Íslendingur


Íslendingur - 03.03.1977, Blaðsíða 7

Íslendingur - 03.03.1977, Blaðsíða 7
JAkOB 6. PÉTURSSOIM fyrrverandi ritstjóri ÖRFÁ MIIMIMIIMGARORÐ Er ég á öldum ljósvakans heyrði, að öð'lingsmaðurinn Jakob Ó. Pétursson væri geng inn, flugu í hug mér mörg minningabrot frá blaða- menns'kuárum mínum á Akur eyri, einkum þó það, er gaf sólarsýn í amstri dægranna. Mjög ofarlega á því minning- arblaði er nafn Jakobs Ó. Pét ur'ssonar, en hann var ritstjóri ís'lendings fyrstu árin er ég rit stýrði Alþýðumanninum. Mér var vel kunn ritsnilli Ja'kobs og ást hans á íslenskri tungu — og því er eigi að leyna — að nokkur kvíði sótti að mér, þá er að því kaemi að við skipt umst á skoðunum var'ðandi stjórnmál. Jakob þekkti ég eigi persónulega áður og vissi lítt hvern mann hann hafði að geyma, en beinskeyttni hans þá er hann beitti stílvopni er hann lenti í orrahríð við and- stæðinga var mér en'ginn leyndardómur og sú stað- reynd að hann var vígfimast- ur þeirra er þá lögðu stund á blaðamennsku á Akureyri. Fljótlega flu'gu nokkrar hnútur á millli okkar Jakobs — en strax var mér Jéttir að finna að Jakob var léttur í til- svörum, glettinn og grómlaus — mér fannst það mikil hug- fró, þvi að sá stílsmáti var mér hugstæðastur — og vona ég að Alþýðumaðurinn beri þess merki frá þeim tima. FljótUega varð ég svo gæfu- samur að kynnast Jakobi per- sónulega — og þau kynni urðu mér eigi vonbrigði og óhikað játa ég það, að Jakob er sá persónuleiki sem er mér hvað hugstæðastur frá blaða- mennskuárum mínum á Akur eyri. Mér er engin launung á því að fljótlega eftir að per- sónuleg kynni okkar hófust veitti Jakob mér oft drengi- lega liðveiölu, sem ég mun aldrei gleyma. Ég hafði í blað- inu fastan eindáíik er ég nefndi „Stakan dkkar“. Oft reyndist mér mögur uppsker- an á þeim akri, því að ærið oft bárust fáar stökur, en kvöld eitt hringdi Jakob í mig og bauð mér stökur, sem ég þáði með þökkum — og þetta urðu ekki einu stökurnar, er hann miðlaði mér — og mér eru enn minnistæð orð hans, þá er ég eitt sinn sótti vísur til hans á ritstjómarskrifstofu íslendings. „Ég hefi reynslu af því, Sigurjón, hve erfitt er á stundum að strita í hlaða- mennsku, einn á báti, en þrátt fyrir það megum við aldrei byrgja sólarsýn í sálarhrói Okkar.“ Egi hætti Jakob að luma að mér stökum þótt hann hætti ritstjórn og tók við forstöðu Fasteignamats r'íkisins — og víst var það meðal við streitu að tylla sér niður á ákrifstofu hans og líta hina falslausu glettni í augum hans — og hlýða á gamanmál. svo mér gleymdist taugaslít- andi auglýsingasöfnun, sem þó var óumflýjanleg nauðsyn. Ég nam hjartahlýju þessa gáfaða manns og skilning á því að mannsfcepnan er eigi gerð úr steinsteypu eða stáli. Þá er ég hripa upp þessi fá- tæklegu kveðjuorð norður í Grímsey minnist ég er við átt um eitt sinn orðræður saman um hið mannlega — að Jakob minntist á Grímsey, en þar var hann eitt sinn skólastjóri. „Þar er gott að vera, bæði hið fu'llkomna og breyska er fall- egt og frjóvgast í fullkomleika hins frumstæða lífs, þess lífs sem við nú erum að glata — og eyjan er griðasíaður þeirra er vilja hugsa.“ Eitthvað á þessa l'eið mælti Jakob — og eigi óraði mig fyrir því þá að ég ætti eftir að gegna hinu sama starfi í eyjunni í norðri, er Jalkob kallaði, griðland þeirra er vilja hugsa — og eftir nær 5 vetra dvöl í Grímsey tek ég heils hugar undir þau um- mæii hans. Að lókum, Jakob, þakka ég þér fyrir liðin kynni og þakka vil ég forsjóninni fyrir að leið ir ok'kar lágu saman. Með frá- fa'lli þínu hefur Akureyri að baki séð mi'kilhæfum dreng- skaparmanni. Heil er þökk mín til þín — og ég bið guð að blessa ástvini þína. Sigurjón Jóhannsson. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA lónaðardeild ■ Akureyri ATVIIMNA Viljum ráða nú þegar starfsfólk á skinnadeild okkar að Óseyri 1, á dagvakt. Uppl. gefur Ingólfur Ólafsson sími 2-19-00 (56). Fataverksmiðjan Hekla. Glerárgata 28 • Pósthólf 606 • Sími (96)21900 Jeppamenn Fundur verður haldinn hjá ldúbbnum „4 X 4“ á Akureyri að Þingvallastræti 14, (á móti sundlaug- inni) föstudaginn 4. mars kl. 20.30. Félagar mætið og takið nýja félaga með. Allir velkomnir. Stjórnin Læknaritari óskast Á handlæknisdeild F. S. A. frá 1. apríl 1977. Góð vélritunarkunnátta og góð móðurmálskunn- átta eru skilyrði. Æskilegt er að umsækjandi hafi æfingu í að skrifa eftir segulbandi og helst einnig eitt norðurlanda- mál og eða ensku eða þýsku. Skriflegar umsóknir ásamt meðmælum og uppl. um fyrri störf, sendist til ritara Gauta Arnþórs- sonar, yfirlæluiis, Handlæknisdeildar F. S. A., sem einnig veitir uppl. um starfið í síma 22100. Handlæknisdeild F. S. A. STÓRSVIGSMÓT - Framhald af bls. 2. 9 ára drengir: sek. Ólafur Hilmarsson 86.7 Smá't'i Kristinsson 91.0 Valur Gautason 92.3 9 ára stúlkur: sek. Katrín Pétursdóttir 115.2 Guðrún Jóna Magnúsd. 121.6 10 ára drengir: sek. Björn Júlíusson 89.0 Jón Björnsson 91.2 Andri Teitsson 91.3 10 ára stúlkur: sek. Anna María Malmquist 93.5 Signe Viðarsdóttir 94.4 Andrea Björnsdóttir 114.2 11—12 ára drengir: sek. Er'ling Ingvason 109.9 Davíð Björnsson 112.7 Pálmi Pétursson 113.6 11—12 ára stúlkur: sek. Hrefna Magnúsdóttir 115.4 Lena Hallgrímsdóttir 117.4 Ingibjörg Harðardóttir 123.7 Handbolti Þór — Fram Framhald af bls. 2. var staðan orðin 13-5 Þór í vil og skoraði Þor'björn 9 af þeim mörkum Þórs. En það sem eft ir var hálfleiksins var ekki heil brú í leik Þórsara, sem virtust vera búnir að vinna leikinn að eigin mati. Framar ar söxuðu á for'skotið og í hálf leik skildu liðin aðeins 2 mörk, 15-12 Þór í vil. í síðari hálfleik komst Fram síðan yfir, en á síðustu mín- útu leiksins var staðan jöfn, 21-21. Þórsarar fengu dæmt vítakast, sem þeir misnotuðu og Framarar náðu boltanum og skoruðu sigur'm.arkið, loka- staðan 22-21 Fram í vil. Þorbjörn Jensson átti stór- leik með Þórsliðinu og skor- aði 13 mörk. Virtist hann geta skorað þegar honum datt það í hug. Mörk Þórs: Þorbj. 13, Árni 3, Einar 2, og Óskar, Ragnar og Sigtryggur 1 mark hver. Leilkinn dæmdu Ólafur Har aldsson og Stefán Arnaldsson fremur illa. AS IJTSALA - LTSALA Útsalan verður á gamla lagernum, notið tækifærið og gerið góð kaup. . Selt verður meðal annars Teppi- Teppabútar Gluggatjöíd - Gluggatjaldabútar Terylene - Terylenebútar Áklæði - Áklæðisbútar Útsala hefst á Gefjunarvörum mánudag 7. mars og stendur til 11. mars af útsölunni í Gefjun. Lllarverksmiðjan GEFJtlM ÍSLENDINGUR — 7

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.