Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 15.11.1932, Blaðsíða 4

Verklýðsblaðið - 15.11.1932, Blaðsíða 4
Framh. af 1. síðu. Launalækkunin brotin á bak aftur. MótmælaJundiix* en þá skipar Hermann lögreglunni að berja á mannfjöldanum. Samtímis. þessu höfðu Jakob Möller og fleiri íhaldsmenn flúið út um gat í kjallaranum. Réðist lögreglan á verkamenn frá ýmsum hliðum, en beið alstaðar lægri hlut fyrir verkamönnunum, sem gripu það sem fyrir hendi varð sér til vamar. Var lögreglan öli afvopnuð og hlutu margir verkamenn og lögreglumenn alvarleg meiðsl. Hinn mikil- mennskubrjálaði lögreglustjóri er fyrst og fremst sekur um upptök bardagans og meiðsl- in, sem urðu. Um kvöldið boðaði K. F. í. til fundar í Bröttugötu. Troðfylltist húsið þegar í stað svo flytja varð fundinn út. Var gengið undir rauðum fána og var mannfjöldinn miklu meiri en í kröfugöngunni á sunnudaginn 6. þ. m. Eftirfarandi tillaga var samþykkt á úti- og innifundinum (á innifundinum með hverju ein- asta atkvæði alls þess fjöldá, sem á fundin- um var): „Fjölmennur verklýðsfundur, haldinn í Bröttu- götu 9. nóv. 1932, skorar á verlcalýðinn í Reykja- vík að svara hinni níðingslegu launalækkunarárás i atvinnubótavinnunni og liinum blóðugu höggum lögreglunnar í dag með verkfalli við alla þá vinnu, sem þýðingu hefir til þess að brjóta hungurárásina á bak aftur. Sérstaklega skorar fundurinn á verkalýðinn við höfnina að leggja alstaðar niður vinnu tafarlaust, ennfremur alla þá, sem vinna hjá bænum við sorp- hreinsun, götuhreinsun, gasstöðina og rafmagns- stöðina. Takmark verkfallsins er: að knýja bæjarstjóm til að greiða sama kaup og áður í atvinnubótavinn- unni og bæta 150 mönnum við í atvinnubótavinn- una þegar í stað, eins og verkalýðurinn samþykkti á bæjarstjómarfuudinum í dag“. Samtímis því, sem verkalýðurinn fylkti sér út á götuna til þess að treysta fylkingarnar. staðráðinn í því að halda baráttunni áfram unz sigur væri unninn og hefja vei'kfall hvað sem kratabrodarnir segðu, sátu alþýðu-„for- ingjarnir“ á fundi á svikráðum við veriíalýð- inn og ræddu um á hvaða hátt þeir gætu bjargað auðvaldinu frá því að uppfylla kröfu verkalýðsins um 150 manna aukningu í at- vinnubótavinnunni. Sömdu þeir við íhaldið um sama kaup í atvinnubótavinnunni til áramóta. Þessi samþykkt kratabroddanna, sem þeir höfðu enga heimild til að gera, hefir vakið al- menna reiði verkalýðsins í Reykjavík. Bæjarstjómin var á undanhaldi, skelfd við hina ágætu samfylkingu verkalýðsins. Það var því í lófalagið að halda baráttunni áfram til sigurs. Öll skilyrði til þess voru fyrir hendi: 1) Víðtæk samfylking og samtök verkalýðsins, 2) Lögreglan gjörsigruð, 3) Bæjarstjórnin á undanhaldi, 4) Verltalýðurinn staðráðinn í því að gera verkfall. Hefðu kratabroddarnir ekki vegið aftan að verkalýðnum, klofið samfylkingu hins vinn- andi og atvinnulausa verkalýðs, hindrað verk- fall í bæjarvinnunni og við höfnina, þá væri nú fullur sigur unninn, kröfur verkalýðsins uppfylltar. Hvernig hefði farið, ef kratabroddamir hefðu fengið að ráða? — Hvað heflði getað áunnizt? Kratabroddarnir vildu ekki gera verkfall, heldur aðeins stöðva atvinnubótavinnuna, þeir vildu að allt færi fram með friði og spekt á bæjarstjómarfundinum, þ. e. gefast upp bar- áttulaust fyrir hverri þeirri samþykkt, sem íhaldsmenirnir í bæjarstjóminni gerðu. Hvað liefði skeð, ef þeir hefðu fengið að ráða þessu? íhaldið hefði undir öllum kringumstæðum náð fram vilja sínum. Annaðhvort hefði at- vinnubótavinnan verið«lögð niður, eða kaupið lækkað niður í 1 kr. og viðbúið að allsherjar kauplækkun hefði siglt í kjölfarið. En kratabroddamir fengu því ekki ráðið. Þrátt fyrir kratabroddana knúði verkalýðurinn bæjarstjómina til undanhalds. íhaldið lofaii gegn klofningi verklýðssamtakanna á „Alþýðusambands“-þinginu verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember í fundarsalnum við Bröttugötu kl. 8 e. h. Ræðumenn: Jón Rafnsson, fsleifur Högnason, Steingrímur Aðalsteinsson, Gunnar Jóhannsson, Angan- týr Guðmundsson, Leifur Björnsson, Stefán Ögmundsson, Sigurjón Jónsson, Magnús Magn- ússon, Einar Olgeirsson o. fl. fulltrúar, er kosnir voru á Alþýðusambandsþing. Verkamenn og verkakonur! Fjölmennið! Fulltrúar samfylkingarinnar á Alþýðusambandsþingi. að láta kaupið haldast óbreytt, þar til öðru vísi yrði ákveðið. Kratabroddarnir vildu ganga að þessu og reyndu að fá verkamennina til að gefast upp við svo búið. Hvað hefði skeð, ef þeir hefðu íengið að ráða þessu? Þá hefði bæjarstjórnin fengið ráðrúm til að safna hvítu liði til þess að fá betri aðstöðu til að framkvæma kauplækkunina. En kratabroddamir fengu því ekki ráðið. Þrátt fyrir kratabroddana knúði verkalýðurinn undir kommúnistiskri forustu bæjarstjórnina til að hætta við kauplækkunina fyrst um sinn. Og Morgunblaðið segir að ríkisstjórnin (les: ríkisstjóm og bæjarstjórn í sameiningu) hafi ekki haft fé til að láta atvinnubótavinnuna halda áfram með, sama kaupi, „fyr en eftir að kommúnistar höfðu sett Reykjavíkurbæ í einskonar uppreisnarástand“(!!). En — kratarnir sömdu bak við verkalýðinn um að atvinnubótavinnan héldist óbreytt — eftir að verkalýðurinn var staðráðinn í að gera verkfall — ekki einungis fyrir óbreyttu kaupi, heldur fyrir fjölgun um 150 í atvinnu- bótavinnunni. Og hefðu kratarnir ekki fengið að ráða þessu, og ekki komizt upp með svikin, þá væri fullur sigur unninn og verkalýðurinn hefði komið fram öllum kröfum sínum. 150 þurfandi verkamannaheimilum hefði verið séð fvrir atvinnubótavinnu í viðbót við það, sem nú er. Þrátt fyrir kratabroddana og margfalt erf- iðari aðstöðu (hvítan her, ofsóknir borgara- biaðanna, Alþ.bl., Mglbl., Vísis, Tímans o. fl.) verður verkalýðurinn að herða baráttuna fyr- ir fjölgun í atvinnubótavinnuna um allan helm- ing. Það hefir v'erið sýnt, hvað máttur sam- takanna megnar. Og þessa lærdóma verður verkalýðurinn að hagnýta sér. „Kommúnistar drepa ungan jafnaðarmann“ Á föstudaginn voru söludrengir Alþýðublaðs- ins látnir hrópa á götunum: Kommúnistar drepa ungan jafnaðarmann! í blaðinu stendur síðan fregn um það, að í kosningaóeirðum í Danmörku hafi kommúnistar drepið ungan jafnaðarmann, Werner Nielsen að nafni. Sannleikurinn er sá, að þetta er hrein og bein fölsun. Af skeytum er ekki hægt að ráða hver þessi Werner Nielsen var. 1 sumum skeytunum er sagt að hann hafi verið kommúnisti, en í öðrum er hann kallaður „ungsósíalisti". En í Kaupmannahöfn er ungur kommúnisti með þessu nafni, og eru hér nokkrir félagar, sem þekkja hann persónulega. Það er því ekki ólík- legt að þetta sé hann. En af skeytunum virðist það augljóst, að maðurinn hafi verið drepinn al lögreglunni. Hver er tilgangur Alþýðubl. með þessu cþokkabragði? Hann er sá einn að undirbúa fangelsanir og ofsóknir gegn kommúnistum vegna atburðanna á miðvikudaginn. Með þess- um illkynjuðu lygum á að kljúfa samfylkingu verkalýðsins í Reykjavík, kljúfa sósíaldemó- kratisku verkamennina frá kommúnistiskum verkamönnum, til þess að hindra það, að of- sóknirnar á kommúnistana verði brotnar á bak aftiu- af einhuga verkalýð. II. þing verður sett í dag (þriðjud. 15. nóv.) í Bröttu- götusalnum kl. 2 e. h. Þeir sem óska að vera áheyrendur, geta vitj- að aðgöngumiða í minni salnum í Bröttugötu eftir kl. 1 í dag. F. U. K. Aðalfund heldur Félag ungra kommúnista fimmtud. 17. þ. m. í Bröttugötusalnum. Nánar í fundarboði. Stjórnin. KAU k Höfum fengið ágætar kartöflur í 25 kg. pokurn. Enn fremur bögglasmjör. Kaupíélag Alþýðu Símar 1417. — 507. Nú er hið írumiega jafnvægís komið í Hljóðfærahúsið Austurstrætj 1q. Atlabúð Laugavega 38. Yo. Yo. snúra sérl Skáldsögur, Kvæðabækur, Fræðirit. Ódýrast í Fornbókayerzlun H.Helgasonar Hafnargtrwti 19. Munid að við erum fluttir á Laugaveg 3 og að sími okkar er 599. Nýíí & GamaU, Laugavegi 3.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.