Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is einfaldlega betri kostur Smurbrauð m/hangikjöti og kaffi 499,- laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is © IL V A Ís la n d 20 0 9 Komdu og njóttu góðra veitinga Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG krefst þess að stjórnvöld komi heiðarlega fram við þá sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu með þeim og klári þær spurningar sem þar á að svara,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norður- þings og stjórnarformaður Þeista- reykja ehf., um fréttir þess efnis að ríkisstjórnarflokkarnir vilji skoða aðra möguleika en álver á Bakka. Viljayfirlýsing ríkisstjórnar Íslands, Norðurþings og Alcoa um rannsókn- ir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík rennur út 1. októ- ber nk. en forsvarsmenn Alcoa hafa áhuga á að endurnýja hana. Að mati Bergs er það óviðunandi að framlengja ekki þá viljayfirlýs- ingu sérlega í ljósi þess að ríkisvaldið hafi seinkað verkefninu um heilt ár. Með þessu segist hann vísa til úr- skurðar þáverandi umhverfisráð- herra, frá miðju ári 2008, þess efnis að heildstætt mat skyldi fara fram á umhverfisáhrifum vegna fyrirhug- aðs álvers á Bakka. Bendir Bergur á að enn eigi eftir að svara lykilspurn- ingum um nákvæmlega hversu mikla orku verði hægt að afhenda og hve- nær. Hvað er þetta annað? „Við hér á svæðinu höfum lagt okkar metnað og heiðarleika í það að svara þessum spurningum sem lagt var af stað með upphaflega þannig að ákvörðun yrði tekin. Og það er í sjálfu sér merkileg staða ef menn gefa út viljayfirlýsingar um að vinna að hlutum en þeir síðan tafðir af hinu opinbera á markvissan hátt og koma svo þremur árum seinna þegar sveit- arfélag, eins og mitt, er búið að leggja óhemju fjármuni í verkefnið og segja að það eigi að gera eitthvað annað. Þetta eitthvað annað er hlut- ur sem við erum búin að leita að í 20 ár,“ segir Bergur og bætir við: „Það eru fá sveitarfélög sem hafa lagt jafnmikið á sig fjárhagslega miðað við stærð og sveitarfélag Norður- þings í þetta verkefni.“ Aðspurður segir hann sveitarfélagið hafa lagt um einn milljarð af þeim níu sem framkvæmdaaðilar hafa lagt í verk- efnið til þessa. Að sögn Bergs hefur hann óskað eftir fundi með iðnaðar- ráðherra og vonar að það gangi eftir þegar í næstu viku. Krefst heiðarleika  Sakar stjórnvöld um að hafa tafið verkefnið um álver á Bakka um heilt ár  Vill að viljayfirlýsing verði framlengd svo hægt verði að svara lykilspurningum » 16. maí 2006 var skrifað undir viljayfirlýsingu » Lagðir hafa verið 9 milljarðar króna í verkefnið » Sveitarstjórinn vill funda með iðnaðarráðherra ÞEIR smurðu sig í bak og fyrir lögreglumenn- irnir sem syntu Viðeyjarsund í gær til styrktar Sveini Bjarka Sigurðssyni, félaga sínum, sem ný- lega greindist með krabbamein. „Við munum all- ir sigra“ var slagorð dagsins en að loknu sundi tóku kapparnir á móti gestum á Miðbakkanum. Ekki náðu þó allir að ljúka hinni 4,5 km löngu sundleið og voru tveir fluttir á sjúkrahús með of- kælingu. „VIÐ MUNUM ALLIR SIGRA“ Morgunblaðið/Eggert Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is GYLFI Magnússon viðskiptaráðherra segir marga erlenda fjárfesta þreifa fyrir sér um fjárfestingu hér á landi og á hann von á að fleiri fylgi í kjölfar Norð- manna sem hyggj- ast leggja tugi millj- arða í íslenska endurreisn. Morgunblaðið greindi í gær frá áhuga norskra fjárfesta á að setja 20 milljarða íslenskra króna í fjárfestingasjóð sem yrði samvinnuverkefni þeirra og lífeyrissjóðanna. Gylfi segir þetta góðar fréttir. „Það verður mikil þörf á fjármagni í íslenskt atvinnulíf á næstu árum. Ég á von á að ýmsir utan Íslands sjái sér hag í að fjárfesta hér enda skapar svona umrót ekki bara vandamál, heldur líka tæki- færi. Ég býst því við að fleiri fylgi í kjölfarið.“ Hann segist vita að margir þreifi fyrir sér í þessum efnum en hins veg- ar sé ekkert fast í hendi. „Mér þætti þó skrýtið ef ekkert kæmi út úr því. Íslenskar eignir eru afskaplega ódýrar núna fyrir þá sem eru utan landsteinanna með erlent fé, bæði vegna þess að verð á þeim hefur lækkað í krónum og svo hefur krónan lækkað. Þannig að þetta er eiginlega ein- stætt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að fjárfesta hér.“ Íslendingar eigi áfram megnið af atvinnulífinu Hann segir áhugann víða, þó aðallega hjá fjárfestum í nágrannalöndum í norðri og í Evrópu en einnig í Banda- ríkjunum. En er ekki hætta á að of mikið af íslenskum eignum verði selt? „Jú, við þurfum líka að hafa það í huga, en auð- vitað munu íslenskir aðilar áfram eiga megnið af íslensku atvinnulífi, og lífeyrissjóðir munu væntanlega leika þar lykilhlutverk.“ Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, tekur undir þetta. „Það væri óskandi að þeir myndu fjárfesta á Íslandi því við þurfum á því að halda að einhverjir komi með peninga til landsins.“ Býst við að fleiri fylgi í kjölfar Norðmanna Gylfi Magnússon Vilhjálmur Egilsson Einstætt tækifæri þar sem íslenskar eignir eru sérlega ódýrar EKKERT verður af fyrirætlunum um að sameina Háskólann í Reykjavík, Listaháskóla Ís- lands og Háskól- ann á Bifröst. Þetta kom fram í útskriftarræðu Ágústs Einars- sonar, rektors á Bifröst, í gær. Hann sagði ástæðuna þá að stjórn Listahá- skólans væri ekki tilbúin í slíkar við- ræður. Í ræðu sinni gagnrýndi Ágúst stjórnvöld harðlega fyrir metnaðar- leysi í menntamálum þjóðarinnar og benti á að í stöðugleikasáttmála rík- isstjórnarinnar væri hvergi minnst á skóla og menntun. Aðrar þjóðir, s.s. Finnar, hefðu komist út úr svipuðum erfiðleikum með því að setja mennt- un í forgang en ekkert bólaði á slíku á Íslandi. „Metnaðarleysi núverandi og fyrrverandi stjórnvalda í mennta- málum mun verða okkur dýrkeypt og mun dýpka kreppuna og lengja.“ Þá sagðist Ágúst lítið gefa fyrir afsökunarbeiðni þeirra sem ábyrgð bæru á ástandinu og sagði að þá bæri að dæma eftir lögum, sem og siðferðismati þjóðarinnar. „Og sá dómur á að vera harður.“ Ekki verð- ur af sam- einingu Ágúst Einarsson Listaháskólinn ekki tilbúinn í viðræður BETUR fór en á horfðist þegar ung- ur ökumaður velti bíl í Kömbunum í fyrrinótt og festist undir honum. Pilturinn var án ökuréttinda og er grunaður um ölvunarakstur. Hann slasaðist ekki alvarlega og er talið að það megi þakka mosa undir bílnum. Þá var mikill erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt og fékk tugur manna að gista fanga- geymslur. Ein alvarleg líkamsárás var tilkynnt, en að auki var nokkuð um innbrot. Greip lögregla innbrots- þjófa við íþróttahús Breiðholtsskóla en auk þess var töluvert um afskipti af veislum og skemmtanahaldi víðs vegar um borgina. Mosi bjarg- aði í bílveltu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.