Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 6
 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx 6 Rannsóknarnefnd Alþingis segir illskiljanlegt að Seðla- bankinn hafi ekki tekið traustari veð vegna lána til viðskiptabankanna. Það sé ekki málefnaleg ástæða fyr- ir því að gera það ekki að „rosalega mikið vesen“ hafi verið að taka skuldabréf á pappír. „Það er bara svo rosalega mikið vesen að taka við einhverju sem er fýsískt skuldabréf,“ sagði Sturla Pálsson. framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans, þegar hann var spurður í skýrslu- töku hjá rannsóknarnefnd Alþingis, af hverju bankinn tók ekki traust- ari veð fyrir lánum sínum til við- skiptabankanna en veð í óvörðum skuldabréfum. Tap Seðlabankans við hrun íslenska bankakerfisins nam um 300 milljörðum króna, sem falla á skattgreiðendur. „Veðlán jukust verulega hjá öllum bönkunum þremur eftir að lausa- fjárkreppan hófst haustið 2007. Þróuðust mál þannig að veðlán juk- ust úr því að vera um tveir millj- arðar evra, sem mestmegnis voru frá Seðlabanka Íslands, yfir í það að vera yfir níu milljarðar evra við fall bankanna,“ segir í skýrslu rann- sóknarnefndarinnar. Nærri helm- ingur veðlánanna var frá Seðla- banka Evrópu. Í nóvember 2007 var orðið ljóst að íslensku bankarnir stunduðu í ríkum mæli að gefa út óvarin skuldabréf sem voru seld öðrum fjármálafyrirtækjum, einkum Ice- bank, sem síðan notuðu skuldabréf- in sem veð fyrir lánum frá Seðla- bankanum. „Með slíkum viðskiptum fóru fjármálafyrirtækin í raun í kring- um þá reglu Seðlabankans að lán séu ekki veitt gegn veði í eigin skuldabréfum fjármálafyrirtækis. Þrátt fyrir þessa vitneskju sporn- aði Seðlabanki Íslands ekki við slík- um veðsetningum og reyndi ekki að afla sér traustari veða,“ segir í rannsóknarskýrslunni. Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans, sagði rann- sóknarnefndinni að ekki hefði verið hægt að loka á þessi veð þar sem fréttir um slíkt hefðu orðið bönk- unum að falli. Rannsóknarnefndin segir hins vegar að slíkt hefði verið hægt að gera án þess að það kæmist í hámæli. Bæði Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Lúxemborgar hefðu tvívegis gert breytingar á veðkröf- um gagnvart íslensku bönkunum. Það hefði Seðlabanki Íslands vitað en almenningur ekki. Íslensku bankarnir léku sama leikinn erlendis og hér heima með skipti á verðbréfum gagnvart Seðla- banka Evrópu en voru fljótt stöðv- aðir. Engu síður héldu þeir áfram og náðu að auka veðlánatöku sína ytra um 4,5 milljarða evra í gegn- um dótturfélög. Rannsóknarnefnd- in segir athyglisvert að svo virðist sem Seðlabanki Íslands hafi ekki fylgst með stöðu íslensku bankanna í Seðlabanka Evrópu þótt gefin hafi verið viðvörun í apríl 2008 um end- urtekningu slíkra viðskipta. Rannsóknarnefndin segist ekki fallast á það með Davíð Oddssyni seðlabankastjóra að viðskiptabank- arnir hafi ekki haft aðrar eignir en óvarin skuldabréf til að leggja að veði. „Var því illskiljanlegt að þess skyldi ekki freistað að taka önnur veð í ljósi þess viðhorfs sem uppi var um stöðu bankanna innan og af hálfu bankastjórnar Seðlabankans allt frá því á fyrri hluta árs 2008,“ segir í skýrslunni. „Þá hefði ég allt eins getað farið að loka bönkunum,“ svaraði Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðla- bankans, spurður að því hvort ekki hefði komið til greina að taka önnur veð frá bönkunum. „Kjallarinn í Seðlabankanum er fullur af hand- hafaskuldabréfum,“ bætti Sturla og útskýrði að betra hefði verið að taka við veðum sem hægt var að taka við rafrænt. Þessa skýringu telur rann- sóknarnefndin ekki duga. „Ekki verður á það fallist að það geti talist málefnalegar ástæð- ur þess að ekki var leitað eftir haldbetri veðum að það hafi verið „rosalega mikið vesen að taka við einhverju sem er fýsískt skulda- bréf“ enda var það beinlínis hlut- verk stofnunarinnar að huga að veðtryggingum sínum á hendur fjármálastofnunum. Tekið er fram að Seðlabankinn hafi loks um miðjan júlí 2008 sent bönkunum bréf um að engin ný óvarin skuldabréf yrðu samþykkt sem veð nema að undangenginni sérstakri athugun. Rannsóknar- nefndin segir bankann þó ekki hafa fylgt þessari stefnubreytingu „að neinu ráði“. Í andmælabréfi sínu til rannsókn- arnefndarinnar segir Davíð Odds- son „hugleiðingu“ hennar vera „eftirá speki“. Ekki sé tekið neitt mið af því hvaða aðstæður voru uppi síðasta eitt og hálfa árið fyrir hrun bankanna. „Ef Seðlabanki Íslands hefði einn banka þrengt kröfur sínar um veð við þessar aðstæður til þess að hann sjálfur tæki litla eða enga áhættu af tilraunum til að fleyta eigin bankakerfi í gegn- um brimskaflana þá hefði með réttu mátt áfellast bankastjórnina og velta fyrir sér eftir á hvort hann hefði átt þátt í að flýta falli íslenska bankakerfisins,“ segir Davíð. gar@frettabladid.is Seðlabanki lagði allt undir í bankaspilinu DAVÍÐ ODDSSON STURLA PÁLSSON SEÐLABANKI ÍSLANDS Kjallarinn er sagður fullur af vörubrettum með handhafa- skuldabréfum. Davíð Oddsson, þáverandi seðla- bankastjóri, hljóðritaði án heimild- ar trúnaðarsamtal sitt við breska seðlabankastjórann, Mervyn King, í byrjun október 2008. Davíð sagði ráðherrum í ríkis- stjórninni frá símtalinu við King á fundi í ráðherrabústaðnum 4. okt- óber 2008. Í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis er vitnað til lýs- ingar Árna Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, af fundinum. Af henni er ljóst að skiptar skoðanir voru meðal fundarmanna í ráð- herrabústaðnum um það hvernig túlka bæri orð Mervyns King. „Miðað við enska textann fannst mér Davíð leggja of mikið upp úr orðum Mervyns King, að hann væri að leggja blessun sína yfir það sem við værum að gera,“ segir Árni. Í skýrslunni segir að Davíð hafi ekki í upphafi símtalsins óskað leyfis Kings fyrir því að hljóðrita það. „Í endurritinu kemur einnig fram að Davíð hafi sérstak- lega nefnt að um trúnaðarsamtal væri að ræða, samanber orð hans („because we are talk- ing 100% in secrecy and pri- vate“ [því þetta er einkasamtal milli okkar og með hundrað pró- sent leynd]), og að Mervyn King hafi játað því,“ segir rannsóknar- nefndin sem gaf King færi á að tjá sig um hugsanlega birtingu endur- ritsins. Í svari Seðlabanka Bretlands segir að hljóðritunin gangi gegn venjum í samskiptum milli seðla- banka og að í samtalinu hafi komið fram viðkvæmar upplýsingar um margvíslega banka. Þess vegna leggist Mervyn King gegn birtingu þess. - gar Símtal Davíðs Oddssonar við seðlabankastjóra Breta: Hljóðritaði án leyfis MERVYN KING ÍS LE N SK A SI A. IS M SA 4 86 72 0 2/ 10 á 1 lítra Kókómjólk FUNHEITT TILBOÐ Nýtt! Endurlokanlegar umbúðir HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA / WWW.N1.IS SÉRFRÆÐINGAR Í HJÓLBÖRÐUM LÁTTU OKKUR SJÁ UM DEKKIN FYRIR ÞIG Meira í leiðinni 15. APRÍL NAGLANA AF! „Ég hélt fyrst að hann væri að grínast,“ segir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um það þegar Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði honum frá því að ákveðið hefði verið að lækka stýrivexti úr 15,5 pró- sentum í 12 prósent. Upplausnarástand var í Seðlabankanum fyrstu dag- ana í október 2008. Tilkynning um risalán frá Rúss- um sem enginn fótur var fyrir og misheppnuð tilraun til að festa gengi krónunnar skapaði ringulreið. Þrátt fyrir vinnureglur þar um höfðu bankastjórarnir sér- fræðinga sína og næstráðendur lítt með í ráðum. „Þetta var algjörlega stjórnlaust,“ segir Arnór sem kallaður var til Davíðs til að heyra um vaxtaákvörð- unina. „Mér var tilkynnt sú ákvörðun fimm mínút- um áður en hún fór á vefinn.“ Þegar Arnór áttaði sig á að Davíð væri ekki að grínast var honum öllum lokið. „[Ég] vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta,“ segir Arnór sem nú er aðstoðarbankastjóri Seðla- bankans. „Bankinn var bara hreint út sagt bara stjórnlaus,“ segir Þórarinn G. Pétursson, hagfræðingur hjá bank- anum, sem kveðst hafa ritað í dagbók sína þann dag sem ákveðið var að festa gengið með einhverri tölu „út í bláinn“ sama dag og sagt var frá Rússalán- inu: „Enn eitt ruglið.“ Þórarinn segir að Arnór hafi verið gjörsamlega niðurbrotinn. „Þetta var algerlega skelfilegt.“ - gar Næstráðendur lýsa algeru upplausnarástandi í Seðlabankanum í október 2008: Hélt að Davíð væri að grínast

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.