Morgunblaðið - 08.04.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.04.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 8. A P R Í L 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 80. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is –– Meira fyrir lesendur fylgir m eð Morgun blaðinu í dag DAGLEGT LÍF»10 VILHJÁLMUR OG ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR VÍKINGAR»16 HRINGURINN ÚTVÍKKAÐUR 6 Eftir Andra Karl andri@mbl.is YFIRGNÆFANDI líkur eru taldar á fleiri stefnum skilanefnda föllnu bankanna á hendur fyrri eigendum og jafnvel starfsmönnum þeirra, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Málin kunna að vera áþekk stefnu skilanefndar Glitnis á hendur sex einstaklingum. Formaður við- skiptanefndar Alþingis gleðst yfir framtakssemi skilanefndarinnar. Stutt er síðan skilanefnd Glitnis var kölluð á fund efnahags- og skattanefndar Alþingis – og reyndar viðskiptanefndar einnig. Nefndirnar lýstu þá meðal annars yfir áhyggjum sínum, að ekki væri búið að kæra neina. „Við lýstum yfir óánægju okk- ar með það,“ segir Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, en hún á auk þess sæti í efnahags- og skatta- nefnd. Lilja segir að skilanefndin hafi ekki minnst á að kærur væru í farvatninu. Hún fagnar því að fyrsta kæra skilanefndar sé fram komin. Páll Benediktsson, upplýsinga- fulltrúi skilanefndar Landsbankans, segir sérstakt rannsóknarteymi Deloitte í Lundúnum fara yfir vinnu- brögð og viðskipti innan bankans fyrir hrun. Þeirri vinnu sé ekki lokið en stöðufundur verður haldinn í næstu viku og hugsanlega upplýsist þá hvernig þeirri vinnu miðar. Hann segir of snemmt að segja til um hvort stefnur verði gefnar út. Ekki náðist í Steinar Guðgeirsson, formann skilanefndar Kaupþings. Gleðst yfir framtakssemi skilanefndar Glitnis banka  Sérstakt rannsóknarteymi Deloitte fer yfir vinnubrögð í Landsbankanum  Lárus fékk bein fyrirmæli | 8  Huginn VE, Margrét EA, Börkur NK og Ingunn AK fá mestan mak- rílkvóta einstakra skipa miðað við aflareynslu síðustu ár. Á viðmið- unartímabilinu kom Huginn með um 17.700 tonn að landi, eða 7,42% af heildaraflanum. Samkvæmt því koma um 8.300 tonn í hlut Hugins- manna. Margrét kom með um 16.600 tonn af makríl að landi, sem gera 6,93%. Ríflega 30 skip hafa veitt mest af makrílnum frá 2006. »14 Huginsmenn fá mest af makrílkvótanum í sumar „Ég hef ekki fengið neina fyrir- greiðslu hjá bönkunum,“ segir Jón Gerald Sullenberger, fram- kvæmdastjóri matvöruverslunar- innar Kosts. VIÐSKIPTI Í baráttu við bankakerfið 300 þúsund iPad-spjaldtölvur seld- ust fyrsta söludaginn. Sitt sýnist hverjum um ágæti tækisins; margir eru yfir sig hrifnir en aðrir hafa allt á hornum sér. Er iPad boðberi nýrra tíma? ÁRSREIKNINGI fjárfestingar- félagsins Fons fyrir árið 2006, sem lá til grundvallar 4,2 milljarða arð- greiðslu árið eftir, er að öllum lík- indum verulega ábótavant. Hlut- deild Fons í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga er að mati skipta- stjóra ekki tæmandi, þar sem af- koma einhverra dótturfélaganna sem lá til grundvallar arðgreiðslu miðaðist við áætlanir stjórnenda sem stóðust ekki. Til að mynda er ekki tekið tillit til afkomu félagsins Morab Limited, sem átti 100% í félagi sem hélt ut- an um rekstur einkaþotu. Heim- ildir Morgun- blaðsins herma að sá rekstur hafi nánast eingöngu falið í sér kostnað, sem hefði með réttu átt að koma niður á afkomu Fons á árinu 2006. | Viðskipti Ársreikningur Fons 2006 ófullkominn Pálmi Haraldsson MIKIL virkni er í nýju gossprung- unni á Fimmvörðuhálsi en eldri gígurinn er þagnaður í bili. Ár- mann Höskuldsson, jarðskjálfta- fræðingur hjá jarðvísindadeild Há- skóla Íslands, segir að breiður hraunstraumur liggi nú að vestari drögum Hvannárgils og renni einn til tvo kílómetra á klukkustund. Níu manna hópur vísindamanna frá jarðvísindadeild fór upp á Fimmvörðuháls í gær til að taka sýni og mæla útbreiðslu og þykkt hraunstraumsins. Ármann segir að bláar gosgufur stígi upp úr eldri gígnum en engar sprengingar. Það bendi til þess að hann sé að kólna. Á loftmyndum sést að þar er enn mallandi hraun- tjörn í lokuðum gíg. „Það er ansi lífleg virkni í nýju sprungunni og æði mikið hraun sem rennur frá henni,“ segir Ár- mann og telur ekkert lát á gosinu. „Það var viðbúið að sá gamli myndi þagna þar sem nýja sprung- an liggur lægra í landinu og þar er auðveldara fyrir kvikuna að ná upp,“ segir hann. helgi@mbl.is Eldri gígurinn að þagna Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt landslag Enn kraumar í hraunpolli eldri gígsins og litur að komast á landslagið í kring. Mikill hraunstraumur er í tvær áttir frá nýju sprungunni og hún hefur hlaðið upp strút sem sést lengst til vinstri. Flugvél Landhelgisgæslunnar hefur nýst vel við eftirlit og mælingar á gosstöðvunum. Breiður hraunstraumur rennur í Hvannárgil frá nýju gossprungunni á Fimmvörðuhálsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.