Siglfirðingur


Siglfirðingur - 17.05.1952, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 17.05.1952, Blaðsíða 1
« FORSET AKOSNIN G ARN AR: SÉRA BJARNIJÓNSSON i FRAMBODI Sjálfstæðisflokkurimi og Framsóknarflokkurinn lýsa yfir stuðningi við hann. —0O0— SAMKOMULAG Föstudaginn 9. maí s.l. tókst samkomulag milli Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl. um framboð séra Bjarna Jónssonar við væntanlegt forsetakjör. Þeir, sem kjósa víð- tækt samstarf til sköpunar þjóðar einingar við forsetakjörið, hljóta að fagna því, að tveir stærstu stjórnmálaflokkar þjóðarinnar hafa bundist samtökum um kosn- ingu eins af ágætustu sonum fóst- urjarðarinnar, séra Bjana Jóns- sonar v'igslubiskups. ÖLLUM KUNNUR Séra Bjarni Jónsson er þjóðinni allri löngu kunnur. Hann er fædd- ur í Rvík 21. okt. 1881. Foreldrar hans voru Jón Oddson, vérkamað- ur og kona hans, Ólöf Hafliða- dóttir. Hann lauk stúdentsprófi 1902 og embættisprófi í guðfræði við Hafnarháskóla 1907. Var um skeið skólastjóri á ísafirði og dómkirkjuprestur í Rvík frá 1910 til 1951. Vígslubiskup í Skálholts- stifti varð hann árið 1937. Hann hefur um langt skeið verið for- maður Kristilegs félags ungra manna í Rvík. Árið 1941 sæmdi Háskóli íslands hann nafnbótinni heiðursdoktor 1 Guðfræði. Séra Bjarni kvæntist árið 1913. Ás- laugu Ágústsdóttur, dóttur Ágústs Benediktssonar, þáv. verzl unarstjóra á Isafirði, sérlega glæsi legri og góðri konu. ÞJÓÐAREINING Séra Bjarni Jónsson er mjög vinsæll meðal þjóðarinnar. — I Reykjavík, þar sem hann hefur lengstum starfað, mun enginn finnast honum vinsælli. En vin- sældir hans ná til hverrar byggð- ar á landinu. Hann hefur litið komið við stjórnmálaerjur, en er þó manna glöggastur á stjórn- málal’if landsins. Hann mun þv', sökum sinnar ópólitísku afstöðu, sökum vinsælda sinna og síðast en ekki sízt vegna hæfni sinnar og mannkosta verða þess umkominn að efla samhug með þjóðinni og verða henni það einingartákn, sem forseti lýðveldisins á að vera. LOKAORÐ Það mun hafa komið mörgum á óvart, að svo ópólitískur maður, maður svo víðs fjarri erjum og aðkasti stjórnmálalifsins á Is- landi, skyldi fá stuðning tveggja stærstu stjórnmálaflokka þjóðar- innar við forsetakjör. En við 'ihug un málsins verður ljóst, að hér hefur einmitt verið réttilega á málum haldið. Þessi alþýðlegi mannvinur, mikilhæfi kennimaður, hámenntaði og gáfaði ættjarðar- vinur, mun einmitt líklegastur til að viðhalda og auka þá virðingu forsetaembættisins, sem hinn látni forseti skóp því meðal sinn- ar eigin þjóðar og annarra. Til stuðningsmanna séra Bjarna Jónssonar Þeir kjósendur í Siglufjarðarkaupstað, sem góðfúslega vildu gjörast meðmælendur séra Bjarna Jónssonar, vígslubiskups, við væntanlegt forsetakjör 'islenzka lýðveldisins, skal bent k\ að eftir- taldir aðilar annast meðmælasöfnum: ANDRÉS HAFLIÐASON, forstjóri ÞORKELL JÓNSSON, bifreiðastjóri AAGE SCHIÖTH, lyfsali JÓN KJARTANSSON, bæjarstjóri PÉTUR BJÖRNSSON, kaupmaður STEFÁN FRIÐRIKSSON, lögregluþjónn JÓN STEFÁNSSON, framkvæmdastjóri Alfons Jónsson KAUPMAÐUR Fæddur 26. júlí 1896. Á þriðjudagsmorguninn 29. apr. s.l. barst til bæjarins sú harma- fregn, að Alfons Jónsson kaup- maður hér í bæ hefði látist snögg- lega á Hótel K.E.A. á Akureyri. Menn setti hljóða. Fregnin kom óvænt. Alfons hafði kvöldið áður kvatt nokkra kunningja sína og venzlafólk, glaður og reifur og stigið á skipsfjöl á s.s. Selfoss, er var á leið til Akureyrar. Alfons var fæddur að Bakka á Tjörneshreppi 26. júlí 1886. For- eldrár hans voru Jón Guðmunds- son, er síðast var verzlunarstjóri við • ,,Hinar sameinuðu islenzku verzlanir“ áður Gránufélagið á Siglufirði, og Jóhanna Jónsdóttir. Voru þau hjón af góðum þing- eyskum bændaættum komin, og nutu trausts samferðafólks síns í hvívetna. Alfons fluttist með foreldrum sínum ungur að aldri til Húsa- víkur, en eftir fárra ára dvöl þar, fluttist hann með þeim til Akur- eyrar. Þangað réðist faðir hans sem sýsluskrifari. Árið 1910 fluttust hjónin til Siglufjarðar með fjölskyldu sína,‘ þegar Jón gerðist verzlunarstjóri Hinna sameinuðu verzlana, sem fyrr segir. Alfons var settur til mennta og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanmn i Reykjavík vorið 1918. Síðan dvaldi hann einn vetur í Köbmandsskolen í Kaupmanna- höfn og lauk þaðan verzlunar- prófi vorið 1920. Svo virðist, sem — Dáinn 29. apríl 1952. hann hafi ekki fundið fullnægju við fengna menntun, því þegar heim kom frá Danmörku, innritað ist hann í Háskóla íslands og tek- ur til við laganám, og lagaprófi frá Háskóla Islands lauk hánn árið 1926. Að loknu prófi, eða haustið 1926, setti hann á stofn málaflutn.skrifstofu hér og starf rækti hana að jafnaði. Jafnframt rak hann umfangsmikinn at- vinnurekstur, og stofnaði skipa- verzlun Víkings ásamt vefnaðar- vöruverzlun, sem hans ágæta kona aðallega hafði forstöðu fyrir. Ýmsum trúnaðarstörfum gegndi Alfons. Hann var bæjarfulltrúi um skeið og sat 'i ýmsum nefnd- um, sem störfuðu á vegum bæjar. 1 útgerðarstjórn bæjarins átti hann nú sæti að hálfu Sjálfstæðis- flokksins. Hann var einn stofnandi Rotary klúbbs Siglufjarðar og annar for- seti hans. Vararæðismaður Finnlands, i Siglufirði, varð hann árið 1930 og liðsinnti hér finnskum mönnum, er hingað komu. Vann hann sér mikils álits og trausts meðal finnsku þjóðarinnar og hlaut við- urkenningu fyrir störf sín. Var hann tvívegis sæmdur heiðurs- merkjum, Ljónsorðunni og Hvítu Rósaorðunni. Einnig var hann sæmdur Frelsisorðu Kristjáns konungs X. (Framhald á 2. síðu) Samþykkt fulltrúaráðs Sjálfstæðis- félaganna hér. Á fundi í fulltrúaráði Sjálf- stæðisfélaganna í Siglufirði var eftirfarandi tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæðum s.l. mánudag: „Fundur í fulltrúaráði Sjálf- stæðisfél. í Siglufirði lýsir yfir eindregnu fylgi sínu við framboð séra Bjarna Jónssonar við væntan legt forsetakjör og heitir honum fýllsta stuðningi“.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.