Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 12.04.1932, Blaðsíða 4

Verklýðsblaðið - 12.04.1932, Blaðsíða 4
„fslenzka" vikan Nýjasta ráð borgaranna til þess að villa verka- lýðnum sýn, er „íslenzka vikan" svonefnda, sem nú er gumað mest af í blöðunum. það er auðvitað engin ný bóla, að þjóðemisgaspur sé notað í þeim tiigangi. Fossamálið sæla var eitt af vélráðum auð- valdsins íslenzka og gafst sæmilega. Nú er al- menningur hvattur til að kaupa aðeins íslenzkar vörur og nota aðeins íslenzk skip. Kratarnir dingla þar með í bandi og kunna víst vel við sig. Forgöngumenn „íslenzku" vikunnar hafa gengið eins og grenjandi ljón um bæinn og heimtað af keppinautum sínum, sem hafa. á boðstólum er- lendan vaming, að þeir sýni aðeins íslenzkar vörur í gluggum, en engar ella; suma hafa þeir hrætt til þess að taka vaming annarra kaupmatina í búðar- glugga sína og jafnvel haft í hótunum. Nú er öllum lýði ljóst, að þeir einú, sem hagnað hafa af öllu þessu brölti, eru nokkrir innlendir braskarar, sem af hendingu einni og í gróðavon fást við íramlciðslu varnings hér á landi og svo klíkan Jón þorláksson, Garðar Gíslasori og Jón Árnason, sem með bandvitlausum fjáraustri og trassaskap ltafa siglt Eimskipafélagi íslands í strand. Fyrir það á almenningur að blæðii — fyrir mennina, sem bundu skipin í höfn vikum saman, til þess að pína niður kaup hásetanna um leið og þeir hækkuðu kaup framkvæmdastjórans nýja upp úr öllu valdi; sem enn þann dag í dag láta Júlíus skipstjóra, sem sigldi „Goðafossi" í strand, stjórna einu stærsta skipinu. Menn sem ekki geta látið skipin halda áætlun, þannig að flestir kaup- sýslumenn treysta ekki á ferðir þeirra. Allt þetta brask er sagt að vera í þeim tilgangi að efla atvinnu i landinu og þar með bæta afkomu vinnandi lýðs. Trúa verkamenn því? Trúa menn því, að Sláturfélagsgrósséramir, sem hafa sýnt þá þjóðrækni, að selja bæjarbúum hér saltkjöt miklu hærra verði, en þeir hafa fengið fyrir það í Nor- egi og Finnlandi og jafnvel fleygt því í sjóinn, séu haldnir af umhyggju fyrir verkalýð bæjarins? Skyldi þeim nú, bjórbrugguranum Tómasi og Stef- áni Thorarensen, handgengin umhyggja fyrir fá- tæklingum í Reykjavik? (Hversvegna var Höskuld- u.r þá ekki tekinn með?), eða Efnagerð Reykjavik- ur, sem velnefndur, löghlýðinn borgari St. Thor. á ásamt bróður sínum, sómamanninum Hinrik Siglu- fjarðarla'kni? Eru þá eigendur Sápu- og kerta- gerðarinnar „Hreins“ svo fágaðir frá þjóðernis- sjónarmiði síðan í leppmennskumálinu fræga í sambandi við ,Shell-félagið“, þeir herrar Hallgrímur Benediktsson og nafni hans • Tulinius? þá kemur Sigurjón hetjan á Álafossi. Ætli honum renni svo í brjóst eymd atvinnulausra manna nú, eða hafa menn gleymt barsmið hans á sjómönnum 1910 i verkfallinu, vígamóð lians í „hvíta stríðinu" — hann var þá við alvæpni, hyssu og barefli — eða því, er hann vildi láta háseta sína taka einskis nýt hlutabréf í „Walpole" upp í kaupið. Hefir klæða- verksmiðjan „Gefjun“ verið svo hliðholl verkalýð norðanlands um kaupgreiðslur og annað uppeldi? Skyldi Sjóklæðagerðin hans Sigurðar frá Norðtungu rekin af óeigingjörnum hvötum og ást á sjómönn- um? Var það til þess að lækka smjörlíkisverð í Reykjavík og úti á landi, að Smjörlíkisgerðirnar fóni fram á verndartolla á aðfluttu smjörliki? Eða Korpúlfsstaðamjólkin; er svo flekklaus kaup- mennskuferill Thor Jehsen (ísland fyrir íslend- inga!!!) i'Rorgarnesi, Akranesi, Hafnarfirði og ekki hvað sízt i Miijónafélaginu sæla, að menn trúi því, að það hafi verið með liag sjúklinga og bama fá- tæklinganna hér í bæ fyrir augum, að mjólk hans var drýgð með vatni? Trúa menn fagurgala ofangreindra manna og fyrirtækja um áhuga fyrir hag verkalýðsins til sveita og sjávar? Halda menn að þessir vilji leggja mikið í sölurnar fyrir fátækan verkalýð? H. P. SALA RAUÐA FÁNANS í Reykjavík hefir salan gengið þolanlega af síð- asta blaði Rauöa fánans, er nú þegar búið að selja 270—280 eintök að frátöldu því, sem einslaklingar eða selluv hafa tokið að sér og ekki skilað fyrir ennþá. — En betur má ef duga skal. Lágmark lausasölunnar er 300 eint., en það minnsta, sem FUK-félagar geta látið sér sæma eru 400 eint. — F.nn eru ótæmandi sölumöguleikar. Félagar! komið og seljið Rauða fánann. Prentsmiðjan Acta. Réttur komínn út „Réttur“, eina íslenzka tímaritið um þjóð- félagsmál, er nú fluttur suður til Reykjavíkur og er 1. hefti hans nýkomið út. Er innihald hans hið bezta að vanda og skal eftirfarandi greina getið: „Heimskreppa“ eftir Stefán Pétursson, lýs- ing á kreppunni, skýring á orsökum hennar og umræða um leiðimar út úr henni. Er það nauð- synlegt fyrir alla þá að kynna sér þessa grein, sem vilja skygnast vísýj^alega fyrir rætur kreppunnar, sem nú kemur við hvern einasta mann í auðvaldsheiminum að heita má. „Shan-Fei“ er ágæt saga úr kínversku bylt- ingunni eftir hinn fræga kvenrithöfund Agnes Smedley. Bregður hún skæru ljósi yfir hve djúptæk bylting á sér stað þar eystra. „Sjómannadeilan í Vestmannaeyjum.“ heitir góð og rækileg grein eftir Jón Rafnsson. Er það í fyrsta skipti að einstök kaupdeila verka- lýðsins er tekin til meðferðar í íslenzku tíma- riti, til gagnrýningar og lærdóms. „Heimsstríð?“ er smákaflaflokkur eftir rit- stjórann um stríðið og hættuna á útbreiðslu þess. Eru myndir í grein þessari. Þá kemur grein, sem er með afbrigðum skemmtileg: „Hitler“ eftir einhvern snjallasta blaðamann Bolsévismans, Karl Radek. Þjóðfélagsleg og sálfræðileg skýring og gagnrýning á hjá- goði rugluðu smáborgaranna í Þýzkalandi, bít- andi háð og napurt gys að hugmyndarugli „national-sósíalistanna“, pólitísk ádeila fyrir óskammfeilna þjónustu „nazi“-flokksins við einokunarauðvaldið — allt er það sameinað snilldarlega í þessari grein. Kemur það mjög mátulega á þá íslenzku apaketti, sem geta ekki látið sér nægja „innlenda“ vitleysu sjálfs sín mitt í íslenzku vikunni, heldur eru að panta „idiota“ Hitlers frá Þýzkalandi til að bæta gráu ofan á svart hjá fasistafíflum íslenzka íhaldsins. Síðasta grein heftisins er dálítið yfirlit yfir atburðina og ástandið í heiminum og hér heima. Allir þeir, sem fylgjast vilja með í þjóð- félagsmálum nútímans, verða að lesa „Rétt“. Hann er auk þess lang ódýrasta íslenzka tíma- ritið — aðeins 5 kr. árgangurinn. Ölgerð Ihalds og Framsóknar Rétt eftir að Ihaldsmenn og Framsóknar- menn á Alþingi í sameiningu höfðu lagt fram frumvarp sitt um leyfi til þess að brugga í landinu helmingi áfengara öl en áður, gengust menn úr sömu flokkum fyrir því, að ölgerð- irnar „Egill Skallagrímsson“ og „Þór“ voru sameinaðar í eitt hlutafélag, sem heitir „Öl- gerðin Egill Skallagrímsson“. Hlutafé þess er 700000 krónur og forstjóri verður Tómas Tómasson. I stjórn félagsins eiga sæti auk hans: Jón Árnason forstjóri í Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga, Stefán Thorarensen . lyfsali, Kristinn Sigurðsson og Björn Ólafs. Jón Árnason, fulltrúi Sambandsins og Fram- sóknar í ölgerðinni, er verkalýð Reykjavíkur að „góðu“ kunnur úr garnaverkfallinu í fyrra. ; Það var hann, sem stóð fyrir kaupkúgunartil- í raun Sambandsins við verkakonur, sem' við | j garnahreinsunina unnu og í tilefni af verkfalli j þeirra og sigri hafði í „Tímanum“ í hótunum | um það, að svelta verkalýðinn í Reykjavík til i undanláts við kauplækkunarkröfur atvinnu- rekenda. Því fleiri fyrirtæki, sem sameiginleg verða með Sambandinu og kapitalistum, með Framsókn og Jósafat, því meiri verða mögu- leikarnir fyrir Jón Ámason á því að fram- kvæma þetta mannúðarlega áform. VERKLÝÐSBLAÐIÐ. Ábyrgöarm.: Brynjólfur Bjamason. — Árg. 5 kr., i lausasölu 15 aura eintakiö. — Utanáskrift blaðs- ina: Verklýðsblaöiö, P. O. Box 761, Reykjavík. Afgreiðsla Aðalstræti 9 B. Sími 2184. F. U. K. F. U. K. Aðalfundur Félags ungra kommúnista verður haldinn fimmtu- daginn 14. apríl kl. 81/2 stundvíslega í fundar- salnum við Bröttugötu. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar. 2. Kosning stjórnar og trúnaðarmanna. 3. „Marx“ lesinn upp. 4. Ásgeir Magnússon: 5 ái'a áæltunin nýja 5. Starfið við Höfnina. Umræður. 6. Stefán ögmundsson: Upplestur. 7. Áki Jakobsson: 1, mai. 8. Saga “Réttaru. 9. Utbreiðslufundurinn. 10. Rauði Fáninn. 11. Leshringir verkalýðsins. Ungir kommúnistar! Fjölmennið: Komið stundvíslega Stjórnin íslenzkar vörnr góðar og ódýrar: Smjör, kr. 1.40 pr. Vá kg. Ostur frá kr. 0,95 pr. V& kg. Hænuegg, Andaregg. Kartöflur og Gulrófur í lausri vigt. Hamarbarinn riklingur í pk. Freðfiskur. DRÍFANDI Laugaveg 63. Simi 2393. wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^m■ 0 Kol & Koks 0 Kolasalan S.f. - Sími 1514 D^T’ Hringið í Hringinn sími 1232 Höfum alt af til leigu landsins beztu fólksbifreiðar Bifreiðastöðin Hringurinn, Grundarstí^ 2 Bifreiðastöðin H E K L A, Lækjargötu 4. hefir fyrsta flokks fólksdrossíur ávalt til leigu í lengri og sfcemmri ferðir. Sanngjarnt verð Reynið viðskiftin. 970 simí 970 Hár við íslenzkan búning, unnið úr rothári. VERSL. GOÐAFOSS Laugaveg 5. Sími 436 Mótmæii gegn þrælalögum Framsóknar Fundur Kommúnistaflokksins á fimmtud. var mjög fjölmennur, troðfullt hús í Bröttu- götu. Á fundinym voru samþ. eftirfarandi mótmæii gegn þrælalagafrumvarpinu: „Fundur verkalýðs í Reykjavík haldinn í fundarsalnum við Bröttugötu fimmtudaginn 7. april, að tilhlutun Kommúnistaflokks Islands, mótmælir harðlega frumvarpi því um breyt- ingar á samvinnulögum, sem lagt hefir verið fyrir þingið og skorar á Alþingi að fella þessi nýju þrælalög tafarlaust“. Samþ. með öllum atkv. gegn einu.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.