Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 34

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 34
HODSCHA NASREDDIN Það er haft fyrir satt, að um árið 1400 hafi í Tyrklandi lifað spekingur nokkur með þessu nafni. Fékkst hann bæði við kennslu og prestsskap, og er eftir honum haft ýmislegt spaklegt, sem sagt er að Tyrkinn vitni gjarna í, þegar vel liggur á honum. Svo mikið er víst, að mikill straumur fólks leggur árlega leið sína að gröf Nasreddins, sem er í Akschehir, og er það trú þarlendra manna að sá sem ekki reki upp skellihlátur við gröf þessa spekings, muni rata í ógæfu. En þá eins og nú, var skammt öfganna á milli og þótti speki Nasreddins á stundum jaðra við fíflskap, enda var hann ýmist nefndur spekingurinn eða fíflið. Hér birtast nokkur sýnishorn af svörum og viðbrögðum Nasreddins, eins og vor fyrrverandi óvinur Tyrkinn segir þau nú til dags; 1. Dag nokkurn kom Nasreddin til myllu- húss og hafði með sér poka hálffullan af korni. Þegar hann var þangað kominn byrjaði hann strax að taka handfylli sína úr pokum þeim, sem nágrannarnir áttu geymda í myllunni og láta í sinn poka. Malarinn ávítaði hann harðlega, en Nasreddin svaraði: „Ég er fífl og geri allt, sem mér dettur í hug.“ „Jæja, fyrst svo er,“ svaraði malarinn, „þá geturðu alveg eins látið korn úr þínum poka í poka hinna.“ „Þá væri ég nú reyndar helmingi meira fífl,“ var svar Nasreddins. 2. Nasreddin átti einn asna, og dag nokk- urn týndist hann- Hann leitaði hans lengi, en jafnframt þakkaði hann Allah hárri raustu. Einn nágranni hans spurði hann hvað hann væri að þakká Allah, fyrst hann hefði orðið fyrir þeim skaða að týna hinum dýrmæta asna sínum. Það stóð ekki á svari Nasreddins: „Ég þakka Allah, að ég sat ekki á baki asn- ans, þegar hann týndist. Ef svo hefði verið, þá væri ég vitanlega týndur líka.“ 3. Eina nóttina vaknaði Nasreddin við það, að þjófur var kominn inn í íbúð hans og var að klyfja sig hinum fátæk- legu munum hans og hafa á brott með sér. Nasreddin klæddi sig í skyndi, tók saman það, sem eftir var af munum í íbúðinni og fór á eftir þjófnum. Þegar hann kom að húsinu, sem þjófurinn bjó í, og ætlaði inn, varnaði sá síðarnefndi honum inngöngu og spurði, hvað honum væri á höndum. „Nú,“ svaraði Nasreddjin sakleysis- lega, „ert þú ekki að hjálpa mér að flytja hingað?“ 4. Einn morguninn þegar Nasreddin kom út, mætti hann forvitnum nágranna, sem spurði hann strax hvaða hávaði og læti það hefðu verið, sem heyrzt hefðu frá heimili hans kvöldið áður. 34 ÚTVARPSTÍÐINÐl

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.