Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 29
Vegferð Þunnir en farsælir. Úr myndinni The Hangover.
RÁÐAMENN í draumaverksmiðj-
unni Hollywood eru sestir yfir
teikniborðin og ætla að endur-
hugsa ýmis form í rekstrinum sök-
um efnahagsþrenginga á alheims-
vísu. Öll helstu myndverin ráðgera
að draga út stórleikaramyndum og
kostnaðarsömum fjárútlátum í
kringum þær en gott gengi mynda
með nær óþekktum leikurum und-
anfarið hefur m.a. komið mönnum
til að endurhugsa sín mál. Myndin
Þynnkan eða The Hangover er til-
tekin sem dæmi um þetta en þar
fóru tiltölulega óþekktir leikarar
með helstu hlutverk. Þykir hún
sanna að stundum er meiri akkur í
góðum hugmyndum og handritum
en stórskotaliði A-lista leikara eins
og það er kallað. Hin suður-afríska
District 9 og hryllirinn Paranor-
mal Activity eru einnig nefndar í
þessu samhengi. Á hin bóginn hafa
myndir sem áttu að vera „örugg-
ar“ runnið á rassinn og dæmi um
slíkt er t.a.m. nýjasta ræma Jim
Carrey, A Christmas Carol, sem
reyndist lakari fjármagnsdrátt-
arklár en vonir stóðu til um. Nýj-
ustu myndir Bruce Willis (Sur-
rogates), Adam Sandler (Funny
People), Will Ferrell (Land of the
Lost), Eddie Murphy (Imagine
That) og Juliu Roberts (Duplicity)
hafa sömuleiðis valdið von-
brigðum.
Stórleikarar þurfa líka í dag að
„þola“ það að fá lægri greiðsur en
ella og myndverin eru farin að
rýna í ýmsar lausnir til að bregð-
ast við skotsilfursþurrðinni, m.a.
verður lögð áhersla á að taka upp
framhaldsmyndir í einni beit, líkt
og Peter Jackson gerði með
Hringadróttinsþríleikinn.
Hollywood í yfirhalningu
Menning 29FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
Ó
ttar Martin Norðfjörð er
afkastamikill rithöfundur,
athyglisverður,
hugmyndaríkur, seint ein-
tóna. Og nýjasta skáldsaga hans,
sú sjötta í röðinni, er lestr-
arómaksins verð …
Í Paradísarborginni greinir frá
einhenta manninum sem er kom-
inn til síns heima, í borg á norð-
lægri eyju, eftir útlandsdvöl. Hann
hefur aðsetur á heimili móður
sinnar. Heimkoman er ekki af
góðu, faðir hans, arkitektinn með
alpahúfuna (sbr. ævisöguna Arki-
tektinn með alpahúfuna) er látinn.
Sjö mánuðum síðar er einhenti
maðurinn enn í borginni og hefur
tekið að sér það verkefni, ásamt
eldri bróður sín-
um, að gera
kjallara hússins
íveruhæfan fyrir
móður sína. Við
þá iðju rekast
þeir á sveppinn
Coccidioides ka-
putis og tilheyr-
andi fúkkalykt.
Sveppurinn
reynist óværa hin mesta og breiðir
úr sér um borg og bý …
Samkvæmt kokkabókum telst
daunillur myglusveppur plága og
hættulegur heilsu manna. Flestir
borgarbúar enda þó á öðru máli
eða er talið trú um annað af borg-
aryfirvöldum sem sjá margvísleg
sóknarfæri; sveppakrem, sveppa-
lyf … Borgarbúar byrja að leggja
sér sveppinn til munns og svepp-
urinn heltekur þá, veldur hvítum
kýlum og skapgerðarbreytingum.
Vantrúaðir (sem vilja koma
sveppnum fyrir kattarnef), eins og
sá einhenti og nágrannakonan,
enda hornreka í sveppasýrðu sam-
félagi. Þetta minnir um margt á
kvikmyndir á borð við The Stuff.
Margt er með ágætum. Text-
anum er sæmilega valdið, en hann
er að forminu til ósamtengdur;
tengiorðum er sleppt, innskots-
setningar eru tíðar og hann er þar
af leiðandi í eins konar upptalning-
arstíl með tilheyrandi komm-
usplæsingu, líklegast til að skapa
textastíganda. Og sú ákvörðun að
nafngreina hvorki persónur né
staðinn er fín, gefur verkinu
ákveðin framandleikablæ, þótt
ljóst sé hver fyrirmynd borg-
arinnar er.
Sagan sem slík er eftirtekt-
arverð og má finna allrahanda til-
tölulega augljósar skírskotanir til
nýjustu hamfara Íslandssögunnar.
En það að afgreiða söguna sem
einfalda allegóríu væri einföldun.
Hún er fjölbreyttari en svo og
mætti vel lagflokka hana. Látum
þó nægja að minnast á tvö önnur
lög; ástarsögu (milli þess einhenta
og nágrannakonunnar) og sakn-
aðar- og uppgjörssögu (föðurmiss-
irinn gerður upp). Það er þó helst
til vansa að þetta er dálítið
óspennandi og býsna fyr-
irsjáanlegt og stígandinn sem form
textans ætti að hafa í for með sér
misferst nokkuð. Sumsé alveg
ásættanlegt verk í það heila, ekki
algjör sveppur.
Skáldsaga
bbmnn
BÆKUR – Skáldsaga
Paradísarborgin
Eftir Óttar M. Norðfjörð. 220 bls. Sögur
gefa út. 2009.
ÓLAFUR GUÐSTEINN
KRISTJÁNSSON
BÆKUR
Ekki algjör sveppur
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Mið 18/11 kl. 19:00 Aukas Sun 29/11 kl. 19:00 Aukas. Sun 13/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 9.K Fim 3/12 kl. 19:00 Aukas Fös 18/12 kl. 19:00 aukas.
Sun 22/11 kl. 19:00 10.K Lau 5/12 kl. 19:00 13.k Lau 19/12 kl. 19:00
Mið 25/11 kl. 19:00 aukas Sun 6/12 kl. 19:00 aukas. Þri 29/12 kl. 19:00
Fim 26/11 kl. 19:00 11.K Fim 10/12 kl. 19:00 aukas. Mið 30/12 kl. 19:00
Fös 27/11 kl. 19:00 12.K Fös 11/12 kl. 19:00 14.K
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Lau 21/11 kl. 19:00 Aukas. Sun 29/11 kl. 14:00 Aukas Sun 27/12 kl. 14:00
Sun 22/11 kl. 14:00 Lau 5/12 kl. 14:00 Sun 27/12 kl. 19:00
Lau 28/11 kl. 14:00 Aukas Sun 13/12 kl. 14:00
Nýjar aukasýningar í sölu. Tryggðu þér miða strax
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 20/11 kl. 19:00 Aukas Sun 13/12 kl. 20:00 48.K Sun 17/1 kl. 20:00
Fös 20/11 kl. 22:00 Aukas Fös 18/12 kl. 19:00 49.K Fim 21/1 kl. 20:00
Sun 22/11 kl. 20:30 39.K Fös 18/12 kl. 22:00 50.K Fös 22/1 kl. 20:00
Fim 26/11 kl. 20:00 40.K Lau 19/12 kl. 16:00 Lau 23/1 kl. 19:00
Fös 27/11 kl. 19:00 41.K Sun 27/12 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Fös 27/11 kl. 22:00 42.K Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Þri 1/12 kl. 20:00 43.K Fös 8/1 kl. 19:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 4/12 kl. 19:00 44.K Fös 8/1 kl. 22:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Fös 4/12 kl. 22:00 45.K Fös 15/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Lau 12/12 kl. 19:00 46.K Lau 16/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 22:00 47.K Lau 16/1 kl. 22:00
Sala hafin á sýningar í janúar
Jesús litli (Litla svið)
Fim 19/11 kl. 20:00 Fors Sun 29/11 kl. 20:00 Aukas Fim 10/12 kl. 20:00 Aukas
Lau 21/11 kl. 20:00 Frums Lau 5/12 kl. 16:00 4.K Fös 11/12 kl. 19:00 7.K
Lau 28/11 kl. 20:00 2.K Lau 5/12 kl. 20:00 5.K Fim 17/12 kl. 20:00 8.K
Sun 29/11 kl. 16:00 3.K Mið 9/12 kl. 20:00 6.K Lau 19/12 kl. 21:00 9.K
Forsala í fullum gangi.
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Þri 24/11 kl. 20:00 Aukas Mið 25/11 kl. 19:00 Aukas Mið 25/11 kl. 21:00
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Dauðasyndirnar (Litla sviðið)
Sun 22/11 kl. 14:00 Fim 3/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 20:00 Aukas
Mið 2/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 16:00 Aukas Þri 8/12 kl. 20:00 Aukas
Síðustu sýningar. 20% afsláttur til Vísa kreditkorthafa
Við borgum ekki (Stóra svið)
Fim 19/11 kl. 20:00 Lau 28/11 kl. 19:00 aukas Fös 4/12 kl. 19:00 aukas
Uppsetning Nýja Íslands.
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Mið 18/11 kl. 20:00 Fors Fös 20/11 kl. 20:00 2.K Sun 29/11 kl. 20:00 4.K
Fim 19/11 kl. 20:00 Frums Lau 21/11 kl. 20:00 3.K
Ekki við hæfi barna
Bláa gullið (Litla svið)
Lau 21/11 kl. 15:00 Lau 28/11 kl. 15:00
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Lau 21/11 kl. 22:30 Aukas. Lau 12/12 kl. 19:00 Aukas.
Fös 4/12 kl. 22:30 Aukas. Lau 12/12 kl. 22:00 Aukas.
ATH ! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Söngvaseiður – fyrir alla
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Þri 17/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 22/11 kl. 14:00 Sun 29/11 kl. 17:00
Mið 18/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 22/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 20:00 Aukas.
Allra síðasta sýning 29. nóvember kl. 20:00!
Frida ... viva la vida (None)
Fim 19/11 kl. 20:00 Síðasta
sýning!
Allra síðasta sýning 19. nóvember!
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 20/11 kl. 20:00 Lau 28/11 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00
Lau 21/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Fös 27/11 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Utan gátta (Kassinn)
Fim 19/11 kl. 20:00 aukas.
Missið ekki af þessari - allra síðustu sýningar!
Völva (Kassinn)
Þri 17/11 kl. 20:00 Aukas. Fös 20/11 kl. 20:00
Síðasta sýning 20. nóvember!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 20:00 7. K
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas.
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 3/1 kl. 20:00 6. K
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas.
Miðasala hafin!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lau 21/11 kl. 13:30 Lau 28/11 kl. 13:30 Lau 19/12 kl. 15:00
Lau 21/11 kl. 15:00 Lau 28/11 kl. 15:00 Sun 20/12 kl. 15:00
Sun 22/11 kl. 13:30 Lau 12/12 kl. 13:30 Sun 27/12 kl. 15:00
Sun 22/11 kl. 15:00 Lau 12/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00
Fös 27/11 kl. 13:30 Sun 13/12 kl. 13:30 Mið 30/12 kl. 15:00
Fös 27/11 kl. 15:00 Sun 13/12 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Leitin að jólunum (Leikhúsloftið)
Lau 28/11 kl. 11:00 Lau 5/12 kl. 14:30 Sun 13/12 kl. 13:00
Lau 28/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 14:30
Lau 28/11 kl. 14:30 100.sýn. Sun 6/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 11:00
Sun 29/11 kl. 11:00 Sun 6/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 13:00
Sun 29/11 kl. 13:00 Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30
Sun 29/11 kl. 14:30 Lau 12/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 5/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00
Lau 5/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti!
Maríuhænan (Kúlan)
Mið 2/12 kl. 10:00 Fös 4/12 kl. 10:00 Sun 6/12 kl. 13:30
Mið 2/12 kl. 17:00 Fös 4/12 kl. 17:00 Sun 6/12 kl. 15:00
Fim 3/12 kl. 10:00 Lau 5/12 kl. 13:30
Fim 3/12 kl. 17:00 Lau 5/12 kl. 15:00
Danssýning fyrir þau allra minnstu - gestasýning frá Noregi
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Lilja (Rýmið)
Fim 19/11 kl. 20:00 Aukas Fös 20/11 kl. 20:00 Aukas Lau 21/11 kl. 20:00 Aukas
Allra síðustu sýningar
Lykillinn að jólunum (Rýmið)
Fim 26/11 kl. 17:00 fors. Sun 29/11 kl. 15:00 3. k Sun 6/12 kl. 13:00
Fös 27/11 kl. 17:00 frums. Lau 5/12 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 15:00
Lau 28/11 kl. 13:00 2. k Lau 5/12 kl. 15:00
Forsala er hafin
K=Kort Aukas.= Ný sýning Fors.=Forsýning Frums.= Frumsýning
AMY Winehouse dvaldi á sjúkrahúsi á
sunnudagsnóttina, en líkami hennar
brást illa við samblöndun tveggja lyfja.
Winehouse hafði keypt einfalt meðal við
kvefi, enda er veturinn að leggjast yfir
Lundúnir af fullum þunga líkt og aðrar
borgir í norður Evrópu. Þessir saklausu
brjóstdropar eða hvað þetta nú var fóru
hins vegar illa með lyfsseðilsskyldu lyfi
sem hún er taka vegna bataferils sem
tengist ofneyslu eiturlyfja, áfengis og
annarrar ólyfjanar. Söngkonan ku óð-
um að hressast, og fagna því allir góðir
eðlilega, en síðustu misserin í lífi lista-
mannsins hafa reynt mikið á þolrif
hennar og annarra.
Reuters
Frísk Wineouse er á batavegi.
Winehouse
á spítala
Stórfréttir
í tölvupósti