Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2004, Blaðsíða 29
>*►******* BV Fókus LAUGARDAGUR I.MAl2004 29 i 'í ppÉggliÍP . <[ , ,'j ■■, ‘ $$ ‘ i &æ4SSÉi c,og n/ ’StP&m Míi&U'' wrwPi' i . iMlffísöSSIfSSíS" Styrmir Haukdal .1 ...^' •> ■ Krir!------ eimHismaður á réttargeðdeildinni að Sogni. Hann hefur verið þar í ®í-v : „’í ~ *• '■ / ... , V i‘’ ' „ CýiCSH,,*-* rúmþrjúárog langar mest af öllu að standa á eigin fótum og lifa eðli- !A‘>v Mér hefði aldrei tekist þetta nema meö hjálp Magnúsar og starfsfólksins enda hef aldrei farið eftir reglum samfélagsins fyrr en hér á Sogni," segir Styrmir Haukdal Kristinsson sem hefur verið þar í nokkur ár. Styrmir hefur verið lokaður inni meira eða minna í sex ár. Hann kom að Sogni fyrir þrem árum þegar hann var dæmdur ósakhæf- ur fyrir að skera móður sína á háls. Hann var svo lánsamur að hún lést ekki af áverkunum né hlaut varanlegan skaða af, en ekki munaði miklu. Hann kveðst muna óljóst eftir atvikinu en gerir sér nú ljóst hve sjúkur hann var. „Ég hafði lengi verið í geðveikisástandi áður en þetta gerðist og þakka guði fyrir að ekki fór verr en ég var úrskurðaður ósakhæfur vegna geðklofa." í neyslu frá unga aldri Styrmir er sannfæröur um að honum heföi aldrei tekist að ná sér aftur án þeirrar hjálpar sem hann fékk á Sogni. Haxm hefur verið í neyslu meira eða minna síðan hann var ungur drengur. „Ég get ekki útskýrt hvað gerðist þennan örlagaríka dag en hér á Sogni fékk ég fyrst meðferð vegna sjúkdómsins. Eg býst við að ástand mitt hafi veriö að versna ár frá ári og endaði með þessum skelfilega atburði," segir hann og útskýrir að eftir að hann kom að Sogni sé hann í fyrsta sinn að mynda raunveruleika- tengsl við umheiminn. Styrmir er mjög ánægður á Sogni og líður þar vel. Hann hefur stundað nám og vinnu sem hann hefur mikla ánægju af. „Mér finnst gaman að taka til hendinni úti við en ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Hef mitt herbergi og tölvu en auðvitað hlakka ég til að fara og takast áviðlífið." Dreymir um eðlilegt líf í óvernduðu umnverfí Hann viðurkennir að hann þurfi aðstoð til að byxja með við að fóta sig en það er ýmislegt sem kemur til greina í því sambandi. „Já, þau eru ströng héma en ég man aldrei eftir þau hafi verið ósanngjöm. Oft hef ég orðið reiður og þurft að sitja á mér og hugsa," segir Styrm- ISHi 8U£9tt2iUt*f( ir og útskýrir að alltaf hafi verið einhver ástæða fýrir neitun þeirra og það hafi hann séð þegar betur var að gáð. Dagurinn á Sogni hefst með því að allir vakna í síðasta lagi rétt fyrir níu. Þá er haldinn morgunfundur og síöan er árbítur. Eftir það fer fólk eitthvaö að sýsla eins og að vinna eða fer í viðtöl, lærir eða hvað annað sem liggur fyrir. Hádegisverður er klukkan 12 og eftir það ganga menn til starfa sinna fram að kaffi. Hver hefur sitt herbergi og margir hafa gert þau vistleg með persónulegum munum. Styrmir segist mikið nota tölvima sína og heimiliskötturinn á staðnum, Lára Halla Maack, sefur jafrian á sænginni hans. Hann segist vera vongóður og bjartsýnn á framtíð- ina. „Ég á mér þann draum að geta lifað eðli- legu lífi i óvemduðu umhverfi og það er kannski dálítið bamalegt að segja það en vita- skuld langar mig að eignast íjölskyldu í fram- tíðinni. Mig langar að standa á eigin fótum, vera eðlilegur án vímuefna og lifa samkvæmt því," segir Styrmir með vonarglampa í aug- um. Framhald á næstu síðu j ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★^ ★ Rafmagnsgitar magnari poki, ól- snúra -stillir og auka ★ ★★ Söngkerfi Trommusett frá frá 59.900,- 49.900,- stgr. Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Rafmagnsgítarsett 29.900,- stgr. Klassískir gítarar frá 9.900,- stgr. t 7 X

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.