Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 19

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 19
STÚDENTABLAÐ 19 því hverskonar hjálp land það er aðstoðina veitir á auðveld- ast með að láta í té og í öðru lagi eftir þörf og óskum þeirra landa, er hjálparinnar njóta. Það er auðvitað ávalt mikil- vægt skilyrði fyrir því, að hjálpin komi að tilætluðum notum, að fyrir hendi sé þekk- ing á því, hverskonar aðstoð land. það, sem hennar á að njóta, hefir mesta þörf fyrir og bezt getur hagnýtt sér. Það má ekki gleyma, að ástæðan til þess, hve hægt hefir miðað í þá átt að vinna bug á ör- birgðinni í þróunarlöndunum, er ekki einvörðungu sú, að um ónóg framlög hafi verið að ræða í þessu skyni, heldur einnig sú, að lönd þau, sem að- stoðina hafa fengið, hafa ekki verið þess umkomin, sökum vankunnáttu íbúanna eða ó- hagstæðrar aðstöðu að öðru leyti, að hagnýta sér hina veittu hjálp, þannig að hún hafi getað náð tilgangi sínum. Saga þeirrar hjálpar, sem þró- unarlöndunum hefir verið veitt er því miður að nokkru leyti saga mistaka, þannig að alltof mörg dæmi eru þess, að hjálp sem veitt hefir verið þróunar- landi af góðum hug, hefir jafn- vel orðið til þess að skapa þar óvildarhug til lands þess er hjálpina veitti, þar sem fram- kvæmd hjálparinnar hefir ekki byggst á nægilegri þekkingu og skilningi á þörfum móttöku- landinu og viðhorfum íbúa þess. Miklu varðar því, að aðgerð- ir til hjálpar þróunarlöndunum séu vandlega undirbúnar. — Fjarhagslega séð ódýr hjálp getur gert miklu meira gagn, ef henni er skynsamlega ráðstaf- að, en miklu dýrari hjálp, sem ráðstafað er af handahófi. Á Island að gerast þátttak- andi í aðstoð við þróunar- löndin? Það er varla fyrr en eitt til tvö síðustu árin, að farið hefir verið að ræða þessa spurningu hér á landi. Liggja til þess ýmsar ástæður, að áhugi fyrir aðstoð við þróunarlöndin hefir verið takmarkaður hér á landi, en sennilega hefir þar mestu valdið um, að svo virðist hafa verið litið á, að Island væri sjálft meðal þróunarlanda og bæri því sem slíku, fremur að vera þiggjandi en veitandi í þessu efni. Það leiðir þó af áðurgreindri skilgreiningu á hugtakinu þróunarland, að því fer fjærri að ísland sé í hópi þeirra. Enda taka margar þjóð- ir, þar sem þjóðartekjur á mann eru til muna lægri en á íslandi, svo sem Japanir, mjög virkan þátt í aðstoð við þróun- arlöndin, og þess jafnvel dæmi að þau veiti hvort öðru efna- hagsaðstoð. ísland hefur að vísu verið að- ili að Sameinuðu þjóðunum frá því skömmu eftir stofnun sam- takanna, svo og að ýmsum stofnunum á vegum Sameinuðu þjóðanna, er látið hafa aðstoð við þróunarlöndin til sín taka, svo sem matvælastofnuninni (FAO), og greitt til þessara stofnana lögboðin gjöld, þar á meðal framlag til tækniaðstoð- ar við þróunarlönd, sem hverju aðildarríki að Sþ er skylt að láta í té. Álitamál er þó, hvort hægt er að telja slíka aðild að ofangreindum alþjóðlegum stofnunum til hjálpar við þró- unarlönd, bæði með tilliti til þess, að ekki mun hafa verið lagt fram í þessu skyni um- fram skyldu, og auk þess er það samkvæmt áður sögðu ekki nema mjög lítið brot þeirrar aðstoðar sem þróunar- löndunum er veitt, sem á sér stað á vegum þessarar stofn- una. Fyrsta meiriháttar átakið, sem gert hefur verið í þessum efnum, er söfnun sú, sem um þetta leyti fer fram á vegum matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna og rekin er undir kjörorðinu „Herferð gegn hungri“. Eins og kunnugt hef- ir verið gert í sambandi við þá söfnun, verður fénu varið til lausnar tilteknum verkefn- um, sem matvælastofnunin vinnur að í þágu þróunarland- anna. Að mínu áliti er hér um merkan áfanga að ræða í þess- um málum, sem vonir standa til að geti haft venjuleg áhrif þeim til framdráttar, þar sem þessi mikilvægu alþjóðavanda- mál hafa aldrei fyrr verið kynnt almenningi á þann hátt sem gert er með söfnuninni. Ber öllum velunnurum þess, að Islandi beri að taka virkan þátt í aðstoð við þróunarlönd- in, með því að styðja ofan- greinda söfnun eftir mætti að mínu áliti. Ef Island hinsvegar á til frambúðar að taka virkan þátt í aðstoð við þróunarlöndin verður nauðsynlegt að byggja á öðrum grundvelli en sam- skotum meðal almennings. Framkvæma verður sem víð- tækasta athugun á því með hverju móti íslendingar geta tekið þátt í þessari starfsemi svo að sem mestu gagni komi. Hefir og nú þegar, samkvæmt þingsályktun frá sl. vori verið skipuð nefnd til athugunar á þessu verkefni. Öllum má auðvitað ljóst vera, að miðað við þau stór- kostlegu verkefni, sem fram- undan eru, hrekkur framlag Is- lendinga í þessu efni. skammt. En ef dregin væri af því sú ályktun, að ástæðulaust sé þá fyrir Islendinga að taka þátt í hjálpinni, af því ekkert muni um framlag þeirra hvort sem er, þá má í rauninni segja það sama um alla þátttöku Islend- inga í alþjóða samstarfi. Það sé ekki ástæða til þess að Is- lendingar hafi aðild að alþjóð- lega Rauða krossinum af því að svo lítið muni um framlag þeirra til starfsemi hans. En slíkri skoðun hygg ég að fáir myndu vilja halda fram. Með tilliti til þess hve góð- ar undirtektir það litla, sem gert hefir verið í þessum efn- um, hafa fengið hjá almenn- ingi, má og telja, að virk þátt- taka íslands í aðstoð við þró- unarlöndin sé í fullu samræmi við vilja almennings. Miklu máli skiptir auðvitað, að tryggt sé, að sú aðstoð, sem veitt er, komi að sem mestum notum. Verður rannsókn á þessu verkefni þeirrar nefndar, sem samkvæmt áður sögðu hefir verið skipuð. Koma þar tvær spurningar til álita, í fyrsta lagi sú, í hvaða mynd hjálpin á að vera og í öðru lagi sú, hvernig henni beri að ráðstafa. Hvað fyrra atriðið snertir, er það einkum þrennt, sem til greina kemur: bein fjárfram- lög, tækniaðstoð í þeirri mynd að Islendingar sendi sérfræð- inga til þróunarlandanna og móttaka námsfólks frá þeim. Fyrsta leiðin er vitanlega ein- földust í framkvæmd en hinar leiðirnar koma auðvitað einnig til álita, og hafa þann kost, að séu þær farnar þá leiðir það auðvitað til nánari tengsla við þjóðir þær, er þróunarlöndin byggja og meiri kynna af mál- efnum þeirra, en verður, ef hjálpin er einvörðungu í mynd fjárframlaga. Ýmsir örðugleik- ar verða þó á framkvæmd hinnar beinu tækniaðstoðar, t. d. ber að hafa það hugfast, að flest þróunarlandanna eru á hitabeltinu, þannig að lofts- lagsmunur verður hindrun í vegi fólksflutninga milli Is- lands og þeirra. Annað megin- atriðið í sambandi við fram- kvæmd aðstoðar við þróunar- löndin er ráðstöfun þeirra fjár- muna eða annarar hjálpar, sem í té kunna að vera látin. Koma þar þrjár leiðir til greina. I fyrsta lagi sú, að ráðstöfun hjálparinnar sé falin alþjóðleg- um stofnunum, er slíkum verk- efnum sinna. I öðru lagi að Is- lendingar annist sjálfir ráð- stöfun hjálparinnar og í þriðja lagi kemur sú leið til greina að íslendingar gerizt aðilar að samstarfi, er takmarkaður fjöldi annarra ríkja kunni að hafa stofnað til í þessum efn- um, svo sem samstarfi Norður- landaþjóðanna er getið hefir verið. Fyrsta leiðin er sú, sem farin hefir verið til þessa hvað snertir það litla sem Islending- ar hafa látið af hendi rakna í þessu skyni. Á það bæði við um þau föstu framlög, sem getið hefir verið, að íslending- um beri að greiða til alþjóð- legra stofnana er þessum verk- efnum sinna, svo og söfnun þá, sem nú fer fram. Þessi leið er auðvitað að ýmsu leyti sú fyr- irhafnarminnsta og raunar sú eina, sem kemur til greina meðan ekki hefir farið fram allsherjarathugun á því, á

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.