furða sig á því hversu lítið er að gera miðað við sama tíma fyrir ári. Ísfirðingar ætla annað hvort að fara hægt í sakirnar eða bíða með að kaupa verslunarmannahelgarbúsið fram á síðustu stundu. Berlind Hlynsdóttir í Vínbúðinni segist þó verða vör við mýrarboltafólk, atburður fyrir vestan sem vakið hefur mikla athygli fjölmiða, sem drullusokkurinn Jóhann Bæring Gunnarsson sér um. Það er bb.is sem greinir frá þessu. Gunnar Björn Guðmundsson mun takast á hendur hið krefjandi verkefni að leikstýra Áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins. Þá hefur verið gengið frá því að Ari Eldjárn og Ottó Geir Borg komi að handritsgerð. Það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.