Morgunblaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 31
527. og 528. leiksýning Leik-félags Reykjavíkur markavonandi ákveðin tímamót íleikhússögu okkar. Í fyrsta skipti, svo ég muni eftir, bregst ís- lenskt atvinnuleikhús samstundis við atburðum sem eru að gerast í núinu. Inn í oftast óhagganlega verk- efnaskrá hefur annars vegar verið skotið með nánast engum undirbún- ingi tíu mínútna ákalli breska rithöf- undarins Caryl Churchill vegna voða- verkanna í Palestínu og hins vegar er verkefni sem átti að fjalla um far- andverkamenn orðið á mettíma að verki um hrunið. Það verður athygl- isvert að fylgjast með hvernig áhorf- endur bregðast við þessari nýjung. Hvort þetta er upphaf að stærri breytingum á hefðbundnu leik- húsformi okkar og samtali sviðs og áhorfenda? Það eru þaulvanir menn í leik- hústilraunum sem standa að sýning- unni. Tónskáldið Hallur Ingólfsson, leikritaskáldið Jón Atli Jónasson og leikarinn og leikstjórinn Jón Páll Eyjólfsson hafa allir í nokkurn tíma fengist við ýmiss konar andleikhús í póstmódernískum skilningi – þar sem hvorki er hirt um línulega frásögn og hefðbundnar reglur né lögmál Arist- ótelesar og Stanislavskis – og nú stíga þeir saman stórt skref. Sam- kvæmt aldagamalli hefð fá þessir svo- kölluðu aðstandendur sýningar, leik- skáld, leikstjóri, tónskáld, jafnan að rexa í og ráðskast með leikara í tvo til þrjá mánuði, en einungis sjálfir að stíga í eina mínútu á svið í lok frum- sýningar og verða svo að láta sig hverfa úr leikhúsinu, ofurselja það sem þeir oft telja „sitt“ hugverk eft- irleiðis og alfarið leikurum. Þessir að- standendur hafa nú einfaldlega ýtt leikurunum út af sviðinu, enginn flækist þar fyrir þeim lengur, þeir gera þetta bara allt sjálfir! Þó ekki væri nema vegna þessarar uppreisn- ar gegn ofríki leikarans í íslensku leikhúsi, sem margir leikmyndateikn- arar hefðu glaðir tekið þátt í, þessa lævísa brandara, gæfi ég sýningunni fimm stjörnur, væri ég ekki alfarið á móti stjörnugjöf í samskiptum manna. Jón Atli og Hallur komast líka ótrúlega vel frá hinum ýmsu hlut- verkum sínum. Hversdagslegur leik- stíllinn, spuna-ramminn, hentar þeim vel og hugvitssamlega lætur leik- stjórinn – því það er þarna leikstjóri – þegar mest reynir á kunnáttu leik- arans tvo atburði gerast samhliða; mónótónn er brotinn upp af þöglum farsaundirleik. Það stendur glæsikerra á sviðinu þegar komið er inn í salinn. Annars er eins og maður sé staddur baksviðs, Potemkim-tjöld gærdagsins afhjúp- ast: þau eru bara þunnur, illa smíð- aður rammi. Leikmunir eru eins og sóttir eftir hendinni úr leikmuna- geymslunni. Inn kemur m.a. geitin hans Albees orðin að íslensku lambi á eyðieyju og magnarar, hljóðnemar, flatskjáir koma rúllandi beint úr hljóðdeildinni. Leikskráin mín (engar tvær eru eins) er samkvæmt þörf dagsins endurunnin úr dagskrá milli- þings SUS í Eyjum. Þórlindur Kjart- ansson brosir aftan á grein sem sögð er úr ítalska blaðinu íl Manifesto eftir Hauk Má Helgason. Allt vinnur þetta gegn þeirri fortíð sem sviðsetning í leikhúsum raðar oftast upp fyrir áhorfandann: Við „erum hér“ í núi hrunsins, stundum áhorfendur, stundum sem lömb, stundum sem lamað lið í öllu ruglinu, að halda framhjá Smáralind með Kringlunni, góflandi í okkur hamborgurum, gláp- andi á flatskjái. Og þeir eru enn hérna útrásarvíkingarnir, sullandi í sig kókeitrinu, því sem við hellum of- an í börnin áður en þau ná máli, ekki hinu sem er dýrt; plana þemað á næsta afmæli sem toppað geti mannátið síðast, opna sitt innsta eðli fyrir áhorfendum. Og höfðingjar framkvæmdavaldsins eru líka mætt- ir, hátíðlegir eða vææælandi yfir fót- brotum sínum. Húmorinn er oft kol- svartur, svartari en hjá Spaugstofunni, alþýðlegur, eins og hann var framinn á markaðstorgum! Eða eru hirðfíflin mætt á staðinn? Og þar fer Jón Páll, auðvitað, mest á flug. Ég skemmti mér konunglega, þótt skömm sé frá að segja, og var gripin hræðilegri innilokunarkennd, löngun til að flýja andspænis hryllilegri framtíðarsýninni í lokin. Þó var ekki allt jafn nýstárlegt og greiningin gat ef til vill í heild verið skarpari og dýpri. Ég segi, ef til vill, því jafnvel sá sem gerir ríkar kröfur til leikhússins getur varla ætlast til að á þessari stundu – þar sem við erum – geti það frekar en aðrir töfrað fram nothæfar greiningar. Brandara- kallar Þú ert hér „Húmorinn er oft kolsvartur, svartari en hjá Spaugstofunni, alþýðlegur, einsog hann var framinn á markaðstorgum? Eða eru hirðfíflin mætt á staðinn? Og þar fer Jón Páll, auðvitað, mest á flug,“ segir í dómnum. Leikfélag Reykjavíkur Þú ert hér Höfundur: Mindgroup. Leikstjóri: Mindgroup. Leikmynd: Mindgroup. Tón- list: Mindgroup. Lýsing: Mindgroup. Sýningarstjórn: Kári Gíslason. Mind- group: Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jón- asson og Hallur Ingólfsson. Nýja sviðið, föstudaginn 27. mars 2009 kl. 20.00 MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR LEIKLIST Menning 31LEIKLIST MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009 Franski rithöfundurinnMarie Darrieussecq ervinsæll höfundur í heima-landi sínu. Skáldverk hennar hafa hlotið margar við- urkenningar og verið þýdd á mörg tungumál. Sædýrasafnið er fyrsta leikrit höfundar og var það skrifað sérstaklega fyrir Þjóðleikhúsið. Sýningin er unnin í samstarfi við Centre Dramatique National Or- léans/Loiret/Centre og við franska leikstjórann Arthur Nauzyciel sem kom hingað til lands 2007 og setti upp Ímyndunarveikina eftir Molière í Þjóðleikhúsinu. Aðstandendur sýn- ingarinnar koma frá fjórum löndum en verkið verður einnig sýnt síðar í ríkisleikhúsinu í Orléans. Verkið fjallar um tvær fjölskyldur sem neyðast til að dvelja saman á gömlu sædýrasafni sem er í umsjón annarrar þeirra. Tíminn er óræður, getur þó verið í nútímanum eða í ná- inni framtíð. Stríð hefur geisað en óljóst er hvort því er lokið. Fjöl- skyldurnar telja sig hólpnar í bili en ógnin vofir sífellt yfir og óvinir í næsta nágrenni. Matur er af skorn- um skammti og hefur fólkið þurft að leggja sér ýmislegt óætilegt til munns eða selja líkama sinn til að lifa af. Sjálfur söguþráðurinn er óljós. Áhorfendur geta einungis getið sér til um hvað hefur gerst, hvað er að gerast og hvað mun gerast. Þetta er ástand. Í leikskrá segir höfundur að hún hafi skrifað leikritið „… án grein- armerkjasetningar og leiklýsinga, í hálfgerðum stikkorðastíl“ og láti leikstjóra eftir að setja textann á svið. Þessi stikkorðastíll er auðsær. Senur eru stuttar og textinn á þá leið að hann gæti komið hvar sem er í sýningunni. Efni leikritsins er áhugavert, þörf mannsins að lifa af. Textinn er draumkenndur og oft fal- legur. Sjón þýddi verkið í náinni samvinnu við höfundinn og er text- inn alþýðlegur og lítt háfleygur eins og stundum bregður fyrir í franskri nútímaleikritun. En þrátt fyrir áhugavert efni og fagran texta er ýmsu ábótavant ef litið er á sýninguna sem leikverk. Eins og áður sagði er þarna um að ræða ástand eða nánast gjörning og hefur tilraun leikstjórans Arthurs Nauzyciels til að setja þetta í leik- ritsbúning ekki tekist sem skyldi og týnast sumar af hugleiðingum höf- undar í óþarfa umgjörð. Leikarar standa sig með prýði, þó er eins og leikstjórnin dragi úr raunverulegri persónusköpun og textaflutningi. Þar er ekki við leik- ara að sakast. Það sem stendur upp úr er leikur Vigdísar Hrefnu og Ív- ars Arnar. Þeirra leikur er trúastur verkinu að því leyti að hann tengist absúrdismanum sem þarna er á ferð. Einnig er ótrúlegt sæskrímsli, sem leikið er af Damien Jalet, hluti af íbúum safnsins. Frábærar hreyf- ingar þessara persóna, tvíburanna og sæskrímslisins, eru undir stjórn Ernu Ómarsdóttur og má glöggt greina einkenni hennar. Tónlist Barða Jóhannssonar er falleg og ógnvænleg í senn og er hún mjög vel útsett fyrir sýninguna. Leikmyndin er ekki beint fögur. Plasti er komið fyrir um alla veggi og gólf og stór plastkúla er fyr- irferðarmikil á sviðinu, kannski of. Vatn er umtalsverður hluti sýning- arinnar og má vera að plastið og vatnið gefi hugmynd um sæ- dýrasafn. Segja má að Sædýrasafnið sé í senn leikrit og myndlistarsýning. Sem leikrit hefur það vissa ann- marka sem fyrr segir. Ef við lítum hins vegar á hið myndræna má segja að hér sé áhugaverð myndlist- arsýning unnin upp úr hugleið- ingum ágæts höfundar. Um fólk og furðudýr Ljósmynd/Frédéric Nauczyciel Sædýrasafnið „Verkið fjallar um tvær fjölskyldur sem neyðast til að dvelja saman á gömlu sædýrasafni sem er í umsjón annarrar þeirra.“ Þjóðleikhúsið Sædýrasafnið, Marie Darrieussecq Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson, Da- mien Jalet, Elva Ósk Ólafsdóttir, Ívar Örn Sverrisson, Margrét Vilhjálms- dóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Valur Freyr Einarsson og Vigdís Hrefna Páls- dóttir. Leikmynd og búningar: Giulio Lichtner. Lýsing: Scott Zielinski. Tónlist: Barði Jóhannsson. Sviðshreyfingar: Erna Óm- arsdóttir og Damien Jalet. Þýðing: Sjón. Leikstjórn: Arthur Nauzyciel. Frumsýning í Kassanum, föstudaginn 27. mars INGIBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.