Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 39

Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 39
Látinn prestur vestan hafs. Það er sjálfsagður hlutur, að tímarit íslenzku kirkjunnar minnist presta hennar, þegar þeir fara af þessum heimi. Jafn- sjálfsagt ætti það í rauninni að vera, að það gerði hið sama um íslenzka presta vestan hafs, þá er á móðurmáli sínu hafa prédikað, og þá um fram allt, ef þeir voru fæddir á íslandi og horfðu þar undrunaraugum barnsins á Guðs dýrð í náttúr- unni. Einn þessara virðulegu öldunga er nú nýlega hniginn í valinn: sira Sigurður Christopherson. Hann veiktist snögglega á jólanótt í vetur og andaðist í sjúkrahúsi í Winnipeg að morgni þess 8. janúar. Var honum það ljóst, þegar er hann veiktist, að hann mundi ekki taka fleiri sóttir, og gerði því ýtarlegar ráðstafanir um allt það, er laut að eigum hans og útför, sem hann lagði áherzlu á að yrði sem óbrotnust og íburðarminnst. Ástæðan til þess, að ég hefi tekið mér fyrir hendur að minn- ast þessa mætismanns með nokkrum orðum, er sú, að hin síðari árin skrifaðist kona mín á við hann að staðaldri, og af bréfum hans varð mér það ljóst, hve merkur maður hann var og trúarhetja. Efnið tek ég sumpart úr æfiágripi því, er hann ritaði sjálfur í Sameininguna, þegar hann prestvígðist, 1909, en sumpart úr bréfi til konu minnar frá frænda hans, John Christopherson, lögfræðingi í Winnipeg (þeir voru bræðra- synir), en um ættir eyk ég örlitlu við eftir frásögn hennar. í æfiágripi sínu kemst sira Sigurður þannig að orði: „Ég er fæddur 21. apríl 1876 að Neslöndum við Mývatn. Foreldrar mínir voru þau Sigurjón Kristófersson og kona hans Helga Jórunn Jónsdóttir. Með þeim fluttist ég til Ameríku 1893. Tókum við okkur bólfestu í Argyle-nýlendu í Manitoba, °g þar hafa foreldrar mínir búið síðan. Fyrst framan af dvaldi vg hjá þeim og gekk á alþýðuskóla. Haustið 1901 hóf ég nám

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.