Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 19. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is BARACK OBAMA TEKUR VIÐ EMBÆTTI FORSETA Í BANDARÍKJUNUM» 14 Reuters Barack Obama og eiginkona hans, Michelle Obama, veifa til mannfjöldans við þinghúsið eftir að forsetinn hafði svarið eið sem 44. forseti Bandaríkjanna í höfuðborginni Washington í gær. „Erum reiðubúin að taka forystuna á ný “ DÓTTURFÉLAG Glitnis í Noregi, Glitnir Bank ASA, sem var seldur á 300 milljónir norskra króna 21. októ- ber, 5,5 milljarða króna, er nú verð- metinn á um tvo milljarða norskra króna, eða um 36,5 milljarða króna. Því hefur bókfært virði bankans aukist um 31 milljarð króna á þrem- ur mánuðum. Bankinn var á endanum keyptur af 20 sparisjóðum. Sá sem leiddi þær viðræður fyrir hönd kaupendanna heitir Finn Haugan, framkvæmda- stjóri Sparebank 1 SMN sem keypti 25 prósenta hlut í bankanum. Hann er einnig stjórnarformaður trygg- ingasjóðs innstæðueigenda í Noregi sem afturkallaði lánalínu Glitnis og krafðist að bankinn yrði seldur. | 4 Glitnir ASA mun meira virði Seldur á undirverði Mestu mót- mæli frá 1949 Morgunblaðið/Golli Handtökur Um miðjan dag beitti lögreglan piparúða og kylfum til þess að verja Alþingishúsið. Á þriðja tug mótmælenda voru handteknir. MIKILL hiti var í mótmælum fyrir framan Alþingishúsið í allan gærdag og langt fram á nótt. Ætla má að nokkur þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum fyrstu tólf tím- ana sem þau stóðu. Þegar Morgunblaðið fór í prentun á öðrum tímanum í nótt voru innan við þúsund manns á svæðinu. Eru þetta talin mestu mótmæli við Al- þingishúsið síðan inngöngu Íslands í NATO var mótmælt árið 1949. „Við þurfum nýtt lýðveldi,“ sagði Þuríður Einarsdóttir, sem var með- al mótmælenda á staðnum, en í sam- tölum blaðamanna við mótmælend- ur mátti glöggt heyra að vaktin yrði staðin í alla nótt og a.m.k. fram að næsta þingfundi sem boðaður hefur verið kl. hálftvö í dag. Á annað hundrað lögreglumanna stóðu vaktina í gær auk þess sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í viðbragðsstöðu. Ítrekað var reynt að kveikja í Óslóartrénu á Austur- velli en án árangurs. Um miðnættið tókst nokkrum ungmennum að fella tréð og draga það á bál sem logað hafði framan við Alþingishúsið síðan snemma kvölds. Þar brann jólatréð glatt. Á þriðja tug mótmælenda voru handteknir um miðjan dag en öllum var sleppt að loknum skýrslu- tökum. Morgunblaðið/Júlíus Mótmæli „Krafa fólksins er einföld - það vill kosningar. Ef stjórnvöld notuðu eyrun til að hlusta á þessa sterku og einföldu kröfu og sett yrði dagsetning á kosningar, þá myndi almenningur setja þessa orku í annan farveg til þess að undirbúa lýðræðisbyltinguna,“ sagði Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi sem var ein þeirra sem lögðu leið sína niður á Austurvöll í gærkvöldi. Nokkur þúsund manns tóku þátt í heitum mótmælum fyrir framan Alþingishúsið  Mótmælin | 2, 11, 12 og 13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.