Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 28
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is LAUGARDAGINN 16. janúar n.k. mun plötusnúðurinn Óli Ofur koma fram á Nasa og spilar þar í c.a. 6 tíma - einn og óstuddur. Stóreflis veggspjöld hanga nú uppi um stræti og torg og auðséð að Óli er að leggja í þetta ævintýri af miklum heilindum og metnaði. En hví? „Þetta var spurning um að hrökkva eða stökkva,“ segir plötu- snúðurinn. „Ég stend og fell með þessu giggi en ég er að láta gaml- an draum rætast með þessu. Ég legg allt í þetta.“ Hingað koma reglubundið erlendir plötusnúðar, sem eru iðulega lítt þekktir, hjá almenningi alltént, en þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er settur í öndvegi. „Íslendingar hafa auðvitað haldið uppi heilum kvöld- um hér áður en þá eru það margir plötusnúðar sem ná stundum að spila í c.a. hálftíma. Þú nærð ekki að gera neitt á þeim tíma; það þarf lengri tíma til að byggja upp stemningu, flæði o.s.frv., að stilla upp því sem þú getur og kannt. Ég mun því byggja upp allt kvöldið sjálfur frá a - ö.“ Óli segir að ofurdásömun á plötusnúðum erlendist frá hafi á vissan hátt þreytt senuna. „Stundum er ekki innistæða fyrir því, þó margir séu þeir vissulega góðir.“ Óli segir að þrátt fyrir að leggja mikið í að markaðssetja þetta kvöld verður kostnaður í lágmarki, aðeins mun kosta þúsund krónur inn og greitt er við innganginn. „Ég hef hitað upp fyrir heilan helling af plötusnúðum en þetta er í fyrsta sinn sem ég er miðpunkturinn á svona stóru giggi Ég mun ekki græða neitt á þessu kvöldi. Þetta er hugsjón, gamall draumur eins og ég sagði áður. Í mínum huga er þetta mikilvægasta og metnaðarfyllsta partí sem ég hef sett upp til þessa og ekkert myndi gleðja mig meira en að geta spilað danstónlist í hæsta gæðaflokki fyrir fullu húsi fram á rauða nótt.“ Óli Ofur uppfyllir gamlan draum 28 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010  Ný plata er væntanleg frá Ís- landsvininum í Brian Jonestown Massacre, Anton Newcombe. Fyr- ir u.þ.b. þremur árum eða svo var Newcombe tíður gestur hér á landi og komst m.a. í vinfengi við með- limi rokksveitarinnar Singapore Sling. Newcombe var þá þekktur fyrir einstök afköst, bæði hvað drykkju og tónsmíðar varðar og var grein gerð fyrir þessum þáttum að hluta til í heimildarmyndinni Dig!, sem þykir ein best heppnaða rokkheimildarmynd síðustu ára. Nýja platan ber hinn skemmti- lega titil Who Killed Sgt. Pepper? og var hljóðrituð í Berlín og hér á landi. Fjöllistakonan Unnur Andrea Einarsdottir ljær einu laginu rödd sína og eitt þeirra kallast „Tunger Hnifur“, vísun í fleyga setningu úr Hrafninn flýgur. Búið er að bóka hljómleikaferðalag um Bandaríkin, spurning hvort menn stoppi hér? Hnífurinn þungi fer víða Fólk  Gestir eru greinilega ánægðir með rómantíska sýn Þorra Hrings- sonar myndlistarmanns á Aðaldal- inn; á sinuhaga, Laxá og Hvamms- heiðina. Þorri hefur síðasta áratug eytt öllum sumrum í vinnustofu sinni fyrir norðan og málað um- hverfið á sinn persónulega og rómantíska hátt. Fjölmenni var á opnun sýningar Þorra í Listasafni ASÍ á laugardaginn var, en þar sýndi hann úrval verka frá síðustu tveimur árum. Gestir kunnu sýni- lega vel að meta listina, því nær öll verkin seldust upp á fyrstu klukku- stundinni; rauðir blettir staðfestu sölu á öllum málverkunum, utan tveimur. Málverk Þorra úr Aðaldalnum vinsæl  Takk fyrir segir á vefsíðu hins þekkta tónlistarblaðs Clash, þó með aðeins grófari hætti. Þakkirnar beinast að íslensku hljómsveitinni FM Belfast en blaðið hefur valið lag hljómsveitarinnar „I Can Feel Love“ inn á safnplötu sem hægt er að hlaða niður af síðunni. Platan inniheldur lög með hljómsveitum sem mælt er með fyrir þetta ár. „Íslenska partýhljómsveitin kom efni sínu loksins út,“ segir á síðunni og greinilegt á skrifunum að hjá Clash leynast einlægir aðdáendur. Lýsingarnar eru ekki af verri end- anum og segir meðal annars frá því að hljómsveitin hafi samstundis tekið sér fótfestu í þeirra hjörtum er hún komu fram á Airwaves fyrir tveimur árum. „„I Can Feel Love“ hefur allt það sem bandið hefur upp á að bjóða, hávært og hjartnæmt pop, flutt beint frá hjartanu af tón- listarstríðsmönnum.“ FM Belfast vekur athygli erlendis Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG get alveg sagt þér strax að ég tek bullandi afstöðu í þessari mynd, ég er ekki skoðunarlaus. Ég hef skoðanir á þessum hlutum, mér finnst þetta ekki rétt og fer að leita mér upplýsinga,“ segir Gunnar Sig- urðsson leikstjóri um heimildarmynd sína Maybe I Should Have – Frásögn af efnahagsundrinu Íslandi. Myndin verður frumsýnd 20. jan- úar næstkomandi í Háskólabíói og fer í almennar sýningar 5. febrúar í Sambíóinu í Kringlunni. Eins og nafn myndarinnar gefur til kynna fjallar hún um íslenska efna- hagshrunið. „Þetta er úttekt á eftirleik hruns- ins, við förum auðvitað aðeins í gegn- um hrunið og skoðum af hverju allir þessir hlutir gerðust, en þetta er mjög persónuleg saga.“ Ertu að segja þína sögu? „Já að mörgu leyti, mína sögu og margra annarra í leiðinni, held ég bara. Ég tala um þetta allt á persónu- legum nótum og bendi á það sem mér finnst og á það sem ég trúði á því ég hélt að þetta væri í lagi. Ég komst að því haustið 2008 að þetta er ekki í lagi og hefur ekki verið í lagi í mörg mörg ár,“ svarar Gunnar. Hófu vinnu í júní 2009 Gunnar hóf að vinna myndina í júní í fyrra eftir að hafa verið virkur á borgarafundum og í mótmælum. „Ég heimsótti vinkonu mína, Lilju Skaptadóttur, til Frakklands í fyrra og þar fórum við að kjafta um hrunið yfir mat, okkur datt þá í hug að gera svona mynd, eitt leiddi af öðru og við hófum að vinna í handritinu þegar heim kom. Síðan þá höfum við verið að vinna við myndina jafnt og þétt,“ segir Gunnar um tilurð myndarinnar. Myndin einskorðast ekki við Ís- land heldur ferðast þau víða um heim við gerð hennar. „Við förum um allt, frá Íslandi til London, þaðan til Gu- ernsey, Berlínar, Lúxemborgar, Washington og Tortola. Á Tortola ræðum við m.a. við landstjórann og spyrjum hann að því hvernig þetta virkar hjá þeim. Hann segir okkur bara að þeir séu svona eyja sem bjóði upp á þessa þjónustu. Við fengum mikið af upplýsingum þar. Í Washington lendum við á hag- fræðingaráðstefnu og spjöllum við marga hagfræðinga, meðal annars William Black, sem skrifaði bókina The Best Way to Rob a Bank is to Own One. Við komumst að því að hagfræðingarnar vissu allir um Ís- land og töluðu um það af mikilli þekk- ingu og áhuga. Við erum orðin skóla- bókardæmi um eitthvað sem við viljum ekki endilega vera skólabók- ardæmi um. Síðan ræðum við við Björgólf Thor Björgólfsson, Evu Joly og Jón Gnarr. Skopmyndir eftir Hall- dór Baldursson koma svo við sögu og við búum til smá leikrit. Við tölum bæði við Íslendinga og venjulegt launafólk og ellilífeyris- þega í Guernsey sem töpuðu öllu sínu fé hjá Landsbankanum. Fólk sem lagði peninginn sinn inn í banka, svo var bankanum bara lokað og pening- arnir hurfu. Við fórum út um allt og hittum allskonar fólk og skoðuðum margt.“ Kom margt á óvart? „Það sem kom mér mest á óvart við þennan eltingarleik er hvað mað- ur hefur sjálfur verið blindur í mörg mörg ár fyrir því í hverskonar fjár- svikalandi við búum. Maður lokaði augunum fyrir því hvað þetta kunn- ingja- og vinasamfélag háir okkur að mörgu leyti en er auðvitað ofsalega þægilegt að öðru leiti. Í myndinni för- um við líka í gegnum spillinguna á Ís- landi og hvers vegna og hvað. Þetta er svona vegamynd, við erum bara að leita svara.“ Finnið þið þau? „Já að sumu leyti, öðru leyti ekki,“ svarar Gunnar leyndardómsfullur. Er myndin í anda annarrar hrun- myndar; Guð blessi Ísland? „Nei, þetta er allt allt öðruvísi mynd. Í engri líkingu við Guð blessi Ísland, við erum að segja sögu, setj- um hluti í samhengi, þetta er bíó- mynd.“ Gerð án opinberra styrkja Gunnar er sjálfur leikstjóri mynd- arinnar og Herbert Sveinbjörnsson sér um kvikmyndatöku. Lilja Skapta- dóttir er framleiðandi og eigandi Argoutfilm sem býr myndina til. „Myndin er gerð án allra opin- berra styrkja, án allra styrkja frá fé- lögum og félagasamtökum. Hún er algjörlega fjármögnuð af einum aðila, Lilju Skaptadóttur. Þetta er ekki dýr mynd þó hún líti út fyrir að vera það. Við höfum unnið okkar vinnu fyrir lág laun og lítil sem engin laun og leitað til vina og vandamanna með ýmis málefni til að leysa úr.“ segir Gunnar. Stefnið þið að því að selja þessa mynd til erlendra aðila? „Já fyrstu 25 mínúturnar í mynd- inni eru bara útskýringar á ástandinu eins og það gerðist. Kynning á því og svo byrjar leitin, við eltum pen- ingana, eitt leiðir af öðru, þetta er bara ferðalag. Við erum bara venju- legt fólk að leita svara. Við ætlum að fylgja myndinni eftir, koma henni á kvikmyndahátíðir og í sjónvarp í öðrum Evrópulöndum.“ Leitar svara Gunnar Sigurðsson leikstjóri fer meðal annars til eyjunnar Tortola til að leita svara við íslenska efnahagshruninu. Eftirleikur hrunsins  Maybe I Should Have – Frásögn af efnahagsundrinu Íslandi frumsýnd 20. janúar  Persónuleg saga segir Gunnar Sigurðsson leikstjóri myndarinnar „Titill myndarinnar, Maybe I Should Have, er ekki eingöngu til- vísun í svar Geirs H. Haarde þegar hann var spurður afhverju hann hefði ekki hringt í Gordon Brown þegar hann setti á okkur hryðju- verkalög. Þá svaraði Geir eins og víðfrægt er orðið: „Maybe I should have“. Þessi tilvitnun er ekki ein- göngu vísun í þetta svar Geirs, hún er bara góð fyrir okkur öll,“ segir Gunnar um titil myndar sinnar. Maybe I Should Have www.argoutfilm.com Sjá nánar á www.ofur.is Metnaður Óli Ofur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.