Eining - 01.01.1950, Blaðsíða 1

Eining - 01.01.1950, Blaðsíða 1
> ♦ * f Margt gott. Eitt allra bezt Prédikarinn, sem gruflaði og braut heilann um tilveruna, unz honum þótti sem allt væri hégómi — aumasti hé- gómi, sá samt ýmislegt gott undir sól- inni, og eitt allra bezt. Hann hvetur t. d. manninn til þess að neyta fæðu sinnar fagnandi og njóta lífsins með konu sinni, því að þetta sé góð hlutdeild mannsins. En hið bezta af öllu undir sólinni þótt honum það, að maSurinn vœri glaSur viS verk sitt. — Starfið er hið varanlega, hið daglega, og sá sem er glaður við verk sitt, hann er farsæll, enginn annar. Vinnugleðin hefur farið mjög forgörð- um í seinni tíð. í öllum hamingjunnar bænum, reynum að endurvekja vinnu- gleðina. Verksmiðjuiðnaðurinn og sérgrein- ing vinnunnar hefur gert hana mörgum að þraut, jafnvel kvöl. Fjöldi manna starfar eins og hjól í vél, handleikur að- eins einhvern einn hlut úr heild og nýt- ur aldrei þeirrar fullnægingar að sjá eitfc- hvað heilt og fullkomið verða til í hönd- um sér. Þetta hlutskipti manna útheimtir enn meiri snilld en áður til þess að rækta hjá sér vinnugleðina. Til þess að svo geti tekizt, þarf maðurinn að vera fyrsta flokks samvinnumaður, finna ánægjuna í samstarfinu, hann þarf að eiga rót- gróna meðvitund um mikinn tilgang lífs- ins, og til þess að geta trúað á slíkan tilgang, þarf maðurinn að snúa sér til Guðs og lifa í nálægð hans, í órofasam- bandi við Guð. Heimspekilega séð, gætum við sagt, að það skipti engu máli, hvort Guð er til eða ekki- Maðurinn þarf að lifa í sam- félagi við Guð. Guð er hin æðsta hug- sjón mannsins. Það er maðurinn, sem hefur hugsað sér Guð, og þessi Guð mannsins er góður, fullkominn, kær- leiksríkur, miskunnsamur og réttlátur. Og þessi Guð er lokamarkmið hins mannlega þroska. Þessi Guð mannsins er faðir allra manna og vill að mennirnir lifi í sátt og samlyndi, elski hver annan og styðji hver annan. Það er því augljóst mál, að slík guðs- trú, slík guðshyggja, er hinn eini hald- góði grundvöllur undir öllu lífi manna, og fyrsta skilyrðið til vinnugleði og var- anlegrar hamingju. Regla góðtemplara i Svíþjöð 70 ára. Góðtemplarareglan í Svíþjóð minnt- ist mjög hátíðlega 70 ára afmælis síns í nóvember s. 1. Um 14 hundruð manns tók þátt í fjölbreyttri og hátíðlegri sam- Hátemplar Ruben Wagnsson landshöfSingi. komu í sönghöll Stokkhólmsborgar, en um 12 hundruð mættu til fundar í hin- um gullna- og glæsilega hátíðasal ráð- hússins (Stadshuset) og sóttu þá um inntöku 73 nýir félagar. Var þetta svip- mikill og óvenjulega glæsilegur fundur. Bæði ríkisstjómin og riksdags-menn (þingmenn) fluttu reglunni árnaðarósk- ir og luku lofsorði á menningarstarf hennar í þjóðfélagnu. Þeir hafa ekki verið á sömu skoðun og eitt sorpblað á Islandi, sem sagt er að leiki sér að því að níða regluna. Afmælisgjafir bárust sænsku regl- unni við þetta tækifæri. Samband sam- vinnufélaganna gaf fimm þúsund krón- ur, og ýmsir aðrir stærri og minni gjaf- ir. Um 600 hátíðarfundir og samkomur voru víðsvegar um landið. Það var 4. og 5 nóv. 1879 að fyrsta sænska góðtemplarastúkan var stofnuð í Göteborg, er baptistapresturinn Olof Bergström hafði flutt erindi. Nú eru 167,000 góðtemplarar í Svíþjóð og innan reglunnar þar eru 2000 náms- hringir. Hún á 1600 bókasöfn með samtals 850,000 bindum, og 1100 sam- komu- og fundarhús. Reglan í Svíþjóð er ein af sterkustu félagssamtökum þar í landi. Á jólafösftu. Eftir dr. Richard Beck. Nú hleSur vetur dánum laufum leiSi úr liljuhvítum snjó. ÞaS skeflir yfir hvert blómaspor, en frœ í foldu lifir, þó frotsins hrammur gróSri jarSar eySi. Á þekju brotnar hríSar hörpusláttur, sem hafiS þungt viS ströndu andann dragi; en stormsins reginsterki bragarháttur á strengjahreim frá vorsins blíSa lagi. ÞaS undirspil í eyrum ncemum hljómar sem ódauSleikans páskasöngur fagur; á gröfum vetrarlífsins stjarna Ijómar, úr lengstri nóttu rís oss jóladagur. Prófessor Richard Beck sendir öllum vinum sínum og samherjum á Islandi sínar beztu nýársóskir. Ljóð hans barst of seint til þess að það gæti komið í jóla- blaðinu.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.