Fréttablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Fimmtudagur skoðun 20 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Gönguskór 23. júní 2011 144. tölublað 11. árgangur GÖNGUSKÓRFIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 • KYNNINGARBLAÐ Verslunin Útilíf býður upp á gönguskó frá fjölmörgum framleiðendum eins og Meindl, Trezeta, Lowa, Scarpa og TNF. Starfsfólk verslunarinnar er auk þess sérþjálfað til þess að veita fólki aðstoð við val á skóm. VAL Á SKÓM MIÐAR VIÐ ÞARFIR„Það er mjög mikilvægt að fólk velji gönguskó sem passa, bæði fæti þess og þeirri tegund af göngum sem það stundar,“ segir Helgi Ben, vörustjóri í Útilífi, og heldur áfram. „Við tölum oft um tvo flokka af gönguskóm og oft þarf fólk að eiga mismun-andi gerðir ef það gengur mikið. Fyrstu skórnir eru léttir og mjúk-ir og það er gott að ferðast í þeim og ganga í á léttum göngustíg-um. Þá eru það hálfstífir skór, oft úr leðri og fóðraðir með Gore-Tex sem henta mjög oft vegna þess að aðstæður krefjast þess, bæði landslag og veðrátta hér á landi. Þetta eru vel vatnsvarðir skór með grófari og stífari sóla, til þess að fá gott grip. Þeir eru einnig með góðum ökklastuðningi og hægt er að nota á þá mann-brodda.“ AÐ KAUPA GÖNGUSKÓ OG MÁTAHelgi segir að fólk eigi að kaupa skó miðað við notkun. „Það er best fyrir fólk í leit að gönguskóm að fara í verslun sem hefur nóg úrval, eins og við höfum í Útilífi, máta hinar ýmsu tegundir og leita ráða hjá afgreiðslufólki sem hefur þekkingu á gönguskóm. Ef það er óöruggt um hvers konar gerð henti því er öruggara að kaupa skógerð-ina fyrir ofan því hana er frekar hægt að nota við mismunandi að-stæður.“ Helgi bendir einnig á að sokkarnir séu mikilvægir. „Í gönguferðum eru notaðir þykkari sokkar en við notum dags daglega og gjarnan úr ullar-blönduðum efnum, því að tilgangurinn er sá að losa raka frá fætinum. Göngu-sokkar eru einnig eins og demp-arar en þeir eru þykkari undir il og hæl. Þeir eyðast og því þarf að skipta þeim út þegar þeir missa eiginleikana. Varðandi stærðina á gönguskónum þá þarf fólk oft-ast að taka ½ -1 númeri stærra af þeim en venjulegum götuskóm. Mikilvægt er að gott rými sé fyrir tær, en jafnframt þarf hællinn að vera fastur í skónum.“ MEÐFERÐ OG VIÐHALDGóð meðferð og viðhald á skónum er mjög mikilvægt. „Það þarf að gæta þess að bera á leður og yfir-efni með til þess gerðum efnum sem vatnsverja og næra leðrið. Nefna má sérstaklega úrval af hent-ugum efnum frá Grangers. Þá þarf að fylgjast með sólanum, því að með tímanum slitnar hann og eyði-leggst og þá þarf að skipta um skó, þar sem það getur reynst hættulegt þegar sólinn hættir að grípa.“ „Meindl-skórnir eru framleiddir í Suður-Þýskalandi við rætur Alpanna og eru í sama klassa og Mercedes Benz og BMW,“ segir Helgi og brosir. „Við í Útilífi erum búin að vera með þetta skómerki í um 25 ár og það hefur mælst mjög vel fyrir hjá Íslendingum, enda er þetta úrvals framleiðandi. Meindl hefur komið sérstaklega vel út í öllum samanburðarprófunum og hefur hvað besta umtalið í þessum geira. Meindl á sér um 300 ára gamla sögu og notar fyrirtækið aðeins gæðaefni og frágangurinn hjá því er til fyrirmynd ar. Sniðið á skónum h SKÓRNIR FRÁ MEINDL „Við tölum oft um tvo flokka af gönguskóm og oft þarf fólk að eiga mismunandi gerðir ef það gengur mikið,” segir Helgi hjá Útilíf. MYND/STEFÁN Sérþekking á gönguskóm mikilvæg Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Versace tískumerkið er í uppsveiflu þessa dagana. Lady Gaga klæddist fötum frá merkinu í nýjast tón-listarmyndbandi sínu, Edge of Glory, og í nóvemb r kemur í verslanir ný lína frá Versace fyrir H&M. Þrír strákar sýna lesendum uppáhaldssólgleraugun sín nú í sumar teg.4500 - minimizer í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.990,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur N Ý K O M I N N A F T U R Ný kynslóð Rafskutlur -frelsi og nýir mögu Einfaldar í notkun og hagkvæmar í rekstri Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 SUMARÚTSLAN HAFIN Málari eilífðarinnar Ragna Sigurðardóttir rýnir í glæstan feril Georgs Guðna og metur áhrif hans. menning 32 TÓNLIST Pétur Ben, Toggi, Svav- ar Knútur og Matthías Baldurs- son ætla að frumflytja eigin lög við sálma Sigurbjörns Einarssonar á tónleikum í Lindakirkju 30. júní. Tón- leikarnir verða haldnir í tilefni þess að biskup- inn fyrrver- andi hefði orðið 100 ára þennan sama dag. Lag Togga, sem samdi Þú komst við hjartað í mér, er við sálminn Hjá Guði og var hann ekki lengi að hrista það fram úr erminni. „Ég samdi það bara um kvöldið og tók það upp á símann minn,“ segir Toggi, sem er sjálfur ekki trúaður maður. - fb / sjá síðu 50 Popparar á kirkjutónleikum: Lög við sálma Sigurbjörns Slær í gegn á netinu Páll Óli Ólason er nýjasta stjarnan á Flick My Life. fólk 50 Mörg járn í eldinum Gígja Ísis Guðjónsdóttir vinnur að því að rannsaka og þróa hinn íslenska sauðskinnsskó. allt 2 Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 ÁFR BÆRT TILBOÐ ELDHÚSVASKUR INTRA - TEKA UNIVERSO 100D - 790 X 500 MM Tilboðsverð kr. 18.900,- STJÓRNMÁL Alþingi mun hætta að úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga á næsta ári. Styrkirnir nefnast safnliðir á fjár- lögum, en þeir nema nú 759 millj- ónum króna frá þinginu auk 653 milljóna sem koma frá ráðuneyt- um, að sögn Oddnýjar G. Harðar- dóttur, formanns fjárlaganefnd- ar. Framvegis mun þingið aðeins ákveða hversu háar upphæðir renna til einstakra málaflokka en láta lögbundnum sjóðum, sveitar- félögum, ráðuneytum og fleirum eftir að úthluta styrkjum. Safnliðirnir hafa verið gagn- rýndir sem kjördæmapot og „gamaldags fyrirgreiðslufyrir- komulag,“ eins og Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylk- ingarinnar orðaði það í fyrirspurn um safnliði á síðasta ári. „Allir flokkar hafa gagnrýnt þetta og okkur fannst tími til kom- inn að gera breytingar á þessu,“ segir Oddný G. Harðardóttir. Hún segir að þar sem bæði Alþingi og ráðuneytin hafi úthlutað styrkjum hafi það stundum gerst að sömu aðilarnir hafi fengið úthlutað styrkjum frá báðum. Mikill tími fjárlaganefndar fer í viðtöl og vinnu vegna styrkjanna. Þannig á það ekki að vera að mati Oddnýjar, heldur á nefndin að geta einbeitt sér að stærri málum. Breytingunum nú er ætlað að gera úthlutanir gegnsærri og auka traust á því hvernig fjár- munum ríkisins er skipt. „Því það hefur verið orðrómur uppi um að þingmenn noti þetta til að hygla sínu kjördæmi og vinum sínum jafnvel.“ Þá eiga breytingarnar að bæta stjórnsýsluna og yfirsýn yfir einstaka málaflokka. „Það er mjög neytendafjandsamlegt að Alþingi skuli vera að úthluta, af því að Alþingi fellur ekki undir stjórnsýslulög.“ Því beri Alþingi ekki að skýra úthlutun, sem ráðu- neyti og sveitarfélög þurfa hins vegar að gera. Oddný var formaður vinnu- hóps fjárlaganefndar sem í sátu auk hennar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þór Saari og Þur- íður Backman. Samstaða var um breytingarnar og verður öllum umsóknum áfram fundinn farveg- ur. Nánari útfærsla á breytingun- um verður kynnt í haust. - þeb Kjördæmapot upp- rætt af fjárlaganefnd Alþingi mun ekki úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga frá og með næsta ári. Styrkirnir hafa verið gagnrýndir sem fyrirgreiðslur og kjör- dæmapot og þótti fjárlaganefnd tímabært að breyta fyrirkomulaginu. Því það hefur verið orðrómur upp um að þingmenn noti þetta til að hygla sínu kjördæmi og vinum sínum jafnvel. ODDNÝ G. HARÐARDÓTTIR FORMAÐUR FJÁRLAGANEFNDAR SUÐURLANDSVEGUR TVÖFALDAÐUR Það er nóg um að vera á Hellisheiði þessa dagana en þar er unnið að fyrsta áfanga við tvöföldun Suðurlandsvegar. Framkvæmdum á að ljúka um miðjan september en áfanginn er á milli Litlu kaffistofunnar og Lögbergsbrekku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Betra að tala saman Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, ræðir um hvað læra má af þátttöku og undirbúningi U-21 árs liðsins á EM í Danmörku. sport 42 NOKKUÐ BJART V-TIL Í dag verður hæg N-læg eða breytileg átt. Bjart með köflum V-til en hálf skýjað eða skýjað annars staðar. Líkur á skúrum síðdegis. Hiti 5-15 stig, hlýjast V-lands. VEÐUR 4 8 10 9 9 9 KJARAMÁL Samninganefndir atvinnuflugmanna og Icelandair funduðu í tólf tíma í gær án þess að ná samkomulagi um kjara- samning. Áfram verður fundað í dag en náist ekki samkomu- lag brestur á yfirvinnubann hjá flugmönnum á morgun. Komi til bannsins mun það raska starfsemi Icelandair tölu- vert og farþegar geta átt von á töfum á áætlun flugfélagsins. Helsta baráttumál flugmanna er aukið starfsöryggi og að dregið verði úr árstíðasveiflum í ráðningum. Segjast þeir frek- ar grípa til yfirvinnubanns en verkfalls til að hlífa ferðaþjón- ustunni yfir sumartímann. Samtök ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af mögulegu yfirvinnubanni. - mþl Áfram reynt að ná sátt í dag: Yfirvinnubann hjá flugmönn- um á morgun TOGGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.