Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010 ✝ Kristinn Ólafssonfæddist á Sellátra- nesi í Rauðasands- hreppi hinn 15. febr- úar 1913. Hann lést 19. janúar 2010. Kristinn var sonur hjónanna Gróu Brandsdóttur, f. 29. júlí 1881, d. 11. des- ember 1940, og Ólafs Péturssonar, f. 29. september 1878, d. 13. nóvember 1934. Ólaf- ur og Gróa bjuggu lengst á Sellátranesi í Rauðasandshreppi, síðast í Hænu- vík. Systkini Kristins voru Kristján Brandur, f. 1902, d. 1930, Jón- fríður, f. 1904, d. 1987, Sig- urgarður, f. 1906, d. 1932, Pétur, f. 1908, d. 1979, Gísli, f. 1910, d. 1917, Björg, f. 1915, d. 1923, Jóhanna Fanney, f. 1917, d. 1994, Hjörtur, f. 1919, d. sama ár, Lilja, f. 1922, d. 1956, Dagbjörg Una, f. 1924 (ein eftirlifandi af systkinunum), og Ástráður, f. 1927, d. 1931. Kristinn ólst upp í Hænuvík og átti þar heima þangað til hann flutti til Patreksfjarðar. Hann var bóndi í Hænuvík frá 1940 þar til upp úr 1990 að hann flutti til Patreksfjarðar. Jafnframt starfaði hann sem landpóstur í ytri hluta Rauða- sandshrepps á ára- bilinu 1945-1985. Þá vann Kristinn að smáútgerð í Hænu- vík með búskap og tók verkamanna- vinnu sem til féll, svo sem sláturhússtörf á haustin. Kristinn var einn af björg- unarmönnum þegar togarinn Dho- on strandaði við Látrabjarg hinn 12. desember 1947. Harmonikkuleik iðkaði Kristinn, hann spilaði fyrir dansi í sveitinni og var gestur á harmonikk- umótum á Ísafirði og víðar um land, en á þeim vettvangi var hon- um sýndur margvíslegur sómi. Þá stundaði hann refaveiðar um skeið með allgóðum árangri. Útför Kristins fer fram frá Sauð- lauksdalskirkju hinn 29. janúar 2010 og hefst athöfnin kl. 13.30. Í dag er til moldar borinn í Sauð- lauksdalskirkjugarði frændi minn, Kristinn Ólafsson frá Hænuvík. Há- aldraður og fyrir löngu búinn að lifa sitt fegursta. Kristinn stundaði bú- skap á tæplega ¼ úr Hænuvíkur- jörðinni allt frá því fyrir 1940 fram yfir 1990 að hann flutti á mölina. Síðustu æviárin var hann vistmaður á sjúkrahúsinu á Patreksfirði. Krist- inn var alla tíð mjög bundinn við sinn fæðingarstað, Hænuvík, og átti mjög bágt með að hugsa sér aðra staði til búsetu. Óhætt er að segja að Kitti, eins og hann var jafnan nefndur, hafi verið vinsæll í sveitinni og allir sem áttu dvöl í Örlygshöfn og Útvíkum kynntust þessum samviskusama þjóni sem færði þeim póstinn, oft langþráðan fyrir daga nets og tölvu- pósts. Má segja að reglubundnar póstferðir hans um sveitina sína hafi komið í stað brottflutnings, sem varð hlutskipti margra ættingja og sveitunga. Ferðirnar tengdu hann við menninguna og öfluðu honum vináttu, sem í sumum tilfellum ent- ust honum ævina út. Einlægnin var líka hans aðalsmerki og trúmennsk- an skærasta leiðarljósið. Einlífi varð hlutskipti Kitta, þó að hann hefði mögulega kosið að hafa það öðruvísi. „En mér þótti bara aldrei vænt um neina stúlku,“ sagði hann einhvern tíma þegar hann var að rekja fyrir mér æviskeiðið. Þar við bættist að lífsstíll hans og skap- lyndi var með þeim hætti að líklega hefðu allar alvörutilraunir Kitta til slíkra hluta aukið honum vandræði fremur en hið gagnstæða. Við syst- urbörn hans nutum návista við Kitta meðan við dvöldum í heimahögum. Ótrúleg yfirferð hans við hlaup á eftir rollum og snúninga innan túns, harmonikkuleikurinn á síðkvöldum, vel verkuð tófuskinn og bras við rauðmaga- og grásleppuveiðar kem- ur fyrst upp í hugann, en Kitti var hreinn meistari í rauðmagareyk- ingu, og væri gaman ef einhver hef- ur varðveitt uppskriftina hans. Slík vara er ekki á boðstólum í versl- unum og verður líklega aldrei, held- ur aðeins seld frá hendi til handar, frá framleiðanda til neytanda. Hann var hins vegar aldrei neitt sérlega lagtækur við byggingar eða búvélar og var talsvert kominn upp á velvilj- aða nágranna og vini, ef taka þurfti til hendinni á þeim sviðum. Sjaldan stóð þó á slíkri hjálp, Kitti átti víða hauka í horni. Með greinarkorni þessu vil ég þakka þeim sem reyndu að gera Kitta lokadægrin sem þægilegust. Ég veit að hann frændi minn var ekki alltaf auðveldur viðskiptis. Oft gat hvinið í tálknunum á honum, en það átti bara ekki við hann að fara í felur með vilja sinn og langanir. Ég lýk þessum orðum með þökk til þessa liðna frænda fyrir allt gamalt og gott. Það geri ég fyrir hönd systkina minna og móður með von um að næsta tilverustig verði hon- um þægilegt og að þar verði að finna vænt sauðfé, dynjandi harmonikk- umúsík og gestrisnar húsfreyjur, sem alltaf eiga til gott með kaffinu. Sigurjón Bjarnason. Hálf öld er liðin. Strákpjakkar standa á bæjarhlaðinu á Láganúpi og stara stórum augum á einu hest- ana sem eftir eru í Rauðasands- hreppi. Þeir hurfu að mestu með breyttum búskaparháttum, en þess- ir tveir þjóna enn sínu hlutverki. Af baki snarast lágvaxinn, snaggara- legur maður, heilsar fólkinu, losar töskur sínar og gengur í bæinn. Hér er kominn Kitti póstur í sínum föstu erindum og hann sinnir sínu emb- ætti sumar og vetur af mikilli skyldurækni. Auðvitað drekkur hann kaffi með heimafólki, ræðir við það almælt tíðindi og reykir eina sígarettu. Þegar lagt er af stað út í Breiðavík er einhverjum peyjanum stundum leyft að sitja annan hestinn út að Hólahliði þar sem Kitti kveður og heldur embættisferð sinni áfram. En nú er hann Kitti lagður af stað í hinztu ferðina. Ekki póstferð í þetta sinn, enda áratugir síðan hann lét af því embætti. En lengi annaðist hann þessa þjónustu, fyrst á hestum eða fótgangandi, síðan á dráttarvél og loks á bifreið sinni. Kristinn Ólafsson ólst upp í Hænuvík og átti þar heimili alla ævi sína, þrátt fyrir dvöl á Patreksfirði í elli sinni. Hann kvæntist ekki né átti hann afkomendur. Hann var hins vegar alla tíð órjúfanlegur hluti af fjölskyldu Dagbjargar systur sinnar í Hænuvík og bar börn hennar mjög fyrir brjósti. Hann var einn þeirra sterku persónuleika sem mótuðu bernsku mína fyrir vestan, en þeir eru nú flestir horfnir af sjónarsvið- inu. Ég minnist svo margs. Smala- mennsku, þar sem Kitti lét ekki sitt eftir liggja. Þá var mikið um hlaup og læti og ósjaldan fengum við strákarnir hávaðaskammir frá þeim eldri þegar við höfðum lagst í berja- lyngið og ekkert tekið eftir rollus- kömmum sem laumuðust framhjá okkur. Ég minnist grásleppuveið- anna, vinnu í sláturhúsinu á Gjögr- um, harmonikkuleiks Kitta á skemmtunum í Fagrahvammi og svo ótalmargs annars sem nú er lið- in tíð. Kitti var heiðursmaður sem ekki mátti vamm sitt vita. Hann gat verið hrjúfur, en undir skrápnum sló hjarta úr gulli. Bóndi sem átti góðan fjárstofn og lét sér afar annt um kindurnar sínar. Tilvera hans var alla tíð bundin heimaslóðunum sem hann vann það gagn sem hann gat. Ég kveð hann með þakklæti fyrir tryggð og vináttu við okkur Agnesi og fjölskyldu mína sem aldrei bar skugga á og votta fólkinu hans sam- úð. Guðbjartur Össurarson. Kristinn Ólafsson ✝ Guðríður OktavíaEgilsdóttir fædd- ist í Reykjavík 10. janúar 1920. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 20. janúar sl. Foreldrar hennar voru hjónin Egill Þórðarson, f. 2.11. 1886, d. 6.1. 1921, skipstjóri, frá Ráða- gerði á Seltjarn- arnesi, og Jóhanna H. Lárusdóttir, f. 9.12. 1886, d. 22.12. 1962, húsfreyja. Egill skipstjóri í Ráðagerði var sonur Þórðar, bónda og hafnsögu- manns í Ráðagerði á Seltjarn- arnesi, Jónssonar og Þórunnar Jónsdóttur frá Mýrarhúsum. Jó- hanna móðir Guðríðar var dóttir Lárusar bónda á Gerðubergi, Gíslasonar og Guðbjargar Krist- jánsdóttur frá Rauðamel. f. 12.8. 1977, b) Kjartan Jónatan, 16.1. 1979, c) Egill Moran, f. 18.4. 1986. 2) Þórður, f. 29.11. 1952, framkvæmdastjóri, maki Sigrún Á. Haraldsdóttir. Börn Þórðar og Elínar S. Guðmundsdóttur eru a) Soffía Kristín, f. 17.4. 1975, b) Þórdís Ögn, f. 11.11. 1976, c) Sölvi, f. 2.3. 1980. Barna- barnabörn Guðríðar eru alls sjö. Guðríður ólst upp hjá móður sinni á Norðurstíg og Vesturgötu í Reykjavík. Hún vann sem ung stúlka í Pennanum, síðar í kven- fataversluninni Rímu við Lauga- veg. Adolf og Guðríður voru frumbýlingar í Faxaskjóli 26 og bjó Guðríður þar frá 1947-1990 er hún flutti að Austurströnd 12, Seltjarnarnesi. Guðríður lauk ljós- mæðraprófi frá LMSÍ 1941, kenn- araprófi frá Kennaraskóla Íslands 1963 og starfaði sem kennari við Hagaskóla í Reykjavík á árunum 1963-1987. Hún kenndi lengst af heilsufræði, náttúrufræði og skrift. Útför Guðríðar fer fram frá Neskirkju í dag, föstudaginn 29. janúar, kl. 15. Börn Egils og Jó- hönnu voru, auk Guðríðar, Þórður (1909-1921), Guð- björg (1911-1997), Þórunn (1912-2000) og Agla Þórunn (1921-1959). Guðríður giftist 22.4. 1943 Adolf Guðmundssyni, yf- irkennara, f. 7.7. 1917, d. 25.8. 1965. Hann var sonur Soffíu Baldvins- dóttur frá Stakka- hlíð í Loðmundarfirði og Adolfs Guðmundssonar, loftskeytamanns og dómtúlks í Reykjavík. Adolf var fóstursonur frænda síns séra Friðriks Friðrikssonar, æskulýðs- leiðtoga og stofnanda KFUM. Synir Guðríðar og Adolfs eru: 1) Friðrik, f. 6.6. 1944, d. 5.4. 2007, verkfræðingur. Börn Friðriks og Miriam Rubner eru a) Agla Jael, Komin er kveðjustund. Tengda- móðir mín, Guðríður Egilsdóttir, hefur lokið langri lífsgöngu sinni, níræð að aldri. Hún var ferðbúin þá er hún fór. Leið hennar í gegn- um lífið var oft og tíðum strembin en hún komst óbuguð yfir allar torfærur enda með eindæmum dugleg og viljasterk kona. Strax í frumbernsku missti hún föður sinn og ólst upp hjá móður sinni sem ól önn fyrir henni og systrum hennar. Þar hefur vafalítið oft verið þröngt í búi. Guðríður fór snemma að vinna fyrir sér. Ung nam hún ljósmóð- urfræði og starfaði sem ljósmóðir um nokkurt skeið. Hún var mikil fríðleikskona, sérlega nett og fín- gerð. Ljósmyndir sem til eru af henni 16-17 ára sýna glöggt hve undurfalleg hún var. Hún giftist árið 1943 Adolf Guð- mundssyni kennara. Þau reistu sér hús í Faxaskjóli 26 þar sem þau áttu heimili með sonum sínum Friðriki og Þórði. Adolf lést árið 1965 eftir löng og erfið veikindi. Þessi glæsilega kona giftist ekki aftur, hún var eins manns kona. Áður en Guðríður varð ekkja hafði hún aflað sér menntunar sem kennari og kenndi í tæpan ald- arfjórðung við Hagaskóla, eða allt þar til hún lét af störfum árið 1978 vegna aldurs. Hún hafði yndi af kennslunni og í samtölum okk- ar rifjaði hún gjarnan upp minn- ingar frá þeim tíma. Hún fylgdist með nemendum sínum eins og hún gat og gladdist yfir velgengni þeirra. Hún var bundin samkenn- urum sínum sterkum vináttubönd- um. Það mátti glöggt sjá hve traust þau bönd voru þá er hún bauð til veislu á 90 ára afmælinu sínu á Hótel Sögu aðeins 10 dög- um áður en hún lést. Þá fjöl- menntu þessir góðu vinir hennar og samfögnuðu með henni. Hún var einkar frændrækin og ekkert skipti hana meira máli en afkomendurnir. Hún fylgdist mjög vel með þeim öllum og þær stund- ir sem hún átti með þeim voru henni gleðistundir. Guðríður var einkar smekkleg og vandvirk hannyrðakona. Undanfarin ár stytti hún sér langar einveru- stundir við útsaum, saumaði m.a. hátt á annan tug rókókóstóla, ákaflega fallega og vel gerða. Ás- grímur frændi hennar setti upp og bólstraði stólana. Vinna þeirra beggja var fyrsta flokks, þau sættu sig ekki við neitt annað. Þessir stólar prýða nú heimili af- komenda hennar og ættingja. Guðríður fór aldrei með veggj- um, hún var kjörkuð, hreinskilin, treysti eigin dómgreind og komst þangað sem hún ætlaði sér. Hún var skarpgreind, fróð og stálminn- ug og hélt andlegum kröftum sín- um og reisn til hinstu stundar. Hún bjó ein á heimili sínu og naut þar aðstoðar heimahjúkrunar. Undir lokin var það fremur hinn sterki vilji hennar en líkamleg geta sem gerði henni það kleift. Einnig það að hún átti yndislega nágrannakonu, Ásrúnu Krist- mundsdótturm sem reyndist henni sannur vinur og hjálpar- hella. Ég færi Ásrúnu og starfs- mönnum heimahjúkrunar hug- heilar þakkir mínar. Guðríður var mér alltaf vinur frá því að ég fyrst hitti hana. Við tvær áttum saman kvöldstund fyr- ir fáeinum dögum er hún undirbjó sig fyrir afmælið. Þetta var góð stund, ég mun geyma hana með mér. Ég þakka Guðríði samfylgd- ina. Blessuð sé minning hennar. Sigrún Haraldsdóttir. Amma Gudda var einstök. Okk- ur systkinunum þótti ætíð merki- legt að eiga svona glæsilega ömmu sem var alltaf vel til höfð, átti pels og safn af fallegum hæla- skóm, reykti brúnar More-sígar- ettur og keyrði bíl vel fram yfir áttrætt. Ekki dvínuðu vinsældir hennar þegar hún á sjötugsaldri tók okkur systkinin með í utan- landsferðir. Sem stelpu þótti mér fátt skemmtilegra en að skoða í skó- skápinn, máta hvert parið á fætur öðru og klöngrast á spariskónum hennar í Faxaskjólinu. Þetta áhugamál áttum við alltaf sameig- inlegt. Ég mun seint geta fetað í hennar spor en mér mun ævinlega þykja vænt um að ganga á skón- um hennar og ég mun varðveita þessi skópör enn betur en áður. Amma lifði ekki átakalausu lífi en hún mætti hverri raun með höfuðið hátt. Hún var afburðagáf- uð, metnaðarfull og lagði mikið upp úr vandvirkni og því að gera rétt. Hún var réttlát og sanngjörn og hafði ríkan skilning á breysk- leika fólks. Fáir voru jafn góðir ráðgjafar og hún. Hún var sann- kallaður viskubrunnur, með ódrepandi áhuga á góðu hand- verki, náttúrunni og ættfræði. Hún var líka góður kennari, hún hvatti okkur stöðugt áfram í námi og langömmubörnin fengu snemma að kynnast hennar uppá- halds þulum á borð við Kom ég þar að kveldi. Mér er efst í huga þakklæti fyr- ir allt sem hún var okkur. Hvað hún var okkur góð og sýndi okkur ávallt mikinn áhuga og elsku. Hún var líka sannur talsmaður barna og lá ekki á skoðun sinni þegar fullorðnir sýndu börnum óvirð- ingu eða yfirgang. Ég gleymi aldrei þegar hún tók Þjóðverja á beinið fyrir að steyta hnefa fram- an í mig 10 ára gamla. Hún hikaði ekki við að taka manninn í kennslustund í kurteisi og það á þýsku. Ég hef aldrei verið jafn stolt. Heilinn var sannarlega hennar sterkasta líffæri. Hann gaf sig aldrei og allt sitt líf hélt hún vits- munalegri reisn þrátt fyrir að lík- aminn hafi löngu verið farinn að bila. Veikindum sínum tók hún með æðruleysi og notaði síðustu árin vel við útsaum á á annan tug stóla handa sínum nánustu og verður það að teljast hreint af- rek. Ekki síst ef haft er í huga að vandvirknin og nákvæmnin var fyrsta flokks enda hefði hún aldr- ei látið hlutina frá sér öðruvísi. Hún hafði oft á orði að ef ekki væri fyrir stólana hefði hún löngu drepist úr leiðindum. Það var aldrei langt í húmorinn. Ég er líka þakklát fyrir allar skemmtilegu sögurnar sem hún sagði en umfram allt er ég þakk- lát fyrir allt sem hún kenndi mér og hún mun halda áfram að vera fyrirmynd mín svo lengi sem ég lifi. Ég þakka Guði fyrir að hafa fengið svona mörg góð ár með henni, að hafa ekki tekið hana fyrr þó að oft hafi tæpt staðið og gefið Harra Þór góðar minningar um hana. Hann á eftir að sakna hennar. Elsku amma mín. Það er mér afar kært að hafa verið hjá þér nóttina áður en þó fórst og fengið tækifæri til að segja þér hversu mikið ég elskaði þig og dáði. Þú varst frábær amma og ég á eftir að sakna þín mikið. Í hjarta mínu vona ég að þú hafir heyrt orð mín, skynjað nærveru mína og notið þess að við áttum þessa stund saman. Hvíl í friði í Jesú nafni. Soffía Kristín. Guðríður Egilsdóttir hélt upp á níræðisafmæli sitt með reisn sunnudaginn 10. janúar sl. Þar voru samankomnir ættingjar hennar og vinir, þar á meðal stór hópur fyrrverandi samkennara hennar við Hagaskóla og makar þeirra. Viku síðar var hún öll. Þess vegna verður þessi stund okkur minnisstæðari en ella. Guðríður kenndi um árabil við Hagaskóla og eignaðist þar marga trausta vini. Hún var sjálf vinmörg og vin- föst. Guðríður var afbragðsgóður og vandvirkur kennari, kenndi einkum líffræði og um tíma skrift eða þar til hún var lögð niður illu heilli. Hún lét ekkert koma sér úr jafnvægi og var afskaplega ráða- góð í ýmsum efnum. Mikið var leitað til hennar ef upp komu smáslys og leysti hún þau mál af kunnáttu og vandvirkni. Eftir að hún lét af störfum við skólann hélt hún tryggð við hann með reglulegum heimsóknum. Hún var einnig dugleg að heim- sækja vini sína frá Hagaskóla- árunum eða hafa samband við þá símleiðis. Það var stórgaman að sækja Guðríði heim. Hún var stálminn- ug á menn og málefni og hafsjór af fróðleik. Ástvinum hennar vottum við innilega samúð um leið og við kveðjum góða og minnisstæða konu. Fyrir hönd fyrrverandi sam- kennara hennar við Hagaskóla, Einar Magnússon. Guðríður O. Egilsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.