Vikan

Tölublað

Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 16

Vikan - 29.01.1976, Blaðsíða 16
Viðtal við Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk. — Þú kennir þig við Skáldalæk, Snjólaug? — Já, og þar er ég fædd, þó að því trúi v(st fáir og haldi, að þaö sé einhver uppfinning í auglýsingaskyni. En eigi að síður er það satt, og á Skáldalæk bjó mitt fólk mann fram af manni. Hins vegar er ég alin upp á Akureyri að svo miklu leyti sem ég er alin upp. Ég hef nefnilega alltaf iátið illa að stjórn og í uppvext- inum gekk ég að mestu sjálfala. Á Akureyri gekk ég í skóla og lauk gagnfræðaprófi, en frekari skólagöngu hef ég ekki stundaö, svo ég er ómenntuð úr skólum á nútíma mælikvarða. Á hinn bóginn hef ég sjálfmennt- að mig með því að lesa feiknin öll af alls konar bókum og ritum. Ég neita því þó ekki, að mig langaði til að halda áfram skólanámi, en ýmsar ytri aöstæður komu f veg fyrir, að af því gæti orðið. ...ásakaði sjálfa mig fyrir að hafa nú ekki látið verða af því að skrifa bók... — Hvenær fórstu aö fást við skriftir? — Ég skrifaði náttúrlega ritgerðir í skóla. Mig minnir þær hafi bara þótt sæmilegar, en þær voru eitt hiö versta, sem á mig var lagt á þeim árum. Svo þegar ég var nítján ára, var ég ákveðin í að skrifa skáldsögu. Hún átti að vera um unga stúlku, sem stóð ein uppi í lífinu og vantaði allt. Ég settist niður við eldforna ritvél, sem ég haföi keypt mér, þegar ég var að læra vélritun ( skóla, og tók til við að skrifa um ungu stúlkuna. En söguefnið þraut um leið og ég lauk við fyrstu vélrituðu örkina. Þá gafst ég upp og var alveg sannfærð um, að ég heföi aldrei þolinmæöi til að skrifa heila bók. Næstu árin fékk ég samt alltaf sting í hjartað, þegar jólabækurnar fóru að koma út, og mér fannst það hlyti að vera óskaplega gaman að eiga eina meðal þeirra, og fyrir hver jólin af öðrum ásakaði ég sjálfa mig fyrir að hafa nú ekki látið verða af því aö skrifa bók. Eitt áriö vantaði mig auka- vinnu, og þá fór ég á fund útgefanda míns, sem ég var vel kunnug áöur, og spuröi hann, hvort hann vantaði ekki þýðanda. Hann sagðist hafa nóg af þeim og ekkert kæra sig um einn í viðbót. „Skrifaðu heldurl" bætti hann við. „Það vantar alltaf (slenskar skáldsögur!" Ég fór náttúrlega öll hjá mér og sagöist alls ekki geta skrifaö. Þá sagöi hann, aö þaö væri bara af þv( ég þyrði ekki að reyna. Við það hljóp í mig kergja, þv( að ég er óskap- Fyrir rúmum fjórum árum kom út skáldsagan Næturstaður. Höfundur- inn var ung kona, Snjólaug Braga- dóttir. Bókin vakti nokkra athygli, en þó ekki nærri eins mikla og næsta bók Snjólaugar: Ráðskona óskast í sveit, má hafa með sér barn, sem kom út árið eftir og varð mjög vinsæl. Síðan hafa tvær bækur komið út eftir Snjólaugu: Allir eru ógiftir í verinu árið 1974 og Holdið er torvelt að temja fyrir síðustu jól. Holdið er torvelt að temja kom út í fimm þúsund eintökum, sem er óvenju mikið upplag hérlendis, en það hrökk þó varla til. Svo vinsæll höfundur er Snjólaug orðin. Vikan fór nýlega á fund Snjólaugar í þeim erindum að kynnast skáldkonunni ofurlítið nánar. lega þrjósk að eölisfari — ég fór að brjóta heilann um söguefni og skrifaði s(ðan skáld- söguna Næturstaöur, sem kom út árið 1972, og var fyrsta bókin m(n. — Hvernig viðtökurfékk hún? — Ég fylgdist ekki sérlega vel með þv(, vegna þess að ég var svo feimin, þegar að þessu loksins kom, að ég vildi helst læöast með veggjum, en útgefandinn var ánægöur og hvatti mig til að halda áfram. Næsta ár kom svo Ráöskona óskast ( sveit, má hafa með sér barn. Hún varð að meginhluta til á siglingu 16 VIKAN 5. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.