Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 278. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «LÁRA RÚNARSDÓTTIR NÝFÆTT BARN HAFÐI ÁHRIF Á TÓNLISTINA «UNGT LJÓÐSKÁLD Ælandi og þvæl- andi Siggi Gúst Morgunblaðið/Golli Atvinna Margir vilja heldur vera á atvinnuleyisbótum en í vinnu. „HJÓL atvinnulífsins virðast vera að mjakast örlítið áfram á ný,“ segir Guðný Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri STRÁ MRI, og tek- ur fram að þau störf sem bjóðist séu helst fyrir sérhæfðara starfs- fólk innan hugbúnaðar- og fjár- málageirans sem og hjá þjónustu- fyrirtækjum. Að mati Guðnýjar virðist fólk ekki vera nógu duglegt að skrá sig hjá vinnumiðlunum landsins. „Árið 2007 voru fleiri nýskrán- ingar hér hjá okkur en í dag, sem mér þykir uggvænleg þróun,“ seg- ir Guðný. Spurð hvort hún kunni einhverjar skýringar á því segir Guðný ljóst að þjóðfélagið ein- kennist af ákveðnum doða og margir séu fullir vonleysis sem megi að einhverju leyti skrifa á kostnað fjölmiðla sem dragi full- dökka mynd upp af stöðunni. Nú sé hins vegar rétti tíminn fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki. „Það virðist því miður hafa orð- ið ákveðin hugarfarsbreyting í samfélaginu á þá leið að það sé í fínu lagi að vera atvinnulaus. Þannig varð ég, í fyrsta skiptið á 25 ára ferli mínum, vör við það í sumar að fólk í atvinnuleit var hreinlega ekki tilbúið að fara að vinna þrátt fyrir að starf byðist. Sérstaklega átti þetta við um al- menn störf, s.s. skrifstofu- og verslunarstörf. Ég varð því miður vör við að alltof margir voru til- búnir að vera á tekjutengdum at- vinnuleysisbótum og vildu eiga sumarið í næði, en bíða til hausts- ins,“ segir Guðný. silja@mbl.is | 6 Hjól atvinnulífsins mjakast á ný Atvinnuleysi mældist 7,2% í september samanborið við 7,7% mánuðinum áður Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra segist vonast til þess að bankarnir þrír, sem reistir voru á grunni innlendrar starfsemi gömlu bankanna þriggja, verði endanlega endurreistir 1. nóvember nk. Útlit er fyrir að íslenska ríkið þurfi að leggja til mun minna fé við endurreisn bank- anna en áður hafði verið áformað, að sögn Steingríms. Upphaflega var gert ráð fyrir því að ríkið þyrfti að leggja fram 385 milljarða vegna endurreisnar bank- anna en sú upphæð verður að öllum líkindum næstum helmingi lægri. Ef Íslandsbanki og Kaupþing verða að stærstum hluta í eigu kröfuhafa, í gegnum skilanefndir gömlu bank- anna, verður endurreisnin í takt við björtustu vonir að mati Gylfa Magn- ússonar efnahags- og viðskiptaráð- herra. „Það stefnir allt í það að fjár- binding ríkisins vegna endurreisnar bankanna verði mun minni en ráð var fyrir gert og það á reyndar líka við um sparisjóðina. Ef það tekst að fá kröfu- hafana að sem stóra eigendur í tveim- ur af þremur bönkum þá erum við líka með uppbyggingu á bankakerfinu sem ég tel skynsamlega. Það getur skapað vanda ef ríkið á alla stærstu bankanna.“ Samkomulag við Landsbanka Ís- lands um uppgjör var undirritað í gær. Skilanefnd gamla bankans mun fara með 20 prósent hlutafjár en ríkið rest, gegn 127 milljarða framlagi. | 14 Útlit fyrir að íslenska ríkið leggi til mun minna fé Endurreisn bankanna verður líklega formlega lokið um næstu mánaðamót Í HNOTSKURN»Kröfuhafar Glitnis hafafrest fram á fimmtudag til að ákveða hvort þeir eign- ast 95 prósent hlut í Íslands- banka. »Kröfuhafar Kaupþingshafa frest til 31. október til þess að taka afstöðu til þess hvort þeir eignast 87 prósent í Nýja Kaupþingi. HANN virkar stærri grænlenski togarinn Qavak en varðskipið Ægir frá þessu óvenjulega sjónarhorni úr varðskipinu. Togarinn, sem er um 200 tonn, varð vélarvana á sunnudag á leið sinni til Danmerkur. Flutninga- skipið Naja Arctica kom togaranum til aðstoðar og beið þar til Ægir var farinn að nálgast. Vel gekk að koma línu á milli skipanna en búist er við að þau komi til hafnar á Íslandi um klukkan 4 aðfararnótt miðvikudags. FYLGST MEÐ DRÁTTARTAUGINNI Ljósmynd/Landhelgisgæslan  GAGNRÝNI kom fram á Sam- keppnisyfirlitið á málfundi í Há- skólanum í Reykjavík í gær. Fundurinn fjallaði um óbeina að- komu ríkisins að samkeppnis- rekstri, en ríkisbankarnir hafa yfir- tekið nokkur fyrirtæki í kjölfar bankahrunsins, t.d. Pennann, A4 og Húsasmiðjuna. Sú skoðun kom fram á fundinum að þessi fyrirtæki fengju forskot við það að vera tekin yfir. Frummælandi sagði að erfitt væri að fá Samkeppnisstofnun til að grípa til aðgerða vegna þessara mála. Þessu andmælir forstjóri stofnunarinnar. »8 Erfitt að fá Samkeppnis- stofnun til aðgerða  MAKRÍLLINN hefur reynst ís- lenskum útgerð- um mikil búbót í ár. Alls hafa veiðst rúm 116 þúsund tonn af makríl það, sem af er árinu og er aflaverðmætið áætlað hátt í 12 milljarðar króna. Af þessum afla hafa um 90 þús- und tonn farið í bæðslu, en tæp 30 þúsund tonn verið unnin til mann- eldis. Verðmætið í hvorum flokki er þó jafnt, því miklu hærra verð fæst fyrir makrílinn til manneldis. »4 Makríllinn hefur reynst útgerðinni mikil búbót  FUNDAÐ verður stíft í húsa- kynnum ríkissáttasemjara á næstu dögum. Þar munu forvarsmenn samtaka atvinnurekenda og launþega bæði á almennum markaði og hjá ríki og sveitarfélögum freista þess að fá því framgengt að staðið verði við stöðugleikasáttmálann. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að menn hafi aðeins skamman tíma til stefnu. »6 Gera úrslitatilraun til að ná stöðugleikasáttmálanum STEINN Sigurðsson uppfinninga- maður hefur fundið upp fylgihlut á ryksugur sem kallast ryksugugildra. Gildran grípur hluti sem annars myndu sogast inn í pokann, svo sem eyrnalokka og hringi. Hugmyndina fékk Steinn einmitt fyrir nokkrum árum þegar konan hans týndi giftingarhringnum. Þurfti Steinn að fara út í ruslatunnu til að hafa uppi á hringnum. Steinn fékk einkaleyfi á ryksugu- gildrunni í Bandaríkjunum og Evrópu en það hefur reynst þrautin þyngri að fá framleiðendur á ryk- sugum til samstarfs. | 12 Klófestir dýrgripi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.