Skutull

Árgangur

Skutull - 28.06.1968, Blaðsíða 2

Skutull - 28.06.1968, Blaðsíða 2
2 SKUTULL Gjöf LionsklÉbsins Skátaþing 1968 haldið á ísafirði Klúbbfélagar við uppsetningu Við hátíðahöldin 17. júní var formlega afhent gjöf Lionsklúbbs Isafjarðar til bæjarins, sem gefin var í tilefni 100 ára afmæli ísafjarð arkaupstaðar. Sigurður Jóhannsson, banka ritari afhenti gjöfina fyrir hönd klúbbsins en Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd bæjarbúa. Kostnaður við brunninn er rúmlega eitthundrað þús. kr. og er þá ekki reiknað með vinnu klúbbfélaga. Brunninum er komið fyrir á Austurvelli og er vonandi að hann fái að vera í friði, en nokkuð bar á því í upphafi að böm og unglingar gerðust nokkuð nærgöngul. Höfðu ein gosbrunnsins. hverjir fundið upp á því að kasta peningum í brunninn og var ekki laust við að hin nýja 10 kr. mynt freistaði sumra, þar sem hún glamp- aði í sólskininu undir vatns- borðinu. Hleðslan umhverfis sjálfan brunninn bar menjar átroðnings strax fyrsta dag- inn. Vonandi er þetta úr sög- unni og að brunnurinn eigi eftir að vera bæjarbúum og gestkomandi til yndisauka. Sumarleyíi LOKAÐ verður vegna sumarleyfa dagana 15. júlí til og með 5. ágúst. Prentstofan ISRÚN HF. SKÁTAÞING 1968 var haldið í Húsmæðraskólanum á Isa- firði 21. til 23. júní sl. Mættir voru 60 fulltrúar frá 12 skáta íélögum, auk stjómar Banda- lagsins. Einnig voru um 10 varafulltrúar, þannig að alls sátu þingið um 75 manns. Skátahöfðingi, Jónas B. Jónsson, setti þingið föstu- daginn 21. júní kl. 6,00 e.h. Þingforseti var kosinn Jón Páll Halldórsson, félagsfor- ingi Skátafélagsins Einherjar á Isafirði og varaforseti frú Auður Hagalín, félagsforingi kvenskátafélagsins Valkyrjan á Isafirði. Þegar kjörbréfanefnd þings ins hafði lokið störfum, flutti framkvæmdastjóri Bandalags- ísl. skáta, frú Anna Krist- jánsdóttir, starfsskýrslu Bandalagsins fyrir síðast lið- in tvö ár og gerði grein fyrir reikningum Bandalagsins og stofnana iþess. Á þinginu var einkanlega rætt um fjármál B.Í.S. og framtíðarverkefni. Leikför Litli leikklúbburiim er ný- komin úr leikför um landið með liinn vinsæla gamanleik „SEXURNAR“. Alls eru sýningar á leik- ritinu orðnar 27, þar af 8 hér á ísafirði, en í gærkveldi var síðasta sýning á leiknum í Alþýðuhúsinu. Litli leikklúbburinn fékk hvarvetna hinar beztu undir- tektir og verður ekki annað sagt en að hér er um lofsvert framtak áhugamanna að ræða. §7 mpnUR auglýsir CANDY sjálfvirkar þvottavélar VBBURKENND GÆÐI Verð aðeins: kr. 17.765,00 og — 20.265,00. Lítið í sýningargluggann Vestfirðingar! Afgreiðum MOSKVITCH og GAS 69 M jeppa bifreiðar með stuttum fyrirvara. Vinsamlegast gerið pantanir sem fyrst. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Suðurlandsbraut 14 — Sími 38600 Reykjavík. UMBOÐSMAÐUR Á ÍSAFIRÐI: Sigurður Hannesson, Fjarðarstræti 17 Sími 217. STRAUMUR Aðalstræti 20 Sími 321 ísafirði Á laugardagseftirmiðdag skoðuðu þingfulltrúar sýning- una „40 ára skátastarf“ í Skátaheimilinu, en um kvöld- ið héldu ísfirzkir skátar kvöld vöku fyrir gestina í Hús- mæðraskólanum. Á sunnudagsmorguninn var helgistund í Isafjarðarkirkju, þar sem séra Jón Ólafsson, fyrrv. prófastur í Holti, flutti morgunhugvekju, en á eftir flutti dr. Matthías Jónasson, prófessor, erindi, er hann nefndi Gildi persónuleikans. Skátaþinginu var slitið kl. 15,00 á sunnudag, og héldu flestir þingfulltrúar heim þá um kvöldið. □ Knattspyrna Sem kunnugt er héldu ls- firðingar sæti sínu í 2. deild íslandsmótsins í knattspymu, er þeir unnu Siglfirðinga í úrslitaleik um fallið í 3. deild, á Melavellinum í Reykjavík með 5:1. Áður höfðu liðin skilið jöfn. Isfirzka liðið hefir nú leik- ið tvo leiki í 2. deildinni og hefur farið vel af stað. 16. þ.m. lék það við Selfyssinga á heimavelli þeirra og lauk þeim leik með janftefli 1:1. Um síðustu helgi lék liðið svo í Kópavogi við Breiðablik og vann þann leik 2:1 og hef- ur þar með tryggt sér 3 dýr- mæt stig. Næsti leikur liðsins er n.k. sunnudag við Akranes og fer leikurinn fram hér á ísafirði. Fyrir dyrum stendur nú að sækja Siglfirðinga heim og er það liður í hátíðahöldum þeirra, sem fram eiga að fara 6 og 7. júlí n.k. Hafa löngum verið hin ákjósanleg- ustu samskipti á milli ísfirð- inga og Siglfirðinga á sviði íþrótta og er það ánægjuefni að geta sótt þá heim á hinum merku tímamótum í sögu Siglufjarðarkaupstaðar. Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður minnar ÞORBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR Ragnhildur Eiríksdóttir. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Rannveigar Salome Sveinbjarnardóttur tsafirði. Vandamenn. Fyrir veiðimenn: stengur, hjól, girni, spúnar, og margskonar annar veiðibúnaður. Bókaverzlun Jónasar Tómassonar SlMI: 123 OG 205, — PÓSTHÓLF 123 —ISAFIRÐI SKUTULL Útgefandi: Alþýðuflokkurinn í Vestfjarðakjördæmi Ábyrgðarmaður: Birgir Finnsson, Neðstakaupstað Blaðnefnd: Haraldur Jónsson, Sigurður Jóhannsson, Þorgeir Hjörleifsson, Isafirði, Eyjólfur Bjarnason, Suðureyri, Hjörtur Hjálmarsson, Flateyri, Ágúst Pétursson, Patreksfirði. Innheimtumaður: Haraldur Jónsson, Þvergötu 3.

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.