Alþýðumaðurinn - 05.09.1969, Blaðsíða 1
Verzlið l sérverzlun.
ÞaS tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Simi 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
Ágætur fundur jafnaðarmanna á Ak
Akureyri 29. ágúst. — S. J.
í KVÖLD héldu Alþýðuflokksfélögin vel heppnaðan og fjölsóttan
fund í hinu nýja félagsheimili að Strandgötu 9. Gestur fundarins
var formaður flokksins, Gylfi Þ. Gíslason ráðherra. Einnig mættu
á fundinuin jafnaðarmenn langt að komnir, Gunnþór Björnsson frá
Seyðisfirði og Guðni Þ. Árnason frá Raufarhöfn. Ennfremur voru
mættir tveir jafnaðarmenn frá Dalvík, Ásgeir Sigurjónsson og Ás-
geir Pétur Sigurjónsson.
Formaður Alþýðuflokksfélags
Akureyrar, Kolbeinn Helgason,
setti fundinn og stjórnaði hon-
um, en framsöguerindi um
stjórnmálaviðhorfið fluttu Gylfi
Þ. Gíslason ráðherra og Bragi
Sigurjónsson alþingismaður, en
að framsöguerindum loknum
hófust umræður og var fundur-
inn með mjög frjálslegu sniði
sem mætti verða til fyrirmynd-
ar framvegis, þá er jafnaðar-
menn efna til slíkra funda.
Eftirtaldir tóku til máls. eða
komu með fyrirspurnir: Þor-
valdur Jónsson, Ásgeir Pétur
Sigurjónsson, Albert Sölvason,
Ásgeir Sigurjónsson, Ingólfur
Ingólfsson, Haukur Haraldsson,
Jósteinn Konráðsson, Steindór
Gunnarsson og Sigurjón Jó-
hannsson. Svaraði ráðherrann
öllum fyrirspurnum mjög ítar-
lega, sem beint var til hans og
voru umræður hinar fróðleg-
ustu. Fundarritari var Valgarð-
ur Haraldsson.
Er Kolbeinn Helgason sleit
fundi og þakkaði formanni
flokksins fyrir komuna, lét
hann þá ákveðnu ósk í ljósi að
ráðherrar og aðrir ráðendur A1
þýðuflokksins syðra létu oftar
sjásig hér norðan heiða en ver-
ið hefði hingað til — og undir
þá ósk eða áskorun vill AM
ákveðið taka.
Það er eðli og aðall vísindanna að leita að
staðreyndum og bera virðingu f yrir þeim
Lokaorð Steindórs Steindórssonar skólameist-
ara við vígslu hins nýja skólahúss, Möðruvalla
ÉG VIL endurtaka þakkir mín-
ar til hæstvirts menntamálaráð-
herra fyrir hlut hans að bygg-
ingu þessa húss. Það er ekki
ofsagt, að góðvild hans, skiln-
ingur og áhugi á framkvæmd
þessa verks hefir ráðið þar
úrslitum. Einnig vil ég færa
fjármálaráðherra þakkir fyrir
ágætan hlut hans að því máli,
svo og fjárveitingarvaldi Al-
þingis. Með tilkomu þessa húss
er brotið blað í sögu skóla vors,
og má það verða upphaf nýs
þáttar í starfi hans, ef rétt er á
haldið.
Þegar ég hóf hér starf sem
kennari í náttúrufræði fyrir
nær fjór.um tugum ára, var það
draumur minn, að hér mættu
skapast skilyrði sem hagkvæm-
ust þeirri kennslu. Sá draumur
hefir nú ræzt, miklu glæsilegar
en ímyndunarafl mitt hefði þá
getað gert sér vonir um. Ég
fagna því innilega, að eftirmenn
mínir í því starfi skuli fá notið
þess, þótt ég sjálfur geri lítið
meira en horfa inn í fyrirheitna
landið. Og þetta nær ekki ein-
ungis til náttúrufræðikennar-
anna, heldur allra þeirra, sem
við raunvísindakennslu fást í
þessum skóla.
Alkunnugt er, hversu raun-
vísindin fylla sífellt meira og
meira rúm í lífi mannanna. Hin
öra tækniþróun hefir gjörbylt
lífi og lífsviðhorfum mannsins
á fáum áratugum. Vér stöndum
agndofa gagnvart afrekum eins
og nýlega afstaðinni tunglför,
og vér vitum vel, að í þeirri
hörðu baráttu, sem háð er gegn
hungri og sjúkdómum á jörð-
unni, þá er það aukin þekking
á lögmálum náttúrunnar, sem
ein gefur oss vopn í hendur til
þess að vinna sigur í því stríði,
eða að minnsta kosti tálma því
að ástandið versni. Og í hinu
litla þjóðfélagi voru sjáum vér
það betur og betur með hverj-
um degi, að til þess að vér fáum
lifað og haldið sæti voru, sem
sjálfstæður aðili í samfélagi
fijálsra þjóða, verðum vér um
ars vegar stefnu hugvísindanna,
húmanistisku leiðina, og raun-
vísinda- og tæknileiðina. Hér
er hvorki staður ná stund til að
gera þar samjöfnuð, enda tel ég
að þessar stefnur báðar geti
fylgst að og stutt hvor aðra. Og
illa væri þjóð vorri farið og
hverri þjóð annarri, sem missti
sjónar á hinum húmanistisku
fræðum, menningar- og sið
^ ................................. ^
Viðbygging við bæði elliheimilin er þegar hafin
Að ræðuliöldum Ioknum bauð Steindór Steindórsson skólameist-
Knýjandi nauðsyn, sem eigi var hægt að fresta
í FYRRI VIKU kallaði stjórn
Elliheimilis Akureyrar blaða-
menn á sinn fund að Hótel
Varðborg ásamt forstöðukonu
Elliheimilis Akureyrar, frú Sig-
ríði Jónsdóttur, og framkvæmda
stjóra Elli_ og dvalarheimilisins
i Skjaldarvik, Jóni Kristinssyni.
Formaður elliheimilisstjórnar,
Bragi Sigurjónsson, hafði orð
fyrir fundarboðendum og rakti
starfssögu hinna tveggja elli-
heimila og drap á þá knýjandi
nauðsyn er ræki á eftir stækk-
un þeirra — og upplýsti að bygg
ingárframkvæmdir væru þegar
hafnar á báðum stöðunum.
Viðbyggingin við Elliheimili
Akureyrar á að rúma 30 vist-
menn> en auk þess á að bæta
aðstöðu vistmanna og starfs-
fólks stórlega. Má geta þess að
núverandi húsnæði rúmar í
réttu lagi ekki nema 30 vist-
menn, en samkvæmt upplýsing
um forstöðukonunnar eru þar
nú 39 vistmenn, jafnvel skrif-
stofa forstöðukonunnar hefir
verið tekin undir vistrúm og
kvað forstöðukonan langan bið-
lista vera fyrir hendi frá fólki
er óskaði eftir dvöl á Elliheimil
inu, sem því miður væri ekki
hægt að sinna fyrr en nýbygg-
ingin væri orðin að veruleika.
Bragi sagði að viðbyggingin
væri teiknuð af Jóni Ágústssyni
byggingarfulltrúa og Ágústi
Berg arkitekt bæjarins. Stærð
nýbyggingarinnar er 2924 rúm-
m. og er 2 hæðir. Framkvæmdir
hófust 14. júlí sl og annast fram
kvæmdirnar Konráð Árnason
húsasmiður og Bjarni Rósants-
son múrarameistari. Stefnt er
að því að viðbyggingin verði
fokheld í haust, en áætlað er að
(Framhald á blaðsíðu 7).
ari með léttleika í svip og fasi gestum að ganga um salarkynni
hinna nýju Möðruvalla á meðan veitingar verði framreiddar. Á
mj’ndinni má líta ásamt skólameistara menntamálaráðherra og frú
hans, Guðrúnu Vilmundardóttur.
alla hluti fram að treysta grund
völl menningar vorrar og
mennta.
Margt er nú rætt um þá tvo
farvegu menningarinnar, ann-
ferðigildi þeirra. En jafnvíst er
það, að til þess að þjóðfélag vort
fái staðizt, og hér skapist mögu-
leikar, til að iðka vísindi og list-
(Framhald á blaðsíðu 5)
Loítmynd er sýnir glögglega staðsetningu helzta menntaseturs Akureyringa og annarra Norðlendinga. — Örin er sjást mun á myndinni
hendir á Möðruvelli, hið nýja og stílhreina hús raunvísindadeildar Menntaskólans á Akureyri. — Allar myndir í samhandi við þcnnan
norðlenzka merkisathurð tók Matthías Ó. Gestsson.
Ræða menntamálaráðh. við vígslu Möðruvalla á bls. 5
Leiðarinn: STÉTT MEÐ STÉTT