Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1955, Blaðsíða 15

Ægir - 15.12.1955, Blaðsíða 15
ÆGÍ U 333 Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði 1931. vélanna, og fest voru kaup á helztu vélum og efni til þessara framkvæmda. Varð þessi för til þess, að takast mátti að reisa síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn fyrir síldarvertíð 1940, en svo skall hurð nærri hælum, að helztu vinnsluvélarnar í Raufarhafnarverksmiðjuna fóru frá Nor- egi með skipi, sem sigldi þaðan daginn fyrir innrásina í landið. Vélarnar í Dr. Pauls-verksmiðjuna kom- ust ekki frá Noregi vegna styrjaldarinnar, Jón Gunnarsson. svo að kaupa varð vélarnar til stækkunar þeirrar verksmiðju frá Bandaríkjunum og tafðist stækkunin um eitt ár af þeim sökum. Þessi stækkun á síldarverksmiðjunum varð til ómetanlegra hagsbóta fyrir síldar- útveginn á næstu árum. Meðan á styrjöld- inni stóð byggðist síldarútvegurinn fyrst og fremst á því, að síldarverksmiðjurnar veittu aflanum móttöku, því að saltsíldar- markaðurinn var að mestu lokaður. Stjórn S.R. hefur beitt sér fyrir dýpkun hafnarinnar á Raufarhöfn, og var fyrsta dýpkunin framkvæmd 1940 og 1941. Á árunum 1927 til 1944 var síldarafli góður, að árinu 1935 undanskildu. Sum árin á þessu tímabili voru afbragðsaflaár, og fóru þá stórkostleg verðmæti forgörð- um sökum skorts á nægum síldarverk- smiðjum. Sem dæmi um þetta vitna ég í bréf verksmiðjustjórnarinnar til ríkis- stjórnar og Alþingis, dags. 11. ágúst 1942, þar segir svo m. a.: „Þegar Síldarverksmiðjur ríkisins hófu i

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.