Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 14.05.1934, Blaðsíða 1

Verklýðsblaðið - 14.05.1934, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI KOMMÚNISTAFLOKKUP ÍSLANDS DEILD ÚR ALÞJÓOASAMBANDI KOMMÚNISTA V. árg. SeykjaTÍk, 14. mal 1934. n sj Stórkostleg stéttabarátta norðanlands „Eimskip“ í banni V. S. N. Allt að 3 tíma skærur milli hvítliða og verka- manna á Akureyri. Fél. Jón Rafnsson og Jakob Árnason teknir fastir. „Deítifoss“ settur i bann og stöðvaður á Siglu- firði. Þegar hann kom til baka, réðist hvitiiða- skrill, vopnaður með slökkvidælum á verkalýðinn. Á föstudaginn sendu Samfylkingarsamtök hafnarverkamanna út ■eftirfarandi fregnmiða: Verkamannafélagið á Borðeyri á í deilu við Kaupfélagið þar. Heíir Kaupfélagið neitað að semja við verkamenn, útilokað verkalýðsfélaga úr vinnu, og rekið tvo leiðandi félaga úr vinnu. Félagið er í Verk- lýðssambandi Norðurlands. Þegar „Lagarfossu fór um á Borðeyri, var hann afgreiddur rneð verkfallsbrjótum. V. S. N. setti „Lagai-foss“ strax í bann. Þegar skipið kom til Siglufjarðar, varð það að fara þaðan óafgreitt. Á Akureyri neituðu verkamennirnir einnig að afgreiða hann. En í nótt söfnuðu hvítliðar liði og bjuggu sér virki úr tunnum og köðlum. Þegar verkamenn komu á vettvang í morgun ruddu þeir skrani þessu burtu og bindruðu vinnu hvítliðanna. Lenti þá i bardaga við þá, sem stóð hátt á þriðja klukkutima, en þá tókst hvítliðunum að^ skipa út vörunum, sem voru aðeins nokkur stykki. Pélagarnir Jón Rafnsson og Jakob Árnason, ritari V. S. N. voru „Verklýðsblaðið" íyrir verkalýðinn! verkalýðurinD fyrir „Verkiýðsblaðið1, Prentsmiðjusöfnunin: Bráðabirgðaskilagrein' 5. áfangi. 11. marz — 5. maí. Innkomið 12. maí: Safnað í prentsmiðjusjóð.......................kr. 862.03 Innheimt hlutafjárloforð........................— 404.25 Innheimt gömúl áskriftagjöld....................— 490.00 Nýir áskrifendur 146. Þetta er aðeins bráðabyrgðarskilagrein fyrir áfanganum, þar sem'enn er ókomið uppgjör utan af landi og frá nokkr- um sellum í Rvík. Fullnaðar uppgjör mun komá í næstu blöð- um. Prentsmiðjunefndin. Vðrklýðsbl. tvisvar i viku 6- áiangí: 12. maí — 24. júni teknir fastir. Gífurieg reiði er meðal verkalýðsins á Akureyri. Á Siglufirði hefir verkamannafélagið sett „Dettifossu i bann í sam- úðarskyni og kom hann þar í dag, og fékk ekki afgreiðslu. Alþýðusambandið og þý þess, hafa ekki látið á sér standa með verkfallsbrjótaiðju sína. Alþbl. svívirðir verkamenn á Borðeyri, og segir áð þeir njóti ekki stuðnings Alþýðusambandsins, af því þeir eru ekki í því! í dag flytur það óheyrilegasta nið og Jygar um verkalýðinn á Akureyri. — Segir m. a. að í verkfallsbrjótaklíku Erlings séu 80% verkamanna á Akureyri!! Atvinnu-verkfallsbrjótarr.ir og svikararnir, sem stjórna þessu félagi hafa ekki látið á sér standa, að skipuleggja verkfallsbrjóta. Ægileg- s vik i Biönduós- deilunni! Verkamenn á Blönduósi voru orðnir þreyttir á svika og uppgjafa- pólitik Alþýðusambandsins og leituðu aðstoðar Verklýðssambands Norðurlands, V. S. N. ákvað því að leysa skipin ekki úr banni, fyr en einnig væri gengið að kröfurn verkamanna á Blönduósi. En þegar V. S. N. hafði tekið deiluna að sér og von var um sigur, greip ríkisstjórnin og Alþýðusambandið til sinna fasistisku ráðstafana: Sýslunefíid var í uroboði Alþýðusambandsins og rikisstjórnarinnar látin ganga á milli verkamannanna, og reyna að þröngva þeim til að ganga úr verkamannafélaginu og svikja samtökin, með hótun utn að þeir yrðu útiiokaðir frá allri opinberri vinnu i suroar — ef félagið ekki semdi á eftirfarardi grnnðvelli: Sérstaklega yrði samið um skipa vinnuna, en öll önnur vinna skyldi greidd með saroa taxta og Alþýðu- samhandið og ríkisstjórnin semdi síðar um fyrir opinbera vinnu. Verkamannafélagið hefir hörfað undan ógnunum og heíir nú undir- skrifaö þessa nauðungasamninga. Svona lítur hið fasistiska, níðingslega samspil, ríkisstjórnarinnar og Alþýðusambandsins út. (Kaupið sem saraið var um við skipavinnuna var kr. 1,15, yfir allt árið, eins og það var áður yfir sumarið, en yfir veturinn var það 0,95. Nætur og helgidagakaup kr. 1,65 (áður kr. 1,20 og 1,40.) (Frh.á3. s.) Hér er sagá frá árangri síðasta áfangans í baráttunni fyi-ir Verk- lýðsbl. sem dagblaði. Sá áfangi lagði lokagrundvöllinn að stofnun hlutafélags til að setja prent- smiðju á stofn. Nú leggjum við út í annan áfanga, sem á að vara til kosn- inganna 24. júní. Hann á að leggja grundvöllinn að næsta skrefinu í Verklýðsblaðs“-barátt- unni, sem er að gefa Verklýðs- l.laðið út tvisvar í viku. I þessum áfanga verður flokkurinn —■ studdur af öllum verkalýð og verldýðssinnum — að framkvæma eftirfarandi mark að öllu leyti : Safna 250 nýjum áskrifendum að Verklýðsblaðinu. Safna föstum mánaðartillögum. — 200 krl ~ Selja minnst 75 eintök í lausa- sölu i Rcykjavík af hverju tölublaðú ínnheimta 75% af áskriftar- gjöldum. Ennfrexuur innheimta kr. 500,00 af ógreiddum hlutafjárlof- orðum. Eins og á þessu sést, þá verður ekki safnað í prentsmiðjusjóðinn í þessum áfanga, en aðaláhei'zlan lögð á söfnun áskrifenda. Það þýðir úrslitaeinbeitingu á vinnu- stöðvarnar, á verkalýðinn. Einmitt þessi einbeiting Verk- lýðsbaráttunnar á vinnustöðvarn- ar verður að vera svar flokksins, svar verkalýðsins til tækifæris- sinnanna, sem vilja fá nýtt sm&- borgaralegt dagblað, sem,1 vilja, að Verkl.bl. flytji aðallega erlendar fréttir og greinar um hneykslis- mál burgeisanna, — vilja ekki að Verkl.bl. ræði fyrst og fremst hagsmuni og hagsmunabaráttu verkalýðsins. Klíkusinnarair reyna að gera Verklýðsbl.-baráttuna tortryggi- lega í augum flokksfélaga og verkalýðsins með því að útbreiða það, að kjörorðið um „Verklýðs- blaðið tvisvar í viku“ sé uppgjöf frá flokksins hálfu og gefa jafn- vel borgurunum vopn í hönd með því að breiða út sögur um að prentsmiðjusjóðurinn sé notaður til flokkssstarfa. Þessari spellvirkjastarfsemá verður bezt svarað með því aS flokkurinn og allur verkalýðurinn sameinist um að framkvæmá mörk áfangans til 100% í tæka tíð. Verkalýðnum hefir aldrei riðið eins mikið á því og nú að efbi blað sitt Verklýðsblaðið. Einnig við hér á Islandi nálgumst hratt tímabil byltinga og stríða. Stétta- árekstrarnir verða stöðugt harð- ari. Verkalýðurinn á í vök að verjast fyrir fasistiskum hungur- árásum borgarastéttarinnar. Stór- felldar deilur standa yfir á Norð- 'rlandi, þar sem borgarastéttha bygg-ir sér götuvígi og skipulegg- ur með hjálp kratabroddanna hvítliðaher til að vernda með launaárásir sínar á verkalýðinn. í þessari baráttu eru það Alþýðn- flokkurinn og blað hans, Alþýður- blaðið, sem sundra og svikja, sem

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.