Einherji - 10.04.1979, Blaðsíða 8
8
EINHERJI
Þriðjudaginn 10. apríl 1979
Eina óskin — Síðasta
Óskin framhald afsíðu 10
En nú gerðust skrítnir hlutir,
forystumaður Alþýðuflokksins
vildi enga kröfu gera til þessa
nefndarsætis, og ekki styðja til-
lögu um stuðning við sinn eigin
mann.
Hér dagaði nátttröllið í Al-
þýðuflokknum uppi eins og oft
áður við fætur húsbænda sinna,
og kom þannig í veg fyrir að
Alþýðuflokkur ætti tvo fulltrúa
í veitunefnd.
Ekki mun hér vera um fyrsta
skipti að ræða, þar sem Jóhanni
Möller virðist vart sjálfrátt í
viðskiptum kommúnista, því í
upphafi síðasta kjörtímabils
þurfti Sigurjón Sæmundsson,
Rafveitumál í Siglu-
firði framhald af forsíðu.
Rafveita Siglufjarðar er
þriðja elsta almennings rafveit-
an á landinu, stofnsett 18. des.
1913. Síðan hefir starfsemi
hennar verið aukin og endur-
bætt af bæjarstjórn, eins og
þarfir hafa verið á hverjum
tima og ætíð við erfið skilyrði.
Stærsta átakið í orkuöflun
var gert árið 1945, þegar Skeið-
fossvirkjun var byggð, hún var
síðan stækkuð 1953 í 3.2 M.W.
Skeiðfossvirkjun var stækkuð
með virkjun við Þverá árið 1976
um 1.7 M.W. og er nú 4.9 M.W.
Árið 1955 voru Fljótin rafvædd
ög tengd virkjuninni og árið
1956 var Ólafsfjörður tengdur
með línu yfir Láheiði. Þannig er
orkusvæðið nú, Siglufjörður,
Ólafsfjörður, Fljót og utanverð
Sléttuhlíð í Skagafirði. Á þessu
svæði búa nú samtals um 3.500
manns.
Rafveita Siglufjarðar naut
Síldarverksmiðju ríkisins og
síldarverksmiðju bæjarins,
Rauðku, um varaafl framan af
árum, en þegar síldin hvarf og
mikilvægi raforkunnar vegna
heimilisnotkunar og vaxandi
iðnaðar jókst byggði rafveitan
sína varastöð.
Keypt var notuð 1.000 K.W.
vél frá Bretlandi og sett upp í
gömlu rafstöðina við Hvann-
eyrará árið 1966. Tveim árum
seinna var keypt notuð 500
K.W. vél og með því afli ásamt
þeim vélum sem enn eru eftir
hjá S.R. var þokkalega séð fyrir
varaafli á orkuveitusvæðinu.
Þetta varaafl nýttist að sjálf-
sögðu einnig fyrir notendur
Rafmagnsveitna ríkisins, á
orkuveitusvæðinu, þ.e. Ólafs-
firðinga og Skagfirðinga í
slæmum vatnsárum Skeiðsfoss-
virkjunnar.
Þannig kom það í hlut Sigl-
firðinga að leysa þetta félags-
lega verkefni fyrir nágranna
sína, þ.e. útvega þeim raforku
og byggja upp varaafl. Dreifi-
línur voru lagðar af Rarik og
sveitarafvæðing greidd af fjár-
lögum hvers árs.
Orkuveitusvæði rafveitunnar
er um norðanverðan Trölla-
skaga, sem landfræðilega er
fyllilega sambærilegur við
Vestfirði og Austfirði.
IV. Niðurstöður:
Til þess að rekstur Rafveitu
Siglufjarðar komist í eðlilegí
horf, þarf að létta lánabyrði af
fyrirtækinu vegna stækkunar
Skeiðfossvirkjunar og endur-
greiða verðjöfnunargjald.
4.1. í fyllsta máta er óeðlilegt að
meta ekki, hvað Rarik hefur
verið sparað með rekstri
Skeiðsfossvirkjunar og vara-
stöðvar í Siglufirði frá árinu
1956.
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
að fara út í hart við Jóhann út af
því, að Jóhann heimtaði að Al-
þýðuflokkur gæfi eftir bæjar-
ráðssæti í síðasta meirihluta til
AlþýðubandaL og Framsókn-
arflokkurinn rafveitunefndar-
sæti til sömu aðila.
Rök Sigurjóns þá voru þau,
að ef Alþýðuflokksfólk óskaði
eftir fulltrúum úr Alþýðu-
bandalagi í nefndir, þá myndi
það kjósa Alþýðubandalagið,
en ekki Alþýðuflokkinn.
Nú virðist enginn hafa verið
til þess að benda á þessa hluti,
og því komið sem komið er.
Síðasta ósk bæjarfulltrúa Al-
þýðuflokks við kosningu þess-
ara nefnda, var því ekki Al-
þýðuflokksmenn í stjórn heldur
Alþýðubandalagsmenn í stjórn.
Samningur um þessa orku-
sölu hefur ekki verið í gildi síð-
an árið 1969.
Uppgjör á þessum sparnaði
Rarik gæti hugsanlega farið
fram annaðhvort með niður-
fellingu eða endurgreiðslu
verðjöfnunargjalds eða á hug-
myndum um tvískiptingu þátta
raforkudreifingarinnar, þ.e. í
þann sem ber sig og hinn fé-
lagslega sem menn eru sam-
mála um, að ríkið eigi að kosta.
4.2. Þegar lán voru veitt til
stækkunar Skeiðsfossvirkjunar
1974-1976 voru lánin veitt til 5
eða 15 ára. Ljóst er að slíkur
lánstími er alltof stuttur.
Lánin eru gengistryggð og
eitt vísitölubundið og er það að
öllum líkindum eina vísitölu-
bundna lánið í landinu, sem
veitt hefur verið í vatnsafls-
virkjun. Þessum lánum þarf að
breyta til lengri tíma og fella af
vísitöluákvæðin, þannig að raf-
veitan sitji ekki við afarkosti í
þessu tilviki miðað við sam-
bærileg raforkuver.
Siglufirði, 8. desember 1978
Sverrir Sveinsson
Rafveitustjóri
Brunabótaiðgj.
framhald afsíðu 3.
Tilboð í>ta. lðgj.taxti Iðgj.m/sölusk
Brunabóta 0,755 0/00J kr. 19.890,00
fél. fsl.
Samvinnu Q620 0/001 kr. 16.333,00
tr.
Mismunurkr. 3.557,00
Dæmi III.
Brunabótamat efri hæðar
Háveg 34, sem er steinhús, er
með áætlaðri byggingavísitölu
kr. 15.808,000,-
Tilboð Iðgj. taxti Iðgj.m/sölusk.
Brunabótar 0272 0/00) kr. 5.158.00
fé. fsl.
Samvinnu 0.260 0/00 kr. 4.932.00
tr ----------
M ismunur kr. 226,00
Iðgjaldamismunur þessara þriggja
Mótmœli Bœjarstjórn-
ar Siglufj. vegna —-
framhald af síðu 2.
ur veiðitakmarkanir á togarana
allt í kring um landið, veitir
hann 35-40 loðnuskipum
heimild til þorskveiða, án
nokkurra takmarka, beint i
hrygningarfiskinn.
Hér verður því landsbyggðin,
bæði sveitarfélög, útgerðaraðil-
ar og verkalýðfélög að taka
strax í taumana, því hver veit
hvað allur þessi floti getur rifið
upp af fiski á vertíðinni, ef
.engin takmörk eru sett.
Þá hlýtur að skjóta upp í
huga fólks, hvað gerist ef búið
er að veiða 280-290 þúsund
tonna hámarkið 1. okt., verða
þá allir togararnir stöðvaðir til
áramóta, eða hvað.
Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins fluttu því eftirfarandi
tillögu á bæjarstjómarfundi 28.
marz.
Raddir lesenda
____________framhald af síðu 9.
2. Ráðning tækniteiknara var
allt annað mál, og ekki ætlun
þessa blaðs að gera þá ráðningu
að umræðuefni, en vegna þess-
arar greinar þykir vart komist
hjá því.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið aflaði sér, var öll
framkvæmd þessarar ráðningu
ólögleg.
1 fyrsta lagi var aldrei sótt um
heimild bæjarstjórnarinnar til
að búa til þetta starf. í öðru lagi
er bannað að ráða í opinberar
stöður án undangenginnar
auglýsingu, en starfið var aldrei
auglýst laust, eins og vera ber,
samkvæmt lögum. í þriðja lagi
var búið að ráða þennan starfs-
mann af bæjarráði, án heimild-
ar á bæjarráðsfundi 19. júlí, en
kom ekki fyrir bæjarstjórn fyrr
en 14. september.
Á þeim bæjarstjórnarfundi
gagnríndi Bogi Sigurbjörnsson
harðlega alla meðferð þessa
máls, og taldi lágmarkskröfu að
fara að lögum, þótt mikið lægi
við að koma ár sinni fyrir borð.
Nú er viðkomandi starfs-
maður í fæðingarorlofi og mun
kjaranefnd eiga eftir að skera úr
um greiðsluskyldu bæjarstjóðs í
orlofinu, sem eru laun í þrjá
mánuði eða ca kr. 750.000.-
3. Varðandi ráðningu tölvurit-
ara, sem ákveðin var 19. októ-
ber, þá var ekki margt að velja.
húseigenda verður því kr. 6.605,-
Hver skyldi mismunur hjá öllum
húseigendum verða, og hvert eiga
bæjaroúar gð sækja þennan mis-
mun?
Auglýsing um fyrir-
framgreiðslu þinggjalda í
Siglufjarðarkaupstað 1979
Skattgreióendur eru hér með minntir á, að 3.
gjalddagi fyrirframgreiðslu þinggjalda 1979 er
1. apríl n.k.
Sé skattgreiðsla eigi innt af hendi innan
mánaðar frá gjalddaga, ber að greiða dráttar-
vexti, 3% fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði,
sem greiðsla dregst. Vangreiðsla að hluta
veldur því, að skattar gjaldandans 1979 falla í
eindaga 15. næsta mánaðar eftir að álagningu
er lokið.
Bæjarfógetinn á Siglufirði, 26. marz 1979
Elías I. Elíasson
„Bæjarstjórn Siglufjarðar
mótmælir harðlega þeirri
furðulegu ákvörðun sjávarút-
vegsráðherra, að veita 35-40
loðnuskipum leyfi til þorsk-
veiða með netum, en banna
togurum veiðar í allt að 3 mán-
uði, þannig að þorskur megi
ekki vera meiri en 15% af
heildarafla í veiðiferð.
Á Norðurlandi hlýtur þetta
að leiða til stórfellds atvinnu-
leysis, meðal fiskvinnslufólks
og tekjurýrnun fyrir sjómenn,
og viðkomandi sveitarfélög,
enda sennilegt að þetta leiði til
þess, að frystihúsunum verði
lokað um lengri eða skemmri
tíma.
Bæjarstjórn Siglufjarðar
samþykkir því að skora á hátt-
virtan sjávarútvegsráðherra að
hann láti veiðitakmarkanir, er
kunna að vera gerðar á þorsk-
veiðum, ná hlutfallslega jafnt til
allra landshluta, en láta þær
ekki koma niður á verkafólki og
sjómönnum í stórfelldu at-
því ekkert virtist hafa gerst á
árinu 1978 hjá þessum ágætu
nýju stjórnendum, og allt að
fara í hnút, vegna starfsleysis,
en tekið var fram að um laus-
ráðningu væri aðeins að ræða,
og þurfti því ekki samþykki
bæjarstjórnar við.
4. Varla er það ætlun nokkurs
bæjarfulltrúa að reka barna-
dagheimili án forstöðukonu, en
þegar hálfu starfi forstöðukonu
var breytt i heilt starf, hefði átt
að sparast annars staðar hálft á
móti, en því fer víðsfjarri.
Samkvæmt upplýsingum um
reksturinn í janúar, sem blaðið
aflaði sér, má gera ráð fyrir að
bæjarsjóður þurfi að greiða ca.
kr. 35 miljónir með rekstri
heimilisins á árinu 1979.
5. Ráðning innheimtumanns og
bókara er staðreynd, en ekki er
rétt að búið sé að ráða í heimil-
isaðstoðarstarfið, en búið er að
semja reglugerð um það starf,
svo sú ráðning hlýtur að liggja
fyrir.
Að lokum skal upplýst að
einhvers staðar eru til áætlanir
um skipulagsstjórastarf, og
hugmyndir um viðbótarskrif-
stofumann á bæjarskrifstofu,
svo og mun vera fyrirliggjandi
beiðni um viðbótarstarfskraft
(sérfr. þjónustu) á barnadag-
heimilinu.
Lokaorð blaðsins vegna
þessarar upptalningu verða því,
hvar enda þessi ósköp.
vinnuleysi á Siglufirði og öðr-
um sambærilegum stöðum á
Norðurlandi.
Þeir bæjarfulltrúar sem tjáðu
sig um tillöguna töldu sig vera
mjög fylgjandi henni, en þar
sem sumir höfði ekki séð reglu-
gerðina, óskaði forseti sam-
komulags um að vísa tillögunni
til bæjarráðs og flutti svofellda
tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að
vísa framkominni tillögu Boga
Sigurbjömssonar og Skúla
Jónassonar um fiskveiðibann til
bæjarráðs.
Tillagan verði síðan afgreidd
með því að fundargerða-bók
bæjarstjórnar verði borin til
bæjarfulltrúa.
Jóhann Möller
Flutningsmenn tillögunnar
töldu sig geta fallist á þessa
málsmeðferð, ef bætt yrði við
tillöguna „innan viku“ sem
samþykkt var.
Til bæjarstjóra
Getur verið að fjármagn
bæjarsjóðs sé svo til þurrðar
gengið að sorphreinsun verði
að sitja á hakanum, eða er hér
einfaldlega um stjórnleysi að
ræða. Frá mínu húsi hefur sorp
verið hreinsað að meðaltali á 18
til 20 daga fresti, en mér skilst
að reglugerð segi til um að sorp
sé hreinsað vikulega.
Ég vona að þessi orð mín séu
bæjarstjóra og heilbrigðisnefnd
næg hvatning til þess að sjá svo
um að reglugerðinni verði hér
eftir framfylgt.
Húsmóðir við Hverfisgötuna
Til bæjarverkstjóra
Vegna nokkurrar umræðu
hjá bænum um fjölda útivinn-
andi starfsmanna hjá bænum,
þá langar mig til þess að beina
nokkrum spruningum til bæj-
arverkstjóra.
1. Er það rétt að útivinnandi
bæjarstarfsmenn séu á bilinu 20
til 25?
2. Sé svo, við hvað starfa þessir
menn frá k. 7.00-16.00 fimm
daga vikunnar?
3. Er ráðning útivinnandi
starfsmanna metin út frá verk-
efnaþörf og verkefnagetu mið-
að við árstíma?
4. Væri hugsanlegt að komast af
með færri útivinnandi starfs-
menn yfir vetrarmánuðina?
Útsvarsgreiðandi.
Lögtaksúrskurður
í fógetarétti Siglufjarðar, var þann 12. janúar
1979, kveðinn upp svohljóðandi lögtaksúr-
skurður:
„Lögtök til tryggingar ógreiddum útsvörum
og aðstöðugjöldum álögðum í Siglufjarðar-
kaupstað 1978, auk dráttarvaxta og kostnaðar
við lögtökin og eftirfarandi uppboð, ef til kemur,
mega fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
auglýsingar um úrskurð þennan, á kostnað
gjaldenda, en á ábyrgð bæjarsjóðs Siglufjarð-
ar.“
Þetta tilkynnist hér með.
Siglufirði, 15. janúar 1979
Bæjargjaldkerinn
Siglufirði