Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 23.11.1932, Blaðsíða 1

Verklýðsblaðið - 23.11.1932, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNIST AFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.) III. árg. Reykjavík, 23. nóv. Í932 49. tbl., i Ríkisiðgregla mófi vsrk&iýðnum Varnarráðstafanir verkalýðsins. íslenzka auðvaldið hefir nú loksins breytt draumsjón sinni um ríkislög'reglu, hvítan her, í veruleika. Á meðan blöð útgerðaraianna og stórbænda hamra á því, að ekkert fé sé fyrir hendi fyrir auknar atvinnubætur til þess að halda lífi í hinum atvinnulausa verkalýðsfjölda, hefir ríkisvaldið og lögreglustjóri þ'ess í Reykjavík ráðið fjölda manna fyrir hátt kaup til þess að berja niður kröfur verkalýðsins. Hermann lögreglustjóri segist hafa lagt til, að hvíti herinn „hjálpaði til að afstýra óspekt- um í bænum og halda uppi friði á fundum, en blandaði sér hinsvegar ekki í vinnudeilur“. Hinn sami lögreglustjóri sigaði lögreglunni á verkalýðinn 9. nóv. í vinnudeilu (þegar bæjar- stjórnin ætlaði að hefja allsherjarárásina á launakjör verkalýðsins) til þess eins að fá átyllu til að auka lögregluna mörgum sinnum til þess að hafa hana til taks í þeim Jaunadeil- um, sem nú eru yfirvofandi. Verkalýðurinn verður að gera sér ljóst að lögreglan, ásamt hinum hvíta her, er stéttarher yfirstéttarinnar gegn honum sjálfum. Þegar auðvaldið getur ekki lengur stjórnað, þ. e. kúg- að verkalýðinn til undirgefni og bælt niður kröfur hans með „friðsamlegu“ móti, stofnar það her, vopnað drápstækjum, til þess að verja hagsmuni sína og drekkja í blóði kröfu verka- lýðsins um vinnu og brauð handa sér og sín- um. Verkalýðurinn verður þegar að draga lær- dóma sína af þessu og gera nauðsynlegar ráð- stafanir til að verja sjálfan sig gegn þessu cfbeldistæki auðvaldsins. Það er óhjákvæmileg nauðsyn fyrir verkalýðinn að efla varnarlið sitt því það er eitt óhjákvæmilegt skilyrði fyrir því að atvinnuleysingjarnir geti háð sigursæla bar- áttu fyrir vinnu og að hinn vinnandi verkalýð- ur geti brotið næstu launaárásir útgerðarauð- valdsins á bak aftur. Kommúnistaflokkur íslands skorar enn einu sinni á allan verkalýð á íslandi að láta ekki múta sér til að ganga í hinn hvíta her Ólafs Thors og útgerðarauðvaldsins. Ilver sá verka- rnaður, sem lætur fá sig til að bera vopn á stétt- arbræður síná, er svikari við stétt sína. - MBöiaiöEÆzæíiSisaússsria&a'i ,,Stassanisering“ mjólkur. ítalinn Stassano hefir fyrir nokkru síðan fundið upp nýja aðferð til gerilsneyðingar mjólkur, sem hefir afarmildS kosti fram yfir rasteuriseringuna. Ókostir Pasteuriseringar- innar eru fyrst og fremst þeir, að fjörefni (vitamin) mjólkurinnar ónýtast að mjög miklu leyti, mjólkin fær óþægilegt bragð og rjómi sezt ekkí eins á hana og ógerilsneydda mjólk. Með gerilsneyðingaraðferð Stassanos hefir túdst að losna við alla þessa ókosti. En það sem mest er um vert, er að talið er að fjörefni rnjólkurinnar skemmist alls ekki. Mjólkurfélag Reykjavíkur hefir nú fengið áhöld til að stassanisera mjólk og hætt við að nota Pasteurhitunaráhöld sín. Laugard. 12. þ. m. voru blaðamönnum og læknum sýnd áhöld þessi hin nýju í mjólkurstöð félagsins. K. F. í. skorar á allan verkalýð á íslandi að mótmæla hernaðar- og drápsáformum auðvalds- j ins gegn verkalýðnum. „Verkalýðsblaðið“ mun birta nöfn allra með- | lima hvíta hersins og skorar K. F. í. á verkalýð- inn hvar sem er á landinu, að sýna þessum fjand mönnum verkalýðsins andstyggð sína í orði og j verki, ef þeir ekki snúa frá villu síns vegar. j Það má engan verkalýðssinna henda, að hann vinni með mútuðum auðvaldshermönnum. K. F. í. varar verkalýðinn við lýðskrumi Al- j þýðublaðsins og' kratabroddanna um að „gera i varnarráðstafanir“ gegn hvíta hernum „ef þörf krefur“. Kratabroddarnir sýndu það í verkinu 9'. nóv., að þeir eru skósveinar auðvaldsins, að þeir hindruðu aukningu um 150 manns í atvinnu- bótavinnunni, þegar verkalýðurinn hafði öll skil yrði til þess að koma þeirri kröfu fram. Það er argasta blekkingartilraun auðvaldsþjónanna í Alþýðuflokknum að ekki sé þegar þörf á að vei-kalýðurinn skipuleggi vörn sína gegn her- liði yfirstéttarinnar. Lýðskrum Héðins Valdi- marssonar í Alþbl. 21. nóv. er eingöngu skrif- að í þeim tilgangi, að hindra það,að verkalýður- j urinn í Rvík fylki sér í „Varnarlið verkalýðs- ins“, eingöngu skrifað til þess að verkalýðurinn standi sundraður og vamarlaus gegn kaupkúg- unarárásum atvinnurekenda, sem standa fyrir dyrum. Þörf verkalýðsins á öflugu varnarliði þolir cnga bið. K. F. í. skorar á allan verkalýð og verkalýðs- smna að ganga í „Varnarlið verkalýðsins“, þvi ]>að er lífsspursmál fyrir verkalýðinn í Reykja- vík til þess að hann geti háð sigursæla baráttu fyrir kröfum sínum gegn launaárásunum. Verkamenn! Þið, sem fylgið kommúnistum, sósíaldemókrötum eða eruð utan flokka! Fylk- ið ykkur sem einn maður í „Varnarlið verka- lýðsins“! Þið hafið sameiginlegi'a hagsmuna að gæta gegn auðvaldinu. Eina ráð verkalýðsins til að hindra blóðsúthellingar og morð á verka- lýðnum og eina ráðið til að hindra hungur og launalækkanir er samfylking verkamanna í öfl- ugu varnarliði. Er hér um afarmikla fi'amför að ræða um meðferð á hinni þýðingarmestu fæðistegund. Síólfætur Héðins. Á fundi þeim, sem hinir útilokuðu verka- mannafulltrúar á Alþýðusambandsþing héldu í Bröttugötusalnum síðastl. miðvikudagskvöld, ! sagði Jón Rafnsson, fulltrúi Sjómannafélags Vestmannaeyja um Héðinn Valdimarsson, að „stólfætumir, sem hann greip til á síðasta bæj- arstjórnarfundi í Reykjavík, væru þeir einu fætur, sem hann nú stæði á í verkalýðshreyf- ingunni!" íþróttafélag verkamanna. ’ Æfingar eru í Nýja Barnaskólanum við Vita- stíg: í karlaflokki á sunnudögum kl. 10 f. h. og miðvikudögum 8 e. h.f kvennaflokki á miðviku- dögum kl. 9 e. h. Banðn félögisi, á Aknreyri Alþýðublaðið frá 17. nóv. flytur þá fregn, að á þessu ári hafi, á Akureyri dáið fjögur „fé- lög kommúnista“, og það 5. sé í andarslitrun- um. — Morgunblaðið bergmálar fregnina dag- inn eftir. Og þann sama dag kemur „Alþýðu- inoggi“ með þann ábætir, að kommúnistar á Ak- ureyri hafi notað öll þessi félög til þess að kljúfa verklýðshreyfinguna þar. Fregn þessi ber með sér, að heimildarmaður Alþýðublaðsins er Erlingur Friðjónsson, sem undanfarið hefir setið „Alþýðusambandsþingið“ sem íulltrúi fámennrar, pólitískrar klíku á Ak- ureyri, jafnaðarmannafélagsins „Akur“, og neytt þeirrar aðstöðu, að fulltrúar verkalýðsins á Akureyri voru útilokaðir af þinginu, til þess að ljúga einu og öðru um verklýðsstarfsemina norður þar. „Verklýðsforinginn“ Erlingur hefir lagt mikla stund á það heima fyrir að telja mönn- um trú um, að verklýðsfélögin væru ýmist veik eða gersamlega sáluð. — Verklýðsfélögin hafa svarað með því að lifa og starfa án hans aðstoðar eða forustu. — En af því andláts- fregnin nú er sérstakjega borin fram fyrir þá, sem eru málavöxtum ókunnugir, þá hlýt ég að gera nokkrar athugasemdir við hana. Fyrst er talið „Jafnaðarmannafélag Akur- eyrar“. Félagið er stofnað fyrir atbeina Einars Olgeirssonar, sem er brautryðjandi sósíalist- iskrar starfsemi á Norðurlandi. Þó að Erlingur Friðjónsson hæli sér af þvi að hafa starfað í verklýðshreyfingunni á Akur- eyri allt frá upphafi hennar, þá hafði honum aldrei hugkvæmst, að smíða þyrfti verkalýðn- um fræðilegt vopn, pólitískan félagsskap, er gæfi hagsmunabaráttu verkalýðsins þjóðfélags g'ildi og markmið. Til að bæta úr þessu var „Jafnaðarmanna- félag Akureyrar“ stofnað. Og Erlingur Frið- jónsson, sem þrátt fyrir sína „verklýðsforustu“ til þessa hafði verið í pólitískum félagsskap, og ýmiskonar bræðingi með „Framsókn“, gekk í félagið. Starfsemi félagsins var þó borin uppi aí Einari Olgeirssyni og fylgismönum hans — róttækari hluta verklýðshreyfingarinnar á Ak- ureyri. En þó „Jafnaðarm.fél. Ak.“ hefði hlutverk að vinna, var það ekki, og gat aldrei verið ann- að en takmarkaður þáttur í þróunarsögu sósial- istiskrar starfsemi — ef um nokkra þróun væri að ræða. Haustið 1930 er stofnaður Kommúnistaflokk- ur Islands. — Sá róttæki hluti verklýðshreyf- ingarinnar á Akureyri, sem vei'ið hafði kjami „Jafnaðarm.fél. Ak.“, myndar deild úr K. F. 1. — þ. e. a. s. flytur baráttugrundvöll sinn af emu stigi á annað, æðra þróunarstig. — Það er því alls ekkert veikleika merki þó kommúnistar hætti starfsemi í „Jafnaðarm.fél. Ak.“, heldur þvert á móti þroskavottur. Hitt er kyndugra, að Erl. Friðjónsson, sem spyrnti fótum við þróuninni og gat því ekki fylgst með yfir í kommúnistaflokkinn, hafði enga rænu á að halda ,,-Jafnaðarm.fél. Ak.“ lif- andi. í þess stað er hann sér úti um lítinn „Ak- ur“-blett og' gróðursetur í hann — meðal ann- ars — örgustu íhaldsplönturnar, sem til eru í verklýðs- og smáborgarastétt Akureyrar. Þennan vermireit afturhaldsins girðir hann nú svo rækilega, að yfirlýstir „Alþýðuflokks“-

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.