Morgunblaðið - 20.07.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.07.2010, Blaðsíða 30
Sóknarmenn Framlína Akurnesinga 1955. Fremstur er Ríkharður Jónsson, þá koma Jón Leósson og Þórður Þórðarson og efstir eru Halldór Sig- urbjörnsson (Donni) og Þórður Jónsson. Jón Leósson var á bekknum í lands- leiknum gegn Bretum 1956 og tók Helgi Björgvinsson stöðu hans. AF LANDSLIÐUM Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Spánverjar urðu heimsmeist-arar í knattspyrnu á dög-unum og var það verð- skuldað að flestra mati. Spánverjar léku flottustu knatt- spyrnuna þegar leið á mótið og leik þeirra gegn Þýskalandi bar þar hæst. Það vakti að vonum mikla at- hygli að í úrslitaleiknum tefldi Spánn fram landsliði sem hafði á að skipa sjö leikmönnum frá sama félagsliðinu, þ.e. Barcelona. Landslið Spánar var þannig skip- að: Casillas (Real Madrid), Ramos (Real Madrid), Piqué (Barcelona), Puyol (Barcelona), Capdevila (Villareal), Alonso (Real Madrid), Xavi (Barcelona), Sergio (Barcelona), Pedro (Barcelona), Villa (Barcelona) og Iniesta (Barcelona). En hverfum þá 54 ár aftur í tímann eða til 7. ágúst 1956. Þennan dag mættust í landsleik á Melavellinum í Reykjavík landslið Íslands og áhugamannalandslið Bretlands. Gíf- urlegur áhugi var fyrir leikn- um og 10 þús- und manns fylltu leikvang- inn á Melunum, þar sem Þjóð- arbókhlaðan stendur núna. Landslið Ís- lands var þannig skipað: Helgi Daníelsson (Akranesi), Árni Njáls- son (Val), Ólafur Gíslason (KR) Sveinn Teitsson (Akranesi), Einar Halldórsson (Val), Guðjón Finn- bogason (Akranesi), Halldór Sig- urbjörnsson (Akranesi), Rík- harður Jónsson (Akranesi), Þórður Þórðarson (Akranesi), Helgi Björgvinsson (Akranesi) og Þórður Jónsson (Akranesi).    Jú, mikið rétt. Átta af 11 leik-mönnum íslenska landsliðsins komu frá sama liðinu, Akranesi. En sagan er ekki öll sögð. Á 15. mínútu meiddist Einar Hall- dórsson og inn á kom níundi Skagamaðurinn, Kristinn Gunn- laugsson. Að eiga 9 menn inni á vellinum í sama landsleiknum er auðvitað einsdæmi hér á landi og eflaust þótt víðar væri leitað í heiminum. Og tíundi leikmaður Skagamanna, Jón Leósson, var einnig á bekknum en hann kom ekki inn á. Leikurinn tapaðist reyndar 2:3 en það er aukaatriði í þessum pistli. Mörk Íslands skor- uðu bræðurnir Ríkharður og Þórður Jónssynir. „Skýringin er einföld, við vor- um besta liðið á þessum árum,“ segir Helgi Daníelsson, markvörð- ur leiksins, þegar ég sló á þráð- inn til hans til að spyrjast fyrir um þennan eftirminnilega leik þar sem Skagamenn voru nánast í hverri stöðu. Á þessum árum sá þriggja manna landsliðsnefnd um að velja landsliðið og segir Helgi Hvað er líkt með Akra- nesi og Barcelona? » Og það er merkilegtað Akranes hefur hér vinninginn framyfir Bacelona. Allir leik- mennirnir voru inn- fæddir Skagamenn. Helgi Dan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2010 Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Shrek 4 3D enskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Predators kl. 5:40 - 8 - 10:20 LÚXUS Knight and Day kl. 8 - 10 B.i. 12 ára Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Killers kl. 10:30 B.i. 12 ára Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Sími 462 3500 Predators kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Knight and Day kl. 8 - 10 B.i. 12 ára Killers kl. 6 B.i. 12 ára Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó 650 kr. 650 kr. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Óttinn rís á ný... Í þessum svakalega spennutrylli - News of the World - Timeout London - Boston Globe Þau eru hættulegustu morðingjar jarðar En þetta er ekki jörðin okkar... 650 kr. GILDIR EKK I LÚXUS SA L SÝND Í SMÁRABÍÓI Bráðfyndin og hjartnæm frá byrjun til enda. Lang besta Shrek myndin og það eru engar ýkjur. - Boxoffice Magazine Þrívíddin er ótrúlega mögnuð. - New York Daily News FRÁBÆR GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA! SÝND Í Með lokakaflanum af Shrek tekst þeim að finna töfrana aftur. - Empire 650 kr. GILDIR EKK I Á 3D Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.