Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 19 Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla Íslendinga afsökunar á mínum þætti í eigna- og skuldabólunni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Ég bið ykkur afsökunar á andvaraleysi gagn- vart þeim hættumerkjum sem hrönnuðust upp. Ég biðst afsök- unar á að hafa ekki auðnast að fylgja hugboði mínu þegar ég þó kom auga á hættuna. Ég bið ykkur afsökunar. Ég fagna útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Ég kaus að tjá mig ekki mikið um gang mála á meðan vinna nefndarinnar stóð yfir en nú þegar henni er lokið tel ég rétt gera grein fyrir mínum málum. Fyrst af öllu vil ég hér og nú gangast við augljósum mis- tökum mínum og biðjast afsök- unar á þeim. Vissulega get ég gert athugasemdir við margt af því sem í skýrslunni stendur og að mér snýr og mun ég gera það á öðrum vettvangi. Niðurstaða rannsóknarnefndarinnar er hins vegar alveg skýr. Eigna- og skuldabólan, sem reis líklega hærra á Íslandi en á nokkru öðru byggðu bóli, og hrun fjármálakerfis og gjaldmið- ils landsins í kjölfarið, afhjúpa með afgerandi hætti veikleika íslensks efnahagslífs. Gallarn- ir eru svo augljósir og djúp- stæðir að dapurlegt er að heyra menn halda því fram að allt sem að þeim sneri hafi verið í allra besta lagi. Ekkert hafi mátt gera betur. Slíkar yfirlýsingar í rústunum miðjum bera vott um sama ábyrgðarleysið og leiddi til hrunsins. Ég get sjálfur haldið því fram að ég hafi á hverjum tíma tekið ákvarðanir sem ég taldi skyn- samlegar og réttar og ég tel víst að ég hafi engin lög brotið. Í þröngum skilningi hef ég því allt mitt á þurru. En þegar ég lít í kringum mig og sé afleiðing- ar hrunsins þá get ég ekki varist sjálfsásökunum. Ég hefði átt að hafa skarpari dómgreind og ég hefði átt að hafa einbeittari vilja til að axla ríkari ábyrgð á hvert stefndi í íslensku viðskiptalífi. Eins og lesa má í skýrslunni breyttist rekstrarumhverfi bank- anna um og uppúr 2006. Fram að þeim tíma var nánast ótakmark- aður aðgangur að ódýru lánsfé í heiminum. Þess sáust merki á Íslandi. Fyrirtæki, sveitarfélög, opinber fyrirtæki og heimili söfn- uðu upp skuldum. Þetta innflæði fjármagns gaf því skakka mynd af velsæld í samfélaginu. Á þess- um tíma urðu til og efldust eign- arhaldsfélög, sem þöndust út í krafti ótakmarkaðs lánsfjár, söfn- uðu miklum eignum og gríðarleg- um skuldum. Þegar fór að leka úr íslensku bankabólunni kom í ljós að íslenska efnahagskerfið var komið að fótum fram. Bankarn- ir þoldu ekki fall ofurskuldsettra fyrirtækja. Minnstu áföll hefðu feykt kerfinu öllu um koll. Þetta kerfi hékk þó uppi í rúmt ár áður en það hrundi í október 2008 vegna lausafjárþurrðar. Allir lögðust á eitt að reyna að halda kerfinu gangandi í von um að ytri aðstæður breyttust til batnaðar, einhverjar lausn- ir fyndust eða ástandið á láns- fjármörkuðum skánaði skyndi- lega. Auðvitað var ástandið verra en svo að nokkur einn aðili réði við það. En því miður auðnað- ist engum þeirra sem stóðu og horfðu á að draga fram augljósa sameiginlega hagsmuni og vinna að því að ná samstöðu allra í baráttunni gegn þessum vanda. Hann varð því sífellt stærri og óviðráðanlegri. Við í viðskiptalífinu biðum eftir lausnum og forystu frá stjórnvöld- um. Án efa hafa stjórnmálamenn- irnir beðið eftir að við kæmum með lausnir. Þegar á reyndi hugn- aðist stjórnmálamönnunum ekki leiðirnar sem við vildum fara og við skildum ekki hvert stjórnvöld vildu stefna. Slíkt ástand þarf ekki að koma á óvart þegar órói og óvissa er ríkjandi. En við slík- ar aðstæður verður fólk að stíga fram, hætta að líta eingöngu til Við vorum miklu færri sem gátum haft bein áhrif á stefnu stærstu fyrirtækja eða stofnana samfélagsins. Ég var einn þeirra sem var í hvað bestri aðstöðu til að hafa áhrif á gang mála. Sú staða sem nú er uppi segir allt um hvernig mér tókst til. 5.000 umslög af heppilegri stærð. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA 2.000 bæklingar með afar djúpum pælingum. Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is TÖKUM NOTUÐ VEL MEÐ FARIN HJÓL UPPÍ NÝ SKIPTIMARKAÐUR MEÐ NOTUÐ REIÐHJÓL 19.995 58.995 69.995 BARNAHJÓL VERÐ FRÁ PL 500 20% AFSLÁTTUR Í APRÍL AF AUKABÚNAÐI Á HJÓLIN Ég bið ykkur afsökunar eigin hagsmuna og vinna saman. Okkur auðnaðist það ekki. Enginn steig fram og tók af skarið. Allir biðu eftir hinum. Ég sé nú að það sem ég þó reyndi að gera var ekki alltaf hið rétta eða var of lítið og kom of seint. Ég vildi brjóta upp veik- leika bankanna með því að ráða útlenda og reynslumikla banka- menn til Straums. Hugmyndin var að þeir myndu lækna Straum af „íslensku veikinni“ og taka í kjölfar sameiningar við stjórn Landsbankans. Með þessu vildi ég freista þess að draga bankana út úr þröngum og fámennum hring íslenskra viðskipta. En tíminn hefur leitt í ljós að aðgerðir mínar voru of veikar og komu of seint. En ég ætla ekki að bera blak af ákvörðunum mínum eða aðgerðaleysi. Hver Íslending- ur ber ábyrgð á eigin fjármálum og situr uppi með þær ákvarðan- ir sem hann tók. Ég er þar engin undantekning. Ég er nú að vinna að uppgjöri skulda minna og mun gera betri grein fyrir því síðar. Ljóst er að þótt miklar eignir mínar renni til lánardrottna mun ég jafnframt starfa í þeirra þágu um ókomin ár, þar til ég hef að fullu gert upp við þá. Ég er stað- ráðinn í að ljúka því verki með sóma. Þótt hver og einn beri ábyrgð á sínum fjármálum voru flest- ir í þeirri aðstöðu að hafa lítt um þróun mála að segja, en verða að búa við afleiðingarnar. Við vorum miklu færri sem gátum haft bein áhrif á stefnu stærstu fyrirtækja eða stofnana samfélagsins. Ég var einn þeirra sem var í hvað bestri aðstöðu til að hafa áhrif á gang mála. Sú staða sem nú er uppi segir allt um hvernig mér tókst til. Ég bið Íslendinga afsökunar á að hafa ekki staðið mig betur. Björgólfur Thor Björgólfsson kaupsýslumaður Efnahagshrunið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.