Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 8

Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 8
8 dentunum gleymdist það ekki, þegar hann sagði: „Trúin verður að vera allt, annars erhún ekkert". Þessi háskólavakning var laus við allar æsing- ar, sem stundum fylgja trúarvakningum í reformert- um löndum, enda gengu beztu háskólakennararnir og duglegustu stúdentarnir í broddi fylkingar. Fjöldi alvörulausra ungra stúdenta snerist til lifandi trúar, og vantrúarmennirnir urðu svo ráðalausir að þeir sögðu: „Vjer sjáum og heyrum svo margt ótrú- legt daglega, að vjer erum hættir að verða hissa á nokkru, jafnvel því að vjer snerumst sjálfir og fær- um að vitna". Þeir, sem snerust, ljetu sjer ekki nægja að hugsa um Edinborg, heldur sendu þeir menn til annara borga og háskóla í kring, og urðu þar víða trúarvakningar einkum í Glasgow. Á meðan Stanley Smith og Studd voru að ferðast, gengu 5 aðrir ríkir menn af beztu ættum í fóstbræðralag við þá um að þjóna guði í Kina, og gefa trúboðsfjelögum allar eigur sínar. Þeir hjetu: Cecil Polhill—Turner, lífvarðarforingi Viktoríu drottn- ingar, — bróðir hans A. P. Turner, kandídat, — Cassels, ungur prestur, — varð 10 árum síðar biskup í Kína, — Hoste, foringi í stórskotaliðinu, og M. Beauchamp, kandídat. Þessir 7 ungu tignarmenn voru gagnteknir aí kærleika frelsarans og hugsuðu ekki um annað en vinna sálir fyrir hann. Þeir ferðuðust saman um hríð, og voru þá opt nefndir „sjöstirnið írá Cambridge",

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.