Alþýðublaðið - 11.12.1929, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 11.12.1929, Blaðsíða 2
e AbÞÝÐUBiííAÐie Kaupdeila yfirvofandi í ' Vestmannaeyjnm. Alpýðublaöinu hefir borist eft- irfarandi bréf frá Sjómannafélagi Vestmannaeyja. Það talar sínu máli til allrar alpýðu og parf engra frekari skýringa við: Félagar! Hér með tilkynnist ykkur, að kaupdeilan hér á milli sjómanna og útvegsmanna mun ekki verða útkljáð á friðsamlegan hátt. Út- vegsmannafélagið hefir tjáð sig fráhverft öllu samkomulagi við sjómenn. Sjómannafélagið hefir því stilt upp lágmarkstaxta sín- um og mun standa alt sem einn maður í kring um hann og hvergi slaka til. Það vita og útvegs- menn. En fyrir þeim vakir að eins það að kúga aðkomumenn- ina undir taxta sinn. Skorar þvi sjómannafélagið á öll alþýðufé- iög landsins að sjá svo um eftir megni, hvert á sínum stað, að sjómenn komi ekki eða ráði sig til Eyja, nema peim sé fyrir fram trygt, aö peir fái minst greiddan lágmarkskauptaxta sjó- mannafélagsins, pann er hér fylg- ir. í fullu trausti á samtök alpýð- unnar, með félagskveðju, f. h. Sjómannafélags Vestmanha- eyja: Jón Rafnsson formaður. Giiom. Kristjánsson ritari. Lágmarkskauptaxtí Sjómannafélags Vestmannaeyja vetnrinn [1929]—1930. Á vélbátum 20 tonn og þar yfir: Hlutur formanns 1/17 part- ur af afla, vélamanns 1/25 part- ur af afla, háseta 1/34 partur af afla. Fastakaup vélamanna 750,00 auk fæðis og húsnæðis, premía kr. 11,00 af pús. hverri. Fastakaup háseta kr. 475,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía 9,00 af þús. hverri. Sé um mánaðar- kaup að ræða skal kaup véla- manna vera kr. 300,00 um mán- uðinn og kr. 11 af þús. hverri frá 40 þús. ,og þar yfir. Kaup há- seta kr. 200,00 um mán. og kr. 9 af þús. hverri yfir 40 þús. fiskjar. Á vélbátum 16—20 tonna: Hlut- ur formanns 1/17 partur af afla, vélamanns 1/23 partur af afla, háseta 1/31 partur af afía. Fasta- kaup vélam. kr. 750,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 12,50 af þús. hverri yfir 35000 fiskjar. Mánaðarkaup háseta kr. 200,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía icr. 12,35 af þús. hverri yfir 35 þús. fiskjar. Á vélbátum 12—16 tonna: Hlut- »r formanns 1/15 partur af afla, vélamanns 1/20 partur af afla, háseta 1/28 partur af afla. Fastakaup vélamanns kr. 750,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 15,00 af þús. hverri. Fastakaup háseta kr. 475,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 12,25 af þús. hverri. Mánaðarkaup vélam. kr. 300,00 auk fæðis og húsnæðis. * Premía kr. 15,00 af þús. hverri yfir 30,000 fiskjar. Mánaðarkaup háseta kr. 200,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 12,25 af þús. hverri yfir 30,000 fiskjar. Á vélbátum 9—12 tonna: Hlut- ur formanns 1/12 partur af afla. vélamanns 1/16 partur af afla, háseta 1/22 partur af afla. Fastakaup vélamanns kr. 750,00 auk fæðis og húsnæðis, Premía kr. 16,00 af þús. hverri. Fastakaup háseta kr. 475,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 13,00 af þús. hverri. Mánaðarkaup vélam. kr. 300,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 16,00 af þús. hverri yfir 25,000 fiskjar. Mánaðarkaup háseta kr. 200,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 13,00 af þús. hverri yfir 25,000 fiskjar. Á vélbátumO tonnaogþarund- ir: Hlutur formanns 1/9 partur af afla, vélamanns 1/13 partur af afla, háseta 1/15 partur af afla. Fastakaup vélamanns kr. 750,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 17,00 af þús. hverri. Fastakaup háseta kr. 475,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 18,00 af þús. hverri. Mánaðarkaup vélam. kr. 300,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 17,00 af þús, hverri yfir 17,000 fiskjar. Mánaðarkaup háseta kr. 200,00 auk fæðis og húsnæðis. Premía kr. 18,00 af þús. hverri yfir 17,000 fiskjar. Samkvæmt ofanskráðu skulu hlutamenn sjá sér fyrir fæði á- samt þjónustu og húsnæði, út- geröinni að kostnaðarlausu. Séu fæðispeningar greiddir, skulu þeir vera lægst kr. 3,00 á dag. Stjórnin. Upprelsfim i Eína. FB. 10, dez. Frá Shanghai er símað: Upp- reistarmönnum gegn þjóðernis- sinnastjórninni vex stöðugt fylgi, einkanlega slðan Kínverjar urðu að láta í miuni pokann fyrir Rúss- um á landamærum Mansjúríu. At- kvæðamiklir hershöfðingjar hafa snúist á móti Chiang-kai-shek og er aðstaða stjórnarinnar nú mjög alvarleg. Uppreistarmenn hafa slit- ið brautarsambandinu á milli Shanghai og Nanking. Her upp- reistarmanna nálgast Ichang og Hankow. Nanking, sem er aðsetur þjóðernissinnastjórnarinnar, er einn- ig hætta búin. Útlendingar flytja frá Ichang Konur og böm enskra og amer- iskra borgara þar og í Nanking flytja á bro+t. Bretar og Bandaríkjamenn hafa sent herskip til Kína. Íslenskur rithðfundur erlendis. Kristmann Gaðmundsson: Livets morgen. Kxistmann Gubmundsson er að gerast afkastamikill rithöfundur. Nýlega er út komin 5. bók hans, „Livets morgen“. Er þar sögð saga norðlenzkrar sjóhetju, Hall- dórs Bgssasonar, sem vegna von brigða í ástamáium flýr Norður- Iand og sezt að í smáþorpi á Suðurlandi. Halldóri Bessasyni er meistaralega lýst frá höfundar- ins hendi. Persónan er sterkleg og skýr. Fyrir hugskotssjónum lesandans stendur Halldór Bessa- son karlmannlegur og festulegur. Othafið dregur hann að sér. í sálu hans er öldurót úthafsins grunntónn. Oti á sjónum unir hann sér bezt. Hann klæjar í lófana, er hann heldur ekki um stjórnvölinn. Augu hans gneista. er boðaxnir brotna við báða stokka og brimrótið lemur klett- ana. Hann leikur sér við hætt- urnar — og hann sigrar. Síð- asta afrek hans er, að hann bjargar enskri skipshöfn frá drukknun. En að síðustu gengur Halldór Bessason þó sár frá bar- daganum við gaddbyl og for- áttubrim. Hann kelur. Hann miss- ir báða fætur rétt fyrir neðan hné — og gengur síðan á stúfunum og þeim blæðir. — En hann sigr- aði samt. En á einu sviði er Halldór Bessason veikur fyrir. Hann er kvennamaður og nokkuð laus á kostunum. Sýnir höfundur þar skoðun sína skýrt: Ef fyrsta æskuástin er ekki endurgoldin verða aðrar ástir falskar. — Hall- dór Bessason giftist stúlku, sem hefir franskt blóð í æðum sínum. Hann elskar hana ekki. Salvör, sem hann svíkur, hatar hann — og annar þáttur sögunnar lýsir því hatri. Kristmanni er alt af að fara fram. Þessi saga hans er vel gerð. Hún er fremri „Brúðar- kjólnum“ og „Ármanni og Vil- dísi“, — Fengu þessar sögur þó ágæta dóma fremstu ritdómara á Norðurlöndum. Bezt tekst Krist- manni, er hann lýsir karlmensku og hugdirfsku, en þó er hann oft snjall, er hann lýsir viðkvæmni og fegurð. Þá er hann svo inni- legur. Ég efast ekki um, að Krist- mann hefir enn ekki sýnt hæfi- ledka sína til fulls. Hann býr yfir miklu og hann er nógu vitur ffi þess að leggja ekki alt fram tíö fyrsta leik. Ég varð var við það í sumar, að sögur Kristmanns eru mikið lesnar í Noregi og það ekki ein- ungis af „bókamönnum", heldur og af allri aíþýðu. — Dómamir um bækur hans eru allir á eina lund: „Hér er á ferðinni mikill hæfileikamaður, snjalt og gott skáld.“ — Og Kristmann sækir hærra og hærra. „Brudekjolen“ hefir verið þýdd á ensku, þýzku, hollenzku og rússnesku. „Ármann og Vildís“ hefir einnig verið þýdd á sömu mál. — Smásögur hans hafa birzt í. frönskum, þýzkum og enskum blöðum, auk þess sem hann skrif- ar smásögur fyrir mörg blöð á Norðurlöndum. Eitt sinn flúði Kristmann úr föðurgarði, — frá íslandi. Kuld- inn var svo napur þar og van- trúin á hæfileika hans særðí hann. — Hann er íslenzkur land- námsmaður í Noregi og þar unir hann vel hag sínum. „Baráttan var erfið í fyrstu," sagði hann við mig í sumar, „málið, vina- leysið, fátæktin, en erfiðleikarnir herða — herzlan, reynslan hefii' gert mig svo bjartsýnan. Heils- aðu Islandi. Ég elska það — og mér þykir vænt um Noreg.“ V. S. V.. Felbna-ofviðri á Bretlandsey|nm* Skiptapai* og drnkknanir. FB„ 10. dez. Frá Lundúnum er símað: Storm- urinn hefir nú geysað á Bretlands- eyjum í 5 sólarhringa og er alt útlit á, að hann muni ekki lægja bráðlega. Þetta er langmesti storm- ur, sem sögur fara af í Englandi. Skip hafa strandað tugum saman, Stóru Allantshafs-linuskipin hafa komið stórskemd til hafna i Bret- landi. Rúmlega 30 skip hafa ieitað sbjóls í höfnum inni. Talið er nokkurn veginn víst, að eimskipið »Radyr« hafi farist við Hartland Point (á vesturströnd Englands) og skipsmennirnir, 25 að tölu, hafi drukknað. Tveimur skipsmönnum af ensku herskipi skolaði útbyrðis og drukknuðu þeir báðir. ítalskt eimskip, »Chieri«, fórst í Biscayflóanum [við Frakkland og Spán]. 36 skipsmannanna drukkn- uðu, en 5 var bjargað. HÖfðu þeir bjargast á planka og hafst við á þeim klukkustundum saman. Voru mennirnir aðþrengdir mjög, er þeim var bjargað. Skipafréttir. „Alexandrína drottning" fór í gærkveldi í Akureyrarför. — Tvö fisktökuskip, „Áslaug“ og „Brú“, fóru héðan i morgim til fcrwi- ingar á öðrum höfnum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.