Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 150
144
BÚNAÐARRIT
Starfsskýrsla fulltrúa landgrœSslustjóra
Undirritaður gefíiidi störfum landgræðslustjóra í janúar
til marz 1973. Hinn 1. ágúst 1973 var ég skipaður fulltrúi
landgræðslustjóra og lét })á um leið af störfum lijá Land-
námi ríkisins, en gegndi áfram störfum lijá Fóður- og fræ.
framleiðslunni sem stjórnarformaður og framkvæmdar-
stjóri. Landgræðslan hefur aðstöðu lijá Landnámi ríkisins,
og lief ég skrifstofuaðstöðu þar, og mun svo verða fyrst um
sinn, ]>ar sem ég lief búsetu enn sem komið er í Reykjavík,
því að þrátt fyrir góða meiningu um að staðsetja stofnanir
úti á landsbyggðinni, virðist nokkuð skorta á skilning hjá
fjárveitingarvaldinu á því, að aðstaða þarf að vera fyrir
starfslið, hvað viðkemur liúsnæði á staðnum, einnig virð-
ast menn halda, að ekki þurfi mikla skrifstofuaðstöðu, ef
stofnanir séu með slarfsemi sína úti á landi.
Eins og áður er getið, gegndi ég störfum landgræðslu-
stjóra í f jarveru Sveins Runólfssonar í janúar til marz 1973.
Það kom því í niinn hlut að undirbúa og taka á móti fé
frá Vestmannaeyjum, er ákveðið hafði verið áð flytja það
í Gunnarsholt skömmu eftir, að gos hófst. Fjárhús voru
fyrir hendi í Gunnarsholti til að taka við þessu fé, en tals-
verð vinna var við að rýma þau, þar sem þau voru notuð
til annarra ]>arfa, og einnig þurfti að koma fyrir görðum
í húsunum, þar sem þeir höfðu verið fjarlægðir. Þetta
tókst þó allt, og fyrsta féð kom að Gunnarsholti 26. janúar,
og 28. janúar var húið að flytja 583 kindur, en alls komu
frá Vestmannaeyjum 615 kindur, og var flutningnum að
fullu lokið 2. febrúar. Tveir rnenn frá Vestmannaeyjum,
]>eir Jón Magnússon og Magnús Pétursson, önnuðust féð
s.l. vetur og Jón í sumar.
Eg vil nota þetta tækifæri til að þakka öllum, sem unnu
á einn eða annan liátt að þessu, en framkvæmd þessara