Ægir - 01.10.1946, Blaðsíða 11
Æ G I R
233
Staersta kaupfar íslendinga.
Stærsta skip, sem enn hefur verið smíðað
^yi'ir íslendinga er Hvassafell, hið nýja skip
^ambands ísl. samvinnufélaga. Skip þetta
l'om hingað til lands 27. sept. síðastl.
Hvassafell er smíðað í skipsiniðastöðinni
Ansaldo í Genova. Skip þetta var í önd-
verðu smíðað með það fyrir augum að nota
það til hergagnaflutninga, en smiði þess
vaF ekki lokið, þegar ítalir gáfust upp í
styrjöldinni. Gunnar heitinn Larsen, fram-
þvæmdarstjóri Útgerðarfélags IvEA h/f,
samdi um kaup á skipi þessu í aprílmánuði
síðastliðnum, en afhending á því fór fram
2. ágúst. Er þetta fyrsta vöruflutningaskip-
ið, sem íslendingar kaupa beint frá skipa-
smíðastöð.
Hvassafell er 16(i5 rúml. brúttó, en 1208
rúml. nettó. Það er 83.6 m á lengd og 12.33
m á breidd. í því er Fiat-Dieselvél 1200—
2000 hestöfl. Átta bómur eru á skipinu, sem
bver um sig lyftir 5 smál., en auk þess eru
tvær bómur, sem lyfta 25 smál. Ibúðir
skipverja eru hinar vistlegustu. Sérstakur
klefi er fyrir hafnsögumann og einnig eru
tveir tveggja manna farþegaklefar. Skipið
ej' hitað upp með oliukyndingu. Fullkomn-
ustu öryggistæki verða í skipinu, meðal
annars Radartæki. Hingað komið kostaði
Hvassafell 4 milljónir króna.