Verklýðsblaðið - 28.03.1933, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNIST AFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.)
IV. árg. Reykjavílt 28. marz 1933 14. tbl.
Bróönrhönd til allra yerkamanna, sem berjasí vilja á móti auöYaldssókninni miklu, fasisma og ófriði
Til verkalýðs aJlra landa!
Kreppan heldur óslitið áfram.
Átvinnuleýsið eykst hröðum
skrefum. Sultur og neyð nær
stöðugt til stærri og stærri hópa
,verkamanna. — Auðvaldssóknin
mikla skerpist með degi hverj-
um. Borgarastéttin er að hefja
_ baráttu fyrir afnámi allra þeirra
þólitísku og efnalegu réttinda,
sem verkalýðurinn hefir aflað
sér með súrum sveita. Sótsvart
fassisma-afturhald er að færast
yíir hvert landið á fætur öðru.
Stofnun grímulausrar fassista-
harðstjórnar í Þýzkalandi hefir
ýtt við miljónum verkamanna
um allan heim, og gert þeim ljósa
, ,þá knýjandi nauðsyn, sem á því
er, að skipuleggja baráttusam-
fylkingu gegn fassistiskri ógnarr
' spkn auðvaldsins. Baráttan verð-
, ,pr, fyrst óg fremst að beinast
gegn borgarastéttinni þýzku,
sem nu er að ræna verkalýðinn
ollum hans pólitízku og efnalegu
réttiijdum, og reyna að ráða nið-
, ^rlögum Vprkalýðshreyf ingarinn-
ar m.eð fántalegri harðneskju og
ofsóknum.
Stærsti þroskuldurinn í vegin-
, iun fyrir sarnfylkingu kommun-
jstisþra og sósíal-demókratiskra
; verkamanna, er sú stefna sósíal-
. demókratisku flokkanna, sem fel-
ur í ser samvinnu og sambræðslu
við borgaraflokkana. Það eru
flokkar sósialdemókrata, er sök
piga á því, hvað verkalýðurinn
stendur nú berskjaldaður fyrir
höggum stéttarandstæðingsins.
„Stéttasamvinnan“, sem sósíal-
deinókratar hafa barizt fyrir
bæði í orði og verki, hefir rutt
þrautina fyrir sigurför fassista-
, harðstjórnarinnar í Þýzkalandi.
Alþjóðasamband kommúnista
og kommúnistaflokkar allra landa
hafa hvað eftir annað rétt út
höndina til sósíaldemókratiskra
verkamanna og tjáð sig reiðu-
búna til sameiginlegrar baráttu
gegn ógnarsókn auðvaldsins, vax-
, andi pólitískri harðstjórn og
stríðshættunni. Og þrátt fyrir
það mikla starf, sem leiðtogar
sósíaldemókrata hafa lagt í
skipulagðar klofningstilraunir ,á
samfylkingu verkalýðsins, hafa
kommúnistaflokkarnir komið upp
sameiginlegri baráttufylkingu
verkamanna, án tillits til hvort
þeir eru kommúnistar, sósíal-
demókratar eða flokksleysingjar.
20. júlí í fyrra rak von Papen
ríkisstjórn sósíaldemókrata í
; Prússlandi frá völdum. Þýzki j
; kommúnistaflokkurinn stakk þá
upp á því við flokk sósíaldemó-
krata og landssamband þýzkra
verkalýðsfélaga, að allir þessir
aðiljar skipuleggðu sameiginlegt
allsherjarverkfall gegn fassism-
anum. En sósíaldemókrataflokk-
urinn og landssamband verka-
lýðsfélaganna stimpluðu þetta,
með fullu samþykki. Alþjóðasam-
bands sósíaldemókrata, — sem
herbragð af hálfu kommúnista.
Þegar Hitler tók við völdunum,
endurtóku kommúnistar tilboð
um sameiginlegt allsherjarverk-
fall og hvöttu stjórn sósíaldemó-
krataflokksins og landssambands-
úns til að skipuleggja baráttu
gegn fassismanum. En þetta var
ekki þegið. Og ekki nóg með það.
Þegar flutningaverkamenn í Ber-
lín gerðu einhuga verkfall í nóv-
ember sj., sprengdu sósíal-demó-
kratar samfylkinguna. í verka-
íýðshreyfingunni um heim allan
úir og gruir af slíkum dæmum.
,. En 19. febr. sl. tilkynnir aðalr
skrifstofa Alþjóðasambands sós-
íalistiskra verkamanna (S. A. I.),
að állir þeir sósíaldemókratisku
flokkar,, sém, tilheyri þessu al-
þjóðasanibandi, séu reiðubúnir til
þess ,að mynda baráttufylkingu
með kpmmúnistum gegn fassista-
harðstjóm Þýzkalands. Þessi yf-
irjýsing er í fyllstu mótsögn við
alla framkomu S. A- I. og sósíal-
demókrataflokkanna hingað til.
Stefna og starf S. A. I. hefir
enn sem komið er verið á þann
veg, að það réttlætir fullkomlega
vantrú Alþjóðasambands kom-
múnista á einlægni þessarar yf-
irlýsingar, sem er þá fyrst gef-
in út, þegar verkalýðurinn sjálf-
ur er í mörgum löndum, og þá
fyrst og fremst í Þýzkalandi, vel
á veg kominn með að skapa sam-
fylkinguna.
En þrátt fyrir þetta, og með
tilliti til árásar fassismans á
þýzka verkalýðinn, — árásar, sem
leysir úr læðingi öll afturhalds-
öfl heimsins, hvetur Alþjóðasam-
band kommúnista allra kommún-
istaflokka til þess að gera enn
eina tilraun til að skapa baráttu-
samfylkingu með sósíaldemókrat-
iskum verkamönnum. Fram-
kvæmdanefnd Alþjóðasambands
kommúnista gerir þessa tilraun
með þeirri bjargföstu sannfær-
ingu, að samfylking verkalýðs-
ins á grundvelli stéttabaráttu sé
fær um að hrinda af sér ógnar-
sókn auðvaldsins, og flýta fyrir
óhjákvæmilegum endalokum
hverslíonar arðráns auðstéttanna.
í þessari baráttu verður að
taka tillit til þeirrar aðstöðu,
sem um er að ræða í hverju landi
fyrir sig. Aðkallandi vandamál
verkalýðsins eru ekki allsstaðar
þau sömu. Þess vegna er mest
von um árgngur, ef kommún-
ista- og sósíaldemókrataflokkar
hvers lands gætu orðið á eitt
Sáttir um ákveðnar baráttufram-
kvæmdir gegn borgarastétt síns
lands. Af þessum ástæðum ráð-
leggur Alþjóðasamband kom-
múnista deildum sínum í hverju
landi fyrir sig, að bjóða miðstjóm
þess eða þeirra flokka, sem til-
heyra S. A. I., sameiginlega bar-
áttu gegn fassismanum og árás-
um auðvaldsins. Samningar milli
flokkanna um slíka samvinnu
yrðu að vera byggðir á þeim ein-
földustu grundvallarreglum, sem
hægt er að setja fyrir sameigin-
lega baráttu. Én sé ekki einhver
ákveðin baráttu-stefnuskrá til-
tekin í slíkum samningum, hljóta
þeir að skaða hagsmuni verka-
lýðsins. Framkvæmdamefnd Al-
þjóðasambands kommúnista legg-
ur því til, að eftirfarandi atriði
verði allsstaðar lögð til grund-
vallar fyrir samningum:
a) Konunúnistar og sósialdemó-
kratar byrja nú þegar að skipu-
leggja og tramkvæma vamir gegn
fassismanum og árásum aíturhalds-
aflanna á hverskonar samtök verka-
manna, hvort sem það eru pólitísk
félög, verkalýðsfélög, samvinnufélög
eða önnur svipuð, — á verkalýðs-
blöðin og á funda-, kröfugöngu- og
verkfallsréttinn. peir skipuleggja i
félagi varnir gegn árásum vopnaðra
óaldarflokka fassistanna, með fjölda-
mótmælum, kröfugöngum og póli-
tískum verkföllum í stórum stíl.
peir byrja ennfremur að skipuleggja
framkvæmdanefndir og sjálfsvamar-
hópa á vinnustöðvum og í verka-
mannahverfum.
b) Með fundum, kröfugöngum og
verkföllum byrja kommúnistar og
sósíaldemókratar nú þegar að skipu-
leggja voldug verkamannamótmæli
gegn launalækkun, versnandi vinnu-
skilyrðum, gegn því að hróflað verði
við tryggingarlöggjöfinni, gegn
lækkun atvinnuleysisstyrks og úpp-
sögn vinnu.
c) Verði gcngizt undir þessi tvö
skilyrði og þeim framfylgt, telur
framkvæmdamefnd Alþjóðasambands
kommúnista sér fært að ráðleggja
kommúnistaflokkunum að láta árás-
ir á samtök sósíaldemókrata niður
falla, meðan stendur á sameiginlegri
baráttu við auðvaldið og fassismann.
En jafuframt verður að gæta þess,
að heyja hlífðarlausa baráttu gegn
öllum þeim, sem brjóta ákvæði
samkomulagsins, og skoða þá, sem
kljúfa samfylkinguna, sem fyrirlitlega
verkfallsbrjóta.
Þessi skilyrði, sem S. A. I. eru
sett, gilda einnig fyrir þá flokka,
— eins og t. d. óháða verkar-
lýðsflokkinn enska, sem hafa
boðið A. K. baráttusamfylkingu.
Framkvæmdarnefnd Alþjóða-
sambands kommúnista, sem legg-
ur þessar tillögur fram fyrir
verkalýð allra landa, hvetur alla
kommúnistaflokka og þó fyrst
og fremst þann þýzka, til að
byrja nú tafarlaust á skipulagn-
ingu sameiginlegra baráttu-
stjórna fyrir verkamenn, hvort
sem þeir eru kommúnistar, sós-
íaldemókratar eða telja sig til-
heyra öðrum fiokkum, — án
þess að bíða eftir árangri samn-
inganna við sósíaldemókratisku
flokkana.
Kommúnistar hafa sýnt það
með margra ára baráttu sinni,
að þeir standa alltaf í fremstu
röð í baráttunni fyrir samfylk-
ingu um framkvæmd stærstu
vandamála verkalýðsstéttarinnar,
bæði í orði og verki.
Framkvæmdarnefnd Alþjóða-
sambands kommúnista er sann-
færð um það, að sósíaldemókrat-
iskir verkamenn og flokksleys-
ingjar úr verkalýðsstétt muni
sigrast á öllum erfiðleikum, og
ásamt kommúnistum skapa sam-
fylkinguna, og það án tillits til
þess, hvernig áfstöðu leiðtogar
sósíaldemókrata taka til þessa
máls.
Einmitt núna, þegar þýzki
fasisminn hefir skipulagt heila
lygaherferð (íkveikja ríkisdags-
hússins, fölsuð skjöl um upp-
reisnaráform) til þess að mola
verkalýðshreyfinguna, — einmitt
núna verður hver einasti verka-
maður að finna til stéttarskyldu
sinnar í baráttunni gegn ógnar-
sókn auðvaldsins og harðstjóm-
arafturhaldi fassismans.
Niður með fasistiska aftur-
lialdið og giinimdaiæðið gegn
verkalýðsstéttinni!
Lifi baráttusamfylking öreiga-
lýðsins!
Öreigar allra landa, sameinist
til baráttu gegn ógnarsókn auð-
valdsins og fassismanum!
Framkvæmdarnefnd
Alþjóðasamb. kommúnista.