Fálkinn - 26.04.1930, Page 4
4
F A L K I N N
Sæluhús Ferðafjelagsins.
í fyrra sumar afhentu eigend-
ur þessa blaðs Ferðafjelagi ís-
lands 1000 krónur til stofnunar
Sæluhúsasjóði F. 1. Sjóði þessum
má aðeins verja til hyggingar
sæluhúsa i óbygðum, eftir á-
kvörðun stjórnar fjelagsins.
Stjórn Ferðafjelágsins hefir á-
kveðið að fyrsta sæluhús þess
skuli bygt í Hvítárnesi við Hvít-
árvatn. Mynd sú er hjer birtist
gefur hugmynd um hvernig ráð-
gert er að húsið verði útlits þeg-
ar það er fullgert. Veggirnir eru
hlaðnir úr torfi og grjóti. Þeir
voru hlaðnir í haust. Þakið verð-
ur tyrft. Gaflarnir verða úr
timbri og járnvarðir. Húsið verð-
ur alt þiljað innan. 1 því verða
tvö herbergi og svefnloft, lítið
eldhús og gangur til að geyma
í farangur. I húsinu verða rúm,
ábreiður og eldhúsáhöld og fleira
sem nota þarf. Öllum verður
heimill aðgangur að húsinu og
því, sem það hefir að bjóða. Hús-
ið á að vera allra og einskis eign,
eins og liin fagra náttúra,, sem
kringum það er á alla vegu. Og
eins og merin eiga að hera djúpa
lotningu fyrir lielgi allrar nátt-
úrufegurðar, svo eiga menn og
að ganga um með hirðusemi og
þrifnaði og nærgætni innan
þeirra veggja, sem sýna þeim
gestrisni í óbygðum. Fjelagið
\æntir þess að allir íslendingar
líti á sæluhúsin eins og helga
staði í óbygðunum, er allir telji
augljósa skyldu að hlúa að og
varðveita.
Sæluhúsið verður bygt norðar-
lega í Hvitárnesi, við svonefndar
„tóftir". Er það gamalt bæjar-
stæði. Var þar fyrir mörgum
öldum bær, sem hjet Hvítárnes.
Nú eru rústir hans komnar und-
ir græna torfu. Sæluhúsið stend-
ur á bala skamt frá veginum,
sem liggur norður Kjöl. Getur
engi farið svo um veginn að liann
taki ekki eftir húsinu. Nokkra
faðma frá því að vestan rennur
Tjarná. Fyrir vestan hana eru
góðir hagar fyrir hesta. Vatn er
nóg og gott skamt frá húsinu
cn lítið er þar um eldivið eins
og allsstaðar í Hvítárnesi. Úr liús-
inu er útsýni hið fegursta. f vest-
urherberginu sjest til Hvítár-
vatns og Langjökuls en í austur-
herherginu sjást Kerlingafjöll og
Hofsjökull.
Öllum, sem til Hvítárvatns
liafa komið í björtu veðri, ber
saman um að þar sje einliver
mesta náttúrufegurð hjer á landi.
Enda hafa ferðir þangað aukist
mjög á síðari árum. Nú má korn'
ast á bifreiðum frá Reykjavík
að Geysi í Haukadal. Sú ferð
tekur 5—6 stundir.
Frá Geysi og inn að ferjuniri
við Hvítá er um 8—9 stunda
ferð, sæmilega ljettríðandi. Þeg-
ar komið er yfir ána er þaðan
um einnar stundar reið inn að
„tóftunum", þar sem sæluhúsið
stendur. Skamt fyrir irinan það
er Fúlakvísl. Yfir hana verður
að fara þegar haldið er inn 1
Hrefnubúðir eða Karlsdrátt. A
einstöku stað er sandbleytaíánnri
annars er hún auðveld yfirferðar.
Úr Hvítárnesi er 5—6 stunda
ferð til Hveravalla. Þar er sælu-
hús, sem ríkissjóður hefir bygt-
Þeir, sem vilja fara til Kerlinga-
fjalla þurfa að gera ráð fyrir að
gista þar eina nótt og verða þvl
að hafa tjald með sjer. Þar er
aðeins ljelegur leitarmannakofi-
Leiðarvísir um þessar slóðir er i
Árbók F. I. 1929.
Þegar sæluhús Ferðafjelagsins
er fullgert ætti mörgum að verða
auðveldara en nú er, að dvelja
við Hvítárvatn nokkra daga að
sumrinu og njóta náttúrufegurð-
ar óbygðanna.
Björn Ólafsson.
Einar Einarsson skipasmiður á
Nýlendugölu 18 varð fimlugur
23. þ. m.
Guðmundur M. B jörnsson heild-
sali verður fertugur i dag.
Magnús Kjaran stórkaupmaður,
famlwæmdarstjóri Alþingishá-
tíðarinnar, varð f erlugur 19. þ. m.
Guðhjörg Gunnarsdóltir liúsfi'11,
frá Egsii Kirkjubæ á Rangár'
völlum, varð sjölug 21. þ. 1,1 ■
í neðri málstofu Breta sitja sitja
i/ú þihg meðal annara: Lloyd George
og sonur lians og dóttir. Arthur Hend-
erson utanríkisráðherra og tveir syn-
ir hans og Stanley Baldwin og Oliver
sonur hans. Tvær fyrstnefndu fjöl-
skyldurnar fylgjast að í stjórnmálum,
önnur i frjálslynda flokknum en hin
í verkamannaflokknum, en Oliver
Baldwin er jafnaðarmaður og faðir
hans íhaldsmaður. Þeir mælast aldrei
við í þingsalnum feðgarnir og al-
menningur hefir haldið, að fátt væri
á milli þeirra. En nú hefir komist
upp, að þeir talast daglega við i laumi
á þinginu. Koma þeir saman i fundar-
hljeum inni í skákherbergjum þings-
ing og þar fer hið besta á með þeim.
------------------x-----
I Kina er meiri læknaskortur en í
nokkru öðru landi heims. Þar lifa,
eftir þvi sem næst verður komist 483
miljónir manna, en læknarnir eru
aðeins 4000. Það er hlutfallslega
minna en þó aðeins einn læknir væri
á öllu íslandi.
Ungverji einn hefir búið til skó,
sem eru þannig gerðir, að inilli ytri
og innri sólans eru rafhitunartæki.
Verði manni kall á fótunum er vand-
inn ekki annar en tengja skóinn við
rafleiðslu og sjóðhitnar hann þá á
svipstundu. Skórnir hljóta að vera
mesta þarfaþing fyrir fótkalda menn.
-——x------------------
Ensku kvilcmyndaskoðendurnir
hafa nýlega birt skýrslu um starf sitt
á síðasta ári. Þeir hafa skoðað 2155
kvikmyndir, alls 7.003.435 fet á lengd.
Af öllum þessum myndum hafa aý
eins 7 verið bannaðar, en 42 bí®1'1
dóms. Af þessum myndum ölluni var
nær lielmingur, eða 903 alls,
inyndir.
----x-----
EJsta manneskjan í Kaupman»a'
höfn, Marie Pauline Iljort dó nýlc^J
ó elliheimili, 104 ára gömul. Hu[l
hafði verið ógift alla æfi. I finitíu ar
ótli hún heima í Ameríku. Ganú
konan hjelt óskertum sálarkröflul
fram í andlátið.