Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 9. A P R Í L 2 0 1 1  Stofnað 1913  84. tölublað  99. árgangur  SAMEINAR ÚTIVERU OG HANDVERK HELGI OG LEITIN AÐ FULLKOMNUN FEGURÐ, ORKA, ÞOKKI OG KÍMNIGÁFA SUNNUDAGSMOGGI SIRKUS ÍSLANDS 54JURTALITUN 10 Morgunblaðið/Ómar Afli Karfi í Grindavíkurhöfn.  Evrópusambandið telur mikil- vægt að stjórn fiskveiða á Íslandi verði löguð að lögum Evrópusam- bandsins vegna aðildarumsókn- arinnar. Þetta kemur fram í til- kynningu sambandsins en þar er bent á að íslensk stjórnvöld hafi lýst yfir að stjórn sjávarútvegsmála verði að hluta áfram á Íslandi. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir þessar upplýsingar alfarið rangar. „Fullveldisréttindi Íslands varð- andi efnahagslögsöguna eru algert grundvallaratriði í þessum samn- ingaviðræðum,“ segir Jón og bætir því við að „mjög alvarlegt“ sé að Evrópusambandið gefi nú út slíka yfirlýsingu. Ekki náðist í utan- ríkisráðherra vegna málsins. »2 ESB telur brýnt að Ísland aðlagi stjórn fiskveiða Öryggisleysi » Gæslan hefur aðeins á tveimur þyrlum að skipa sem stendur, TF-LÍF og TF-GNÁ. » Þegar önnur þeirra er í skoðun, eins og háttar til núna, má hin ekki fljúga lengra en 20 mílur frá landi. Nánast alltaf eru mörg skip lengra úti á sjó. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Til alvarlegrar skoðunar er að lífeyr- issjóðir fjármagni skuldabréf sem notað yrði til kaupa á þyrlu, sem aft- ur yrði leigð Landhelgisgæslunni, sem glímir við mikinn tækjaskort. Með þessu móti væri hægt að tryggja lægri vaxtakjör en líklegt er að fengjust annars staðar, og ríkið gæti sömuleiðis sparað sér gjaldeyri. Lífeyrissjóðir hafa tekið vel í hug- myndina, sem er áþekk þeim sem reifaðar hafa verið í tengslum við vegaframkvæmdir „framhjá“ fjár- lögum, og hún verið kynnt í innan- ríkisráðuneytinu. Verðmiðinn á einni þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna er að líkindum ekki undir sex milljörðum króna og því gæti sparnaðurinn hlaupið á háum fjárhæðum. Þyrluskipan kynnt eftir helgi Á fundi ríkisstjórnarinnar næst- komandi þriðjudag mun Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra leggja fram tillögur að skipan þyrluflota gæslunnar næstu sex til níu árin, en hana vantar tvær þyrlur til viðbótar til þess að geta sinnt leitar- og björg- unarhlutverki sínu sem skyldi. Sam- kvæmt fyrirliggjandi samkomulagi við Noreg mun Ísland taka þátt í stórum þyrlukaupum. Íslendingar kaupa þó aðeins eina þyrlu sem kæmi í fyrsta lagi til afhendingar á síðari hluta árs 2017. Jafnframt verður samið um rétt til þess að kaupa tvær þyrlur til viðbótar. MLífeyrissjóðir kaupi þyrlu »6 Lífeyrissjóðir kaupi þyrlu  Aðkoma sjóðanna að kaupunum gæti sparað ríkinu milljarðavirði af gjaldeyri  Verðmiðinn á einni þyrlu um sex milljarðar en helst þyrfti að kaupa tvær Morgunblaðið/Baldur Arnarson Í fremstu röð Helgi við gamalt kort af Íslandi á skrifstofunni ytra. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það væri afskaplega gaman að geta komið einu sinn enn með dansflokk- inn heim. Nú veit ég ekki hvernig tónlistarhúsið Harpan er eða hvort ballettinn geti fengið tækifæri til að komast þangað inn. Það væri gaman að skoða Hörpuna og kynna sér hvernig aðstæður væru til þess að komast heim aftur,“ segir Helgi Tómasson, listrænn stjórnandi San Francisco-ballettsins, í samtali við Sunnudagsmoggann. Helgi gaf kost á viðtali á skrifstofu sinni í San Francisco í lok mars en hann var þá í óðaönn að undirbúa nýjar ballettsýningar. Einn sá mikilvægasti Blaðamaður náði loks tali af David Wiegand, listgagnrýnanda San Francisco Chronicle, í gærkvöldi en hann hefur lengi fylgst með Helga. „San Francisco-ballettinn er á þessu stigi álitinn einn fremsti ball- ettflokkur Bandaríkjanna,“ segir Wieband en nánar er rætt við hann á fréttavef Morgunblaðsins. Helgi vill koma í Hörpuna  Stjórnandi San Francisco-ballettsins spenntur fyrir húsinu Óvenjumargir höfðu greitt atkvæði utan kjör- fundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave þegar kjörstöðum var lokað klukkan tíu í gær- kvöldi, miðað við í undanförnum kosningum. Alls höfðu 24.409 greitt atkvæði, þar af um fimmtán þúsund í Laugardalshöllinni. Stöðugur straumur kjósenda var í Höllina í gær allt til lokunar, þeg- ar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Á kosningavef innanríkisráðuneytisins segir að 5% kjósenda, 11.608, hafi lögheimili erlendis en athygli vekur að þeim hefur fjölgað um 1.667 frá síðustu alþingiskosningum eða um 16,8%. Stefnir í mikla kosningaþátttöku Morgunblaðið/Eggert  Orri Vigfús- son, formaður NASF, Vernd- arsjóðs villtra laxastofna, segir að Orkuveita Reykjavíkur taki vel í hugmyndir hans um að Ár- bæjarstífla verði opnuð og Elliða- ánum hleypt óhindrað eftir sínum gömlu farvegum. Rafmagn hefur ekki verið framleitt í Rafstöðinni í Elliðaám í tæpt ár og hjá OR er rætt um að stöðin verði aðeins ræst til hátíðabrigða eða notuð sem varaaflgjafi. »20 Vill gera tvö göt á Árbæjarstíflu Orri Vigfússon Íslenskir bankar gætu þurft að endurreikna öll erlend lán á bókum sínum, að sögn Eiríks S. Svavarsson- ar lögmanns í samtali við Morgun- blaðið. Hæstiréttur kvað 8. mars síð- astliðinn upp úrskurð sem vart verður skilinn öðruvísi en að fjöl- myntalán, eða myntkörfulán, sem einkahlutafélag tók á árinu 2008 standist ekki lög um vexti og verð- tryggingu. Þar var um að ræða mál sem NBI höfðaði gegn einkahluta- félagi, sem skuldaði slíkt lán. Af úrskurðinum má ráða að Hæstiréttur hafi tekið afstöðu til lögmætis fjölmyntalána, og talið þau ólögmæt. Eiríkur segist sammála þeim skilningi. Annað verði vart ráð- ið af úrskurðinum. Eiríkur segir að samkvæmt þessu og áður föllnum dómum Hæstarétt- ar um lögmæti lána líti út fyrir að nær öll erlend lán íslenskra banka þurfi að reikna upp á nýtt. Áhrifin gætu verið nokkur á NBI, en ein stærsta eign skilanefndar Lands- bankans, sem á að ganga upp í Ice- save, er skuldabréf á NBI. Bankinn hefur um 235 milljarða af erlendum lánum á sínum bókum. »26 Gæti þurft að endur- reikna öll erlend lán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.