Austurland - 15.11.1984, Blaðsíða 1
Austurland
Loftolíusíur
í flesta bfla
Benni & Svenni
S 6399 & 6499
34. árgangur.
Neskaupstað, 15. nóvember 1984.
42. tölublað.
Fulltrúar Verslunarmannafélags Austurlands áþingi ASA. Sitjandi
f. v. Sigrid Toft, Egilsstöðum, Sigurjón Bjarnason, Egilsstöðum
og Guðrún Jóhannsdóttir, Neskaupstað. Standandi f. v. Björn
Jónsson, Reyðarfirði, Guðjón Sigmundsson, Reyðarfirði og
Magnús Pálsson, Egilsstöðum. Ljósm. B. S.
Verslunarmannafélag
Austurlands í ASA
Helgi Seljan:
Skattalækkun - eða hvað?
Á þingi Alþýðusambands
Austurlands síðustu helgi í okt-
óber var samþykkt innganga nýs
félags í sambandið. Það félag,
sem hér um ræðir, er Verslun-
armannafélag Austurlands.
Formaður þess er Björn
Jónsson, verslunarstjóri hjá
KHB á Reyðarfirði.
Blaðamaður AUSTUR-
LANDS náði tali af honum á
þingi ASA og spurði hann fyrst
um aldur félagsins og félags-
svæði.
■ Verslunarmannafélag Aust-
urlands var stofnað 1960 og var
þá aðeins fyrir Reyðarfjörð og
Egilsstaði. Síðan var smábætt
við félagssvæðið, það náði til
Eskifjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Fellabæjar og Vopnafjarðar.
Árið 1973 var félagssvæðið enn
stækkað og nær nú yfir allt svæð-
ið frá Bakkafirði til Djúpavogs
eða bæði Norður- og Suður-
Múlasýslur og alla kaupstaðina.
□ Hvað eru félagsmenn margir
nú?
■ Þeir eru rúmlega 270.
□ Hverjir skipa stjórn félagsins?
■ Björn Jónsson, Reyðarfirði
er formaður, Magnús Pálsson,
Egilsstöðum, ritari og Dagmar
Ásgeirsdóttir, Neskaupstað er
gjaldkeri.
□ Pið hafið starfsmann og rekið
skrifstofu?
■ Já, við höfum starfsmann í
hálfu starfi, og hefur svo verið
í um tvö ár. Starfsmaður okkar
er Sigrid Toft á Egilsstöðum, og
skrifstofan er til húsa að Selási
11, Egilsstöðum.
□ Nú hafið þiðfengið inngöngu
í ASA, en þið hafið verið aðilar
að Alþýðusambandi íslands
lengi, er það ekki?
■ Jú, félagið er aðili að Lands-
sambandi íslenskra verslunar-
manna og þannig í ASÍ, síðan
verslunarmenn fengu inngöngu
þar.
□ Hafið þið hag afaðild að Al-
þýðusambandi Austurlands?
■ Já, ég tel, að báðir aðilar hafi
hag af því. Aðild okkar styrkir
sambandið og á að styrkja okk-
ur um leið.
□ Hvernig er staðan í samninga-
málum ykkar nú?
■ Samningar eru í gangi í sam-
floti með öðrum félögum versl-
unarmanna utan Reykjavíkur.
Samningar ganga hægt og rólega
enn sem komið er. Þar hefur
nánast ekkert gerst, sem bita-
stætt er, sagði Björn að lokum.
B. S.
Mjög hefur að undanförnu
verið rætt um skattalækkun sem
heppilegustu leiðina til kjara-
bóta fyrir launafólk í landinu.
Það er að vonum, að menn velti
fyrir sér leiðum og m. a. þessari,
horfandi á þann mikla fjölda,
sem sleppur undravel við sín
gjöld til samfélagsins. En viss
uppgjöf felst þó í þessu, því að
vissulega getur tekjuskatturinn
verið jöfnunartæki og minna
má á það, þegar talað er um mis-
munandi launakjör á vinnu-
markaðnum og breitt bil á milli
beinna launatekna hinna ýmsu
starfshópa, að þá jafnar tekju-
skattur verulega þetta bil, enda
til þess hugsaður.
Uppgjöf sagði ég, því að þar
með er endanlega gefist upp við
það verðuga viðfangsefni að ná
til þeirra, sem svíkja undan
skatti og láta þá sleppa við sinn
skerf til samneyslunnar okkar.
Menn hafa einnig með þessu
horfið frá þeim möguleika að
skattleggja eignir og sannanleg
umsvif og virðast ætla að láta
neysluskattana eina nægja.
En ekki er heldur allt sem
sýnist í öllu þessu skattalækkun-
artali. Sporin hræða, þegar ráð-
herrar setja upp helgisvip og
láta sem þeir vilji létta byrðum
af launafólki. Eða hvað skyldi
fjárlagafrumvarpið segja um
þetta. Jú um tekjuskattinn segir
eftir nánari útlistun á áfanga-
skiptingu tekjuskattslækkunar:
„Lækkun tekjuskatts í þessum
í síðustu viku fór fram alls-
herjaratkvæðagreiðsla meðal
opinberra starfsmanna um ný-
gerða aðalkjarasamninga. Hafa
samningarnir alls staðar verið
samþykktir, eins og talið var
nær fullvíst í síðasta blaði
AUSTURLANDS.
11.812 ríkisstarfsmenn voru
á kjörskrá og atkvæði greiddu
áfanga er talin nema um 600
milljónum króna.“ Dáfallegt
fyrirheit það. En þetta er á blað-
síðu 222 í því góða frumvarpi.
En svo kemur blaðsíða 224,
þar sem kemur að söluskattin-
um og þar segir um 15.5%
hækkun söluskattstekna, að það
sé vegna þess að „gert hefur ver-
ið ráð fyrir sérstökum tekjuauka
til þess að mæta tekjutapi vegna
lækkunar tekjuskatts á næsta
ári, annað hvort með almennri
hækkun söluskatts eða víðtæk-
ari álagningargrunni."
Og þá hafa menn það.
Hringnum er lokað og hvar er
gróði launafólksins? Víðtækari
álagningargrunnur getur m. a.
falið í sér söluskatt á brýnustu
matvörur. Líst mönnum ekki
vel á skiptin? Hér þarf því að
ýrnsu að huga. Og hvað var nú
Vinnuveitendasambandið að
bjóða launþegum upp á nú á
dögunum. Þeirfrjálshyggjufugl-
ar buðu upp á niðurskurð fjár-
laga, buðu þeim sem það vildu,
að taka nú ómakið af ríkis-
stjórninni og senda fallegar til-
lögur beint inn á borð til þeirra.
Og hvað skyldi nú hafa átt að
skera? Jú, auðvitað landbúnað-
inn um nokkur hundruð millj-
ónir, tekjutap bænda beint og
óbeint um 5 -10% skipti auðvit-
að engu.
En fleira fór undir hnífinn.
Námsmenn fengu kærleiks-
kveðju upp á 100 milljóna
niðurskurð. Menntun og menn-
9.654 eða 81.73%. Já sögðu
6.210 eða 64.3%. Nei sögðu
1.318 eða 13.7%. Auðir seðlar
voru 2.100 eða 21.7%. Ógildir
seðlar voru 26 eða 0.3%.
Hjá Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar voru 2.452
á kjörskrá og atkvæði greiddu
1.527 eða 62.3%. Jásögðu 1.175
eða 77%. Nei sögðu 145 eða
8.7%. Auðir seðlar voru 211
eða 14%. Ógildir seðlar voru 6
eða0.3%.
Þessi úrslit eru vissulega af-
gerandi, en samt sem áður vek-
ur athygli, hversu margir eru á
móti og ekki síður, hversu
margir skila auðu. Úrslitin má
því ótvírætt túlka sem mikla
óánægju með samningana, þó
að þeir hafi verið samþykktir.
B. S.
ing fengu heldur betur á bauk-
inn. Heilsugæslan fór ekki var-
hluta af niðurskurðargleðinni.
Og þetta var gert við fjárlaga-
frumvarp, sem felur í sér raun-
gildislækkun þessara framlaga
nú þegar í ríkum mæli. Hið
göfuga markmið um skatta-
lækkun átti sem sé að skerða þá
leið, sem fólk vill síst skerða.
Vegamálin voru gott dæmi. Þar
var talað um hundruð miljóna
niðurskurð. Og allt var eftir
uppskrift Hannesar Hólmsteins
og Verslunarráðsins hans Ragn-
ars í álinu.
Væri nú ekki rétt að hugsa sig
um, stinga við fótum og fara að
með allri gát? Illa væri komið
íslensku launafólki, ef það léti
blekkjast, fengi neysluskatta í
stað tekjuskattsins s. s. fjárlaga-
frumvarpið boðar og ef lands-
byggðarfólk kallaði yfir sig stór-
skert framlög til þeirra mála-
flokka, sem þar skipta sköpuin.
Hvað um þá tekjulægri, sem í
dag greiða engan eða mjög lág-
an tekjuskatt, en fengju á sig
yfir 20% hækkun brýnustu
nauðsynja? Hugsi menn vel um
það. Fjárlagafrumvarpið nú er
aðvörun. Niðurskurðarhug-
myndir VSÍ eru einnig verulega
uggvekjandi. Það erholhljómur
í hinu fagra hjali um skattalækk-
unina.
Og sú ríkisstjórn, sem fæst við
það helst að flytja fjármagnið í
bissnisinn frá fólkinu, hún má
ekki fá stuðning eða uppáskrift
launafólks með þessum hætti.
Sporin hræða hvarvetna.
Félagsvist AB
er í kvöld í Egilsbúð
og hefst kl. 2045
Alþýðubandalagið
Björn Jónsson. Ljósm. B. S.
BSRB samningarnir samþykktir