Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 11
Hlin
9
andi kvenfjelag á Norðurlandi er „Kýrábyrgðarfjelag
Keldhverfinga", stofnað 1885.
Samband Skagfirskra kvenna. (Stofnað 1943). Formað-
ur frá byrjun Rannveig H. Líndal, Svalbarði við Eyja-
fjörð. (Fjelagsdeildir 13. Meðlimir 225). — Þriðja elsta
kvenfjelag Norðurlands er: Hið skagfirska kvenfjelag,
Sauðárkróki, stofnað 25. ágúst 1895.
Samband eyfirskra kvenna (Út-Eyjafjörður). (Stofnað
1945. Formaður frá byrjun Þóra Stefánsdóttir, Hjalteyri.
Fjelagsdeildir 8. Meðlimir 418).
Kvenfjelagasamband Strandasýslu. (Stofnað 1948). For-
maður Ragnheiður Lýðsdóttir, Kirkjubóli. (Fjelagsdeild-
ir 6. Meðlimir 121).
Kvenfjelagið „Framtíðin“, Akureyri. (Stofnað 13. jan.
1894. Annað elsta starfandi kvenfjelag á Norðurlandi).
Formaður Gunnhildur Ryel, Kirkjuhvoli, Akureyri.
(Fjelagar 91). Fjelagið hefur á seinni árum unnið ósleiti-
lega fyrir stofnun Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og
vinnur nú að stofnun Elliheimilis.
Kvenfjelagið „Hlíf“, Akureyri. (Stofnað 1907). Formað-
ur Elinborg Jónsdóttir, Munkaþverárstræti 38, Akureyri
(Fjelagatala 105). Fjelagið hefur undanfarandi ár unnið
að því að koma upp dagheimili fyrir börn. Tók heimilið
til starfa sumarið 1950. — Nafn heimilisins er „Pálmholt".
Verkakvennafjelagið „Eining“, Akureyri. (Stofnað
1915). Formaður Elísabet Eiríksdóttir, Þingvallastræti
14, Akureyri. (Fjelagatala 225).
Það eru þá upptalin samtök þeirra kvenna, sem eru í
Kvenfjelagasambandi íslands (K. í.), sem stofnað var
1930. — Á því þingi mæta fulltrúar af öllu landinu, annað
hvort ár. — Þau þing hafa verið haldin í Reykjavík eða í
nágrenni bæjarins. — Níunda þingið var háð síðastliðið
sumar. — Formaður er Guðrún Pjetursdóttir, Skólavörðu-
stíg 11, Reykjavík. — Formaður frá stofnun og þar til fyr-
ir 5 árum, eða 17 ár, var Ragnhildur Pjetursdóttir, Há-
teigi, Reykjavfk.