Spegillinn - 01.04.1983, Blaðsíða 5

Spegillinn - 01.04.1983, Blaðsíða 5
Gerfitannasala Nokkrir félagar í Junior Chamber í Reykjavík munu á næstunni setja á stofn nýtt verslunarfyrirtæki, Gerfitannasöluna. Ætlun þeirra er að safna notuðum gerfitönnum, sem fólk þarf ekki lengur á að halda, svo og gómum. Einnig hyggja þeir á skiptiverslun við samskonar fyrirtæki í Skotlandi, en Skotar hafa mjög lík kjálkabein og kjaftstærð og íslendingar. Skoska fyrirtækið byggir viðskipti sín að mestu leyti á samningum við ríkisspítalana og líkhúsin þar í landi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins verður Geir H. Haarde. FráSÁÁ SÁÁ hefur ákveðið að hrinda enn einni landsöfnun af stað með haustinu. Að sögn Björgólfs Guðmundssonar, form. SÁÁ, verðurfénu varið til að greiða Frjálsu framtaki þóknun fyrir það þjóðarátak sem nú stendur sem hæst. Hefur Magnús Hreggviðsson verið ráðinn til að annast þessa söfnun. (Fréttatilkynning.) Einhugurhjá sjálfstæðis- mönnum Mikill einhugur er ríkjandi hjá stuðningsmönnum Sj álfstæðisflokksins fy rir þessar kosningar og jafnvel meðal flokksmanna sjálfra. Talið er víst að bæði formaður flokksins og varaformaður hans styðji lista flokksins í kosningunum þann 23ja. Nýveriðfórfram skoðanakönnun innan fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og sýndi hún að allt að heímingur ráðsmanna ætla að kjósa flokkslistann. Dómur fallinn Kitlsmokkamálið {síðustu viku féll dómur í kitlsmokkamálinu svokallaða. Eins og menn minnast var einn af æðstu embættismönnum þjóðarinnar tekinn fastur á Keflavíkurflugvelli íhaust fyrir smygl á kitlsmokkum. Sást til hans inn á karlaklósetti þar sem hann var að raða á sig 35 kitlsmokkum, en eins og kunnugt er var innfiutningur á þessum varningi stöðvaður með lögum nr. 13/1962 um einkarétt Belgjagerðarinnar til framleiðslu ágúmmítúttum og öðrum varningi úr gúmmíi. Ákærði var dæmdur í 2ja ára skilorðsbundið fangelsi og smokkarnir gerðir upptækir. Er þá fengin niðurstaða í þetta umdeilda og leiðinlega mál, en eins og kunnugt er stóð Félag áhugamanna um jafnan kosningarétt fyrir skoðanakönnun um málið í desembers. 1. ogkomþáíljós að af 7500 þátttakendum voru aðeins 2 á móti því að banninu yrði aflétt. Karvel hylltur Þegar listi Alþýðuflokksins á Vestfjörðum hafði verið samþykktur á kjördæmisráðsþingi hinn 15. mars sl., hylltu ráðsmenn hinn nýja leiðtoga sinn, Karvei Pálmason. Þegar hyllingin stóð sem hæst gekk Sighvatur Björgvinsson, annar maður á listanum, upp á sviðið þar sem Karvel stóð og tók hyllingu. Færði hann honum alþjóðatákn j afnaðarmanna, rauða rós. Ætlaði þá allt um koll að keyra af fagnaðarlátum. Skeyti undirbeltisstað Lista og skemmtideild Sjónvarpsins hefur ákveðið að láta taka upp þrjú leikrit í vor og sumar eftir þá Kj artan Ragnarsson, Sveinbjörn Baldvinsson og Albert Guðmundsson. Speglinum tókst að ná tali af séra Emil Björnssyni en hann mætti til vinnu einn dag í síðustu viku milli klukkan 13:30 og 14:00. Spurðum við hann um leikrit þessi og varðist hann allra frétta. Með kvikindisskap og frekju tókst þó að draga upp úr prestinum að verið væri að taka upp leikrit Alberts þessa dagana. Um efni þess vildi Emil ekkert segj a annað en það sem fælist í nafni verksins, en hið nýja leikrit heitir Skeyti undir beltisstað. Eftir öðrum leiðum hefur blaðið sannfrétt að um algjört framúrstefnuleikrit sé að ræða. Verður það væntanlega frumsýnt á uppstigningardag. 5

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.