Verklýðsblaðið - 20.07.1933, Blaðsíða 1
VERKLYÐSBIAÐIÐ
ÚTGEFANDI: KOMMÚNIST AFLOKHURISLANDS (DEILD ÚR A.K.)
IV. ápg.
Reykjavík 20. júlí 1933
32. tbl.
2700 kjósendur greiða
Kommúnistaf lok knum
atkvæði!
Atvínnuleysíð
á Siglufirðí.
Með atvinnuloforðum og undir-
róðri í verkamönnum og sjómönn-
um um að „bera sig eftir björg-
inni“ og fara þangað sem atvinn-
an væri — hafa burgeisamir og
kratabroddarnir hjálpast að því
að tæla verkamenn, sjómenn og
síldarstúlkur til Siglufjarðar.
N Þrátt fyrir að minni atvinnuvon
var þar nú í sumar en undanfarið
og að síðari árin hefir farið þang-
að svo mikið af verkafólki frá
öllum landsfjórðungum að tölu-
vert atvinnuleysi hefir verið þar
um hábjargræðistímann — þrátt
fyrir þetta streymir fólk til Siglu.
fjarðar unnvörpum nú í sumar —
eftir leiðbeiningum borgarablað-
anna og Alþýðublaðsins og býst
við að eitthvað sannleikskorn sé
í 'skrifum þeirra um nóga atvinnu
á Siglufirði í sumar o. s. frv.
En nú er svo komið að fjöldi
fólks hefir ekkert húsaskjól, ekk-
ert að borða og enga atvinrm
framundan. Burgeisablöðin neyð-
ast til að birta fréttaskeyti frá
Siglufirði, sem skýra ástandið
þannig „að margir verða að haf-
ast við úti á víðavangi sökum hús-
næðisleysis“ og „sökum fólks-
fjöldans býst margt manna til
þess að vinna fyrir lítið kaup,
jafnvel sem matvinnungar“.
Tilgangur burgeisanna og Al-
. þýðuflokksforingjanna með því að
tæla fólk til Siglufjarðar er einn
liðurinn í hinni almennu kaup-
lækkunarherferð, sem nú er haf-
in um land allt. — Sami tilgang-
urinn og með því að láta verka-
menn hér í Reykjavík enga at-
vinnubótavinnu fá, en nota sér
neyð þeirra til að þvinga þá með
aðstoð kratabroddanna til að
vinna fyrir 75 aura um klukku-
tíma. Sami tilgangur og það að
nota sér neyð smábænda og
vinnumanna í sveit, til þess að
þvinga þá til að vinna í vega-
vinnu fyrir 50—75 aura um
tímann. —
Verkamenn! Launalækkanafyr-
ii'ætlanir burgeisanna eru ótak-
markaðar. 75—50 aura um tím-
ann er aðeins fyrsta takmarkið.
Atvinnuleysingjar á Siglufirði!
Hefjið öfluga baráttu gegn at-
vinnuleysinu — sameinist um þá
kröfu, að láta burgeisana borga
fargjöld ykkar heim! Það er
þeirra skylda fyrst þeir hafa
tælt ykkur þangað.
Einungis slík sameiginleg bar-
átta alls verkalýðs getur hindrað
frekari launalækkanir og komið
aftur á atvinnubótum — hér í
Reykjavík og um land allt. —
Eftirfarandi kosningaúrslit eru
nú orðin kunn (atkvæðatölurnar
í svigupum sína fylgi flokkanna
eða frambjóðenda þeirra við
næstu kosningar á undan):
I Reykjavík fékk Kommúnista-
flokkurinn (B-Iistinn) 737 atkv.
(651), Alþýðuflokkurinn (A-list-
inn) 3244 (2153) og íhaldsflokk-
urinn (C-listinn) 5693 (5303).
Kosningu hlutu: Jakob Möller,
Magnús Jónsson og Pétur Hall-
dórsson af lista íhaldsflokksins
og Héðinn Valdimarsson af lista
Alþýðuflokksins.
Á Akureyri fékk Einar Olgeirs-
son (K) 523 atkv. (434), Stefán
Jóhann Stefánsson (A) 335
(158) og Guðbrandur fsberg (f)
650 (598).
í Vestmannaeyjum fékk ísleif-
ur Högnason (K) 338 atkv.
(220), Guðmundur Pétursson (A)
130 (235) og Jóhann Jósefsson
(í) 667 (753).
í Hafnarfirði fékk Björn Bjarna-
son (K) 33 atkv. (0), Kjartan
Ólafsson (A) 769 (679) og
Bjarni Snæbjörnsson (í) 785
(741).
Á ísafirði fékk Jón Rafnsson
(K) 54 atkv. (0), Finnur Jóns-
son (A) 493 (526) og Jóhann
Þorsteinsson (í) 382 (339).
Á Seyðisfirði fékk Haraldur
Guðmundsson (A) 221 atkv.
(274) og Lárus Jóhannesson (í)
184 (145).
í Mýrasýslu fékk Matthías
Guðbjartsson (K) 28 atkv. (0),
Hallbjörn Iialldórsson (A) 17
(0), Bjarni Ásgeirsson (F) 388
(449) og Torfi Hjartarson (í) 317
(349).
I Rangárvallasýslu fékk Jón
Guðlaugsson (A) 46 atkv. (0),
Sveinbjöm Högnason (F) 606
(603), Páll Zóphóníasson (F) 530
(557), Jón Ólafsson (í) 774 (761)
og Pétur Magnússon (í) 643
(581).
í Árnessýslu fékk Magnús
Magnússon (K) 157 atkv. (0),
Haukur Björnsson (K) 46 (0),
Ingimar Jónsson (A) 180 (137),
Einar Magnússon (A) 141 (211),
Jörundur Brynjólfsson (F) 756
(974), Magnús Torfason (F) 616
(904), Eiríkur Einarsson (í) 752
(642) og Lúðvík Norðdal (í) 650
(546).
í Austur-Húnavatnssýslu fékk
Erling Ellingsen (K) 39 atkv.
(0), Guðmundur Ólafsson (F)
345 (513) og Jón Pálmason (f)
399 (417).
í Vestur-Húnavatnssýslu fékk
Ingólfur Gunnlaugsson (K) 32
atkv. (0), Hannes Jónsson (F)
286 (345) og Þórarinn Jónsson
(í) 237 (275).
í Vestur-ísafjarðarsýslu fékk
Gunnar M. Magnússon (A) 62
(35), Ásgeir Ásgeirsson (F) 441
(541) og Guðmundur Benedikts-
son (í) 155 (233).
í Dalasýslu fékk Þorsteinn
Briem (F) 308 atkv. (385) og
Þorsteinn Þorsteinsson (í) 382
(310).
í Barðastrandasýslu fékk And-
rés Straumland (K) 75 atkv.
(0), Páll Þorbjarnárson (A) 82
(61), Bergur Jónsson (F), 465
(747) og Sigurður Kristjánsson
(í) 292 (332).
í Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu fékk Jón Baldvinsson (A)
132 atkv. (246), Hannes Jónsson
(F) 490 (475) og Thor Thors (í)
612 (492).
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
fékk Hjörtur Helgason (K) 42 at-
kv. (0), Guðbrandur Jónsson (A)
103 (101), Klemens Jónsson (F)
253 (368) og Ólafur Thors (í)
902 (1039).
í Borgarfjarðarsýslu fékk Sig-
urjón Jónsson (A) 84 atkv. (32)
Jón Hannesson (F) 304 (428) og
Pétur Ottesen (í) 555 (603).
í Vestur-Skaftafellssýslu fékk
Lárus Helgason (F) , 365 atkv.
(390) og Gísli Sveinsson (í) 387
(377).
í Austur-Skaftafcílssýslu fékk
Eiríkur Helgason (A) 85 atkv.
(A), Þorleifur Jónsson (F) 219
(317) og Stefán Jónsson (í) 141
(138).
í Suður-Þingeyjarsýslu fékk
Aðalbjörn Pétursson (K) 194
atkv. (121), Ingólfur Bjamason
(F) 775 (1033), Kári Sigurbjarn-
arson (í) 228 (216) og Jón II.
Þorbergsson (Þ) 35.
í Norður-Þingeyjarsýslu fékk
Björn Kristjánsson (F) 375 at-
kv. (344) Júlíus Havsteen (í)
129 (0) og Benjamín Sigvalda-
son (Ó) 21.
í Skagafjarðarsýslu fékk Pétur
Laxdal (K) 44 atkv. (0), Elísabet
Eiríksdóttir (K) 41 (0), Stein-
grímur Steinþórsson (F) 750
(820), Brynleifur Tobíasson (F)
745 (782), Magnús Guðmundsson
(í) 875 (796) og Jón Sigurðsson
(í) 819 (778).
I Suður-Múlasýslu fékk Arn-
finnur Jónsson (K) 134 atkv.
(0), Jens Figved (K) 116 (0),
Jónas Guðmundsson (A) 334
(454), Ámi Ágústsson (A) 180
(420), Eysteinn Jónsson (F) 690
(851), Ingvar Pálmason (F) 671
(842), Magnús Gíslason (í)
590 (675) og Jón Pálsson (I)
447 (618).
I Norður-Múlasýslu fékk Gunn-
ar Benediktsson (K) 72 atkv.
(0), Sigurður Árnason (K) 35
(0), Benedikt Gíslason (Ó) 134
Páll Hermannsson (F) 430 (611),
Halldór Stefánsson (F) 363 (619),
Jón Sveinsson (í) 232 (313) og
Gísli Ilelgason (í) 226 (307).
Eftir er að telja atkvæðin að-
eins í Eyjafjarðarsýslu og Norð-
ur-ísafjarðarsýslu.
Þeir, sem ekki kunna að skoða
kosningar í öðru ljósi en því,
hve mikla hrossakaupamöguleika
flokkarnir hafi á komandi þing-
um, mundu gera mikið veður út
aí því, að íhaldsflokkurinn hefir
við þessar kosningar unnið 6
þingsæti af Framsókn og kemur
því til með að eiga 21 fulltrúa á
þingi í stað þeirra 15, sem voru
þar fyrir kosningarnar. En sá
„kosningasigur“ byggist alls ekki
á því, að íhaldinu hafi aukizt
kjósendafylgi í landinu, enda mun
hann heldur ekki hafa neina
raunverulega stefnubreytingu í
för með sér í stjóm landsins.
Ihaldið hefir, síðan samsteypu-
stjórnin var mynduð í fyrravor,
verið ráðandi stjórnarflokkur og
Framsókn í einu og ’öllu rekið
þess erindi. Og það er ekki nema
rökrétt afleiðing af því, að hundr-
uð, ef ekki þúsundir smábænda,
sem fram á síðustu tíma hafa
treyst á Framsókn, hafa nú í
þessum kosningum, snúið baki við
þeim flokki. Því miður hefir all-
ur fjöldinn af þeim ennþá ekki
áttað sig á því hvað gera skuli,
heldur setið hjá án þess að taka
þátt í þessum kosningum. Að-
eins stéttvísasti hluti smábænd-
anna hefir í fyrsta sinni víðsveg-
ar um landið kosið Kommúnista-
flokkinn.
Samt sem áður er sigur Komm-
únistaflokksins það, sem einkenn-
ir þessar kosningar. Hann hefir
einn allra flokka aukið fylgi sitt
í landinu og það í stærsta stíl.
Eins og snjábændurnir hafa snú-
ið baki við Framsókn, eins hafa
hundruð verkamanna sagt skilið
við Alþýðuflokkinn og kvittað á
þann hátt fyrir svik sósíaldemó-
kratisku broddanna við verkalýðs-
hreyfinguna. Það væri ennþá aug-
sýnilegra ef Framsókn hefði ekki
í Reykjavík, á Akureyri og ann-
arsstaðar í bæjunum kosið Al-
þýðuflokkinn til þess að breiða