Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 30.07.1934, Blaðsíða 4

Verklýðsblaðið - 30.07.1934, Blaðsíða 4
„Es1u“- Imeykslið. (Sjómannabréf). Eftir að sjómönnunum á „Esju“ af tilviljun er forð- að frá að vera drepnir af ! ketilsprengingu, er þeim kastað í land í atvinnu- . leysið. Þegar Esja kom úr síðustu \ ferð var framin á henni ein við- ! gerð á kötlunum eins og oftast- ! nær, er hún kemur hér í höfn, því það er orðið svo með það [ skip, að katlarnir voru alltaf lek- ir og merkilegt að ekki skyldi orðið stórslys af fyrir löngu síð- an. En er þessari „viðgerð“ var lokið, var farið að kynda upp að njjju. Þá kom í ljós mjög mikill leki á hlið annars ketilsins, sem varð til þess, að skipið gat ekki farið á ákveðnum degi og var j kallað á skoðunarmann, til þess 1 að athuga, hvað væri að katlin- j um. En vegna þess að Óláfur j Sveinsson, skoðunarmaður ríkis- ! ins, var ekki við, var náð í Jes- | sen skólastjóra, sem er skoðunar- i maður af hálfu vátryggingafélag-, j anna (,,Lloyd-maður“) og kom j hann og varð dómur hans á þá S leið, að engu hefði mátt muna, að hér hefði orðið ketlisprenging, sem hefði þýtt dauða allra, sem I á skipinu hefðu verið. Nú er svo | komið að skipta á um katla og I það þrátt fyrir það, þó fram- kvæmdarstjóri Pálmi Loftsson hafi látið sér það um munn fara, að það vantaði alla ástæðu til að gera við katlana, hvað þá að ; skipta um og fá nýja. En hver j - ástæðan hefði þurft að vera gat ■ sá maður ekki um. En ríkis- útgerðin nær sér niðri á skips- höfninni. Fyrst ekki tókst að láta sjómennina fljúga með ketil- sprengingu, þá er alltaf hægt að sparka þeim í land og það var gert, því áður en vitað var með vissu, hve alvarlegt var að kötl- unum og hvað skipið þyrfti að stoppa lengi, var búið að segja upp öllum lægst launuðu mönn- : um skipsins, og sem stendur í vinna aðeins 4 af 8 hásetum og 2 af kokkum og þjónustufólki og 2 kyndarar. Og má búast við að allir verði látnir fara í land næstu daga. En skipverjar á Esju! Látið ekki kasta ykkur í land, án þess að mótmæla því! Gerið kröfu til hinnar nýju stjórnar, sem komin er til valda undir þeim kjörorð- um, að allir, sem vilja vinna, fái vinnu. Eins skuluð þið krefjast þess af skipaútgerðinni, að fá að vinna við skipið á meðan það liggur hér. Fyrst hægt er að hafa þá, sem mest laun hafa, um j borð og sem ekki gera skipinu neitt til góða, þá eigið þið heimt- j ingu á því að fá að vinna um i borð í skipinu. Sjómaður. Reykjavíkurdeild K. F. í. heldur lokaðan fund fimmtu- daginn 2. ágúst kl. %Vz í Bröttu- götu. Til umræðu eru innan- flokksmál o. fl. Sýnið skírteini. 1. ágúst. Yfirgangun þýzks hervalds á íslandi Þýzkir fasistar ganga her- göngur og syngja fasista- söngva á götum Reykja- víkur. Það er auðséð „samkeppnin“ milli •erlendú stórveldanna um að skjóta íslenzku alþýðunni skelk í bringu og vekja hjá henni „til- j hlýðilega virðingu“ fyrir valdi þeirra og drápstækjum. . Eftir „Nelson“ — 200 miljóna I kr. morðvélina — kemur „Leip- í zig“, herskip hins „gjaldþrota“ | 'Þýzkalands, sem sveltir nú verka- lýð landsins, en hefir samt „efni“ á að margfalda herútbúnað sinn. Og þó morðinginn Hitler skríði fyrir franska auðvaldinu og verði nú að beygja sig í duftið fyrir Dollfuss dauðum í Wien, þá þykj- ast undirlægjur þessa verklýðs- böðuls samt nógu sterkar til að i vaða uppi með ofstopa og yfir- gang gagnvart smáþjóðinni ís- lenzku, enda ríkisstjórnin að vanda hundflöt fyrir hvaða út- lendum auðvaldserindreka sem er. „Leipzig“ lætur fallbyssuskotin drynja á höfninni hvert á fætur öðru og á föstudagsmorgun er herlið látið ganga fylktu liði um götur, Reykjavíkur og syngja hersöngva við raust. Er það tak- markalaus ósvífni, sem þýzkir herforingjar þar með leyfa sér, til þess einhversstaðar að svala imperialistiskri valdagræðgi sinni. V erkalýður og verklýðssinnar Reykjavíkur! Svarið ósvífni fas- istanna og stríðsógnunum stór- veldanna með voldugum útifundi samfylkingarinnar 1. ágúst. Jón Baldvinsson svarar samfylkingar tílboði K. F. I, Alþýðusambandið hefir ennþá ekki svarað samfylkingartilboði Kommunistaflokksins, en Jón Baldvinsson hefir persónulega „látið þess getið“ í útvarpinu, að hann myndi berjast með sínum aðferðum fyrir verkalýðinn, en ekki með aðferðum kommúnista. Það var óþarfi fyrir Jón að aug- lýsa þetta frammi fyrir öllum verkalýð — því allir verkamenn hér á landi, innan og utan Al- þýðuflokksins, vita, að banka- stjóri Útvegsbankans starfar að „hagsmunum“ verkalýðs og smá- útvegsmanna á þann hátt, sem bankanum er fyrir beztu — þ. e. með því að viðhalda hlutaráðn- ingunni, minnka reksturskostnað- inn, lækka launin, hækka vextina (fyrir smáútvegsmönnum) o. fl. Engan skal því undra, þó Jón Baldvinsson vilji með öðrum „að- ferðum“ vinna fyrir verkalýðinn. mmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmu.- Grein um nazistauppreisniija í Austurríki kemur í næsta blaði. Ábyrgðaim.: Brynjólfur Bjarnason. Prentsmiðjan Acta. I. ágóst. - Uttfuadur á Lakjargitu Kl. 8 e. h. miðvikudaginn 1. ágúst hefst á'Lækjargötu fyrir framan menntaskólann Mótmælafundnr gegn stridi og fasisma Skorað á öll félög verkalýðsins og samtök andstæðinga stríðs cg fasisma að senda ræðumenn á fundinn! Af hálfu Kommúnistaflokksipis tala: JÓN RAFNSSON og EINAR OI.GEIRSSON. Ennfremur verða ýmsir fleiri ræðumenn og Karlakór verka- manna syngur. Fjölmennið 1. ágúst! Kaupið 1. ágúst merkin! Þér sem ávait kaupið aðeins beztu vörurnar biðjið um þessar ,Mána‘*bón ,Mána‘*skóáburð (gulan, svartan, brúnan, hvítan) ,Rex‘=húsgagnaáburð ,SpegiW fægilöguv iKristalV þvottasápa og það sem kórónar allt , M á n a ‘» sia ngasápa Síðasta orðið - Blái borðínn Ungir og gamlir, yfirleitt allir, eru sammála um það, að Blái borðinn só bezta smjörlíkið. Beztur á bragðið. Beztur í allar kökar, súpur og sósur og langbeztur til að steikja í. Alltaf beztur - Blái borðinn IIiö fyrsta, sem blasti við farþeg- iiimm af „Monte Rosa“ í Vestmanna- eyjutn var stór áletrun á þýzku, er krafðist frelsis handa Thálmann. { Reykjavik var dreift út hundruð- um mynda af Thálmann með áletr- uninni: „Frelsið Thálmann" — á ís- lenzku og þýzku. Smámiðum, áletr- uðum: „niður með múgmorðingjann Hitler“ var einnig dr.eift út Herðið, margfaldið baráttuna — og látið 1. ágúst verða rauðan dag! Styrkið Parísarfarana! Á morgun, 31. júlí, leggja 3 íþróttamennirnir, sem fara á al- þjóðlega íþróttamótið gegn fas- isma og stríði, af stað með Goða- fossi áleiðis til Parísar. Ennþá er nauðsynlegt að safna fé til fararinnar og heitir „Verk- lýðsblaðið“ á lesendur sína að styrkja Parísarförina með því að leggja sem flestir eitthvað af mörkum.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.