Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 12
12 LAUCARDACUR 26. ÁGÚST2005 Fréttir DV Morðið á Hverfisgötu um síðustu helgi vakti óhug meðal landsmanna. Líf tveggja ungra manna eyðilagt á örskots- stundu. Eftir sitja tvær fjölskyldur í sorg. Einn er látinn og annar mun dvelja á Litla-Hrauni næsta áratuginn. Klukkan níu, síðastliðinn laugardagsmorgun, sátu tveir ungir menn, Bragi Halldórsson og Sigurður Freyr Kristmundsson, við eldhúsborð í kjallaraíbúð á Hverfisgötu 58. Bragi er nú lát- inn og Sigurður Freyr, sem situr á Litla-Hrauni, hefur játað að hafa myrt hann. Bragi og Sigurður þekktust lítil- lega. Þeir höfðu hist fyrr um nóttina og deilt dáh'tið, en um hvað er ekki vitað. Vitni segja deiluna hafa verið smávægilega og byggða á misskiln- ingi. Bragi ákvað eftir sem áður um morguninn að fara og hitta Sigurð á Hverfisgötu til að gera upp málið. Rétti fram sáttahönd Sigurður Freyr hafði búið á Hverfisgötunni í nokkrar vikur hjá fólki sem hann þekkti, þeim Lindu Kristínu Emudóttur og Einari Val Guðmundssyni. Sigurður hafði ver- ið í mikilli neyslu eiturlyfja síðan hann lauk afplánun refsivistar á Litla-Hrauni um áramótin og fékk af og til húsaskjól hjá þeim Lindu og Einari. Þau vom bæði heima þennan örlagaríka laugardagsmorgun. Vin- ur þeirra, Máni Freysteinsson, var í heimsókn en hann þekkti Sigurð Frey lítillega. Sigurður Freyr var hins vegar sá af þeim á HveiÍBsgöt- unni sem þekkti Braga Halldórsson best. Þeir Bragi og Sigurður ræddu saman í tæpar tíu mínútur. Þeir leystu ágreining sinn og allt virtist vera í góðu lagi á miili þeirra. Þegar Bragi stóð upp til að taka í höndina á Sigurði tók morguninn hins vega óvænta og um leið hræðilega stefnu. Óútreiknanlegur eiturlyfja- sjúklingur Sigurður Freyr neytti þessa nótt mikiis magns róandi lyfja og amfetamíns. Vinir hans segja að þessi lyfjakokteill hafi haft hrikaleg áhrif á hann. Mikið ofsóknaræði greip hann jafnan eftir neyslu þessa eiturblöndu og segja vinir að hann hafi til dæmis á tímabilum haldið því statt og stöðugt fram að rúss- neska mafi'an og bandaríska leyni- þjónustan væm á eftir honum. Ofsóknaræðið leiddi líka oft tii ofbeldisfúilrar hegðunar af hálfu Sigurðar. Hann var óútreiknanleg- ur þegar hann var í vímu. Vinir hans vissu það og sumir þeirra hræddust hann jafnvel. Það var ofsóknaræði Sigurðar Freys sem gerði það að verkum að hann stakk Braga. Þegar Bragi stóð upp frá eldhúsborðinu og rétti Sig- urði hönd sína sem merki um sátta- vilja brást Sigurður við með því að ijúka á fætur, draga fram flökunar- hníf sem hann hafði inná sér og stinga Braga fast í bijóstið. „Siggi var svo paranojd að hann hélt að strákurinn væri að ráðast á hann. Þegar hann var bara að rétta honum höndina," sagði Máni Frey- steinsson, sem varð vitni að morð- inu, í samtali við DV. „...segja vinirað hann hafi til dæmis á tímabilum haldið því statt og stöðugt fram að rússneska mafían og banda- ríska leyniþjónustan væru á eftir honum." Vaknaði ekki aftur Máni lýsti síðustu stundum Braga Halldórssonar á átakanlegan hátt í DV á miðvikudaginn. Hann segist hafa hringt samstimdis í Neyðarlínuna en orðið batteríslaus. „Ég vissi ekki hvort símtalið hafði náð i gegn til Neyðarlinunnar og ætlaði þess vegna að fara sjálfur með strákinn á spítala. Siggi otaði þá að mér hnífnum sem hann hafði notað til að stinga Braga og öskraði á mig að ég væri ekki að fara neitt." Máni segir að Sigurður hafi ver- ið æstur og veifað hnífnum út um allt. „Skyndilega kastaði hann hins vegar frá sér hm'fhum og hjóp út," segir hann. Hann hélt þá á Braga í fangi sér á meðan húsráðandinn, Einar Valur notaði hm'f Sigurðar Freys til að skera niður handklæði og gluggatjöld. „Einar Valur reyndi að binda um sárið. Bragi var alltaf að detta út og ranka við sér aftur. Síðan vaknaði hann ekki aftur. Allt í einu var hann dáinn í fanginu á mér. Án þess að ég gæti nokkuð gert." Lögreglan komst fljótt á sporið Skyndilega snéri Sigurður Freyr aftur inn í íbúðina. „Hann var bú- inn að hlaupa eitthvað í burtu og losa sig við blóðugu fötin," segir Máni. Hann segir að þegar Sigurður Freyr hafi séð Braga blóðugan á gólfinu hafi hann skyndilega byijað að láta eins og hann vissi ekkert hvað hefði gerst. „Hvað er í gangi. Hvað gerðist," segir Máni að Sig- urður Freyr hafi endurtekið í sífellu. Skömmu síðar kom lögregla og slökkvilið á vettvang. Endurlífgun- artilraunir voru reyndar á Braga, en án árángurs. Sigurður Freyr, Máni, Einar Valur og Linda Kristin voru öU handtekin. Lögreglan var ekki lengi að púsla saman atburða- rásinni og átta sig á hver bæri ábyrgð á þessu hörmulega morði. Síðar um daginn var Sigurður úr- skurðaður í tíu daga gæsluvarð- hald, grunaður um morðið á Braga HaUdórssyni. Mána Freysteinssyni og húsráð- endunum Hverfisgötu 58 var hald- ið af lögreglu aUan laugardaginn en sleppt um kvöldið að lokinni skýrslutöku. Tvær fjölskyldur í sorg Fyrst um sinn reyndist lögreglu ómögulegt að yfirheyra Sigurð. Vin- ir hans segja að hann hafi verið búinn að vera eftir þriggja vikna túr. Iiann hafði lítið sem ekkert sof- ið eða borðað á þessum tíma og skóflað þess í stað í sig róandi lyfj- um og amfetamíni. Lögreglan leyfði Sigurði að sofa úr sér og jafna sig fyrstu dagana í gæsluvarðhald- inu. Honum var haldið á Litla- Hrauni og fékk engan að hitta nema veijanda sinn, Svein Andra Sveinsson. Eftir langa og stranga skýrslutöku á miðvikudaginn skrif- aði Sigurður svo undir játningu sína og málið því að mestu upplýst og loldð af hálfu lögreglu. Eftir stendur aðeins sorgin og söknuður- inn. Tvær fjölskyld- ur eru harmi slegn- ar og trúa vart hvað gerðist. Báðar fjölskyldur hafa misst unga drengi úr faðmi sér. Annar lenti í sjálfskaparvíti vímuefnanna. Hinn var myrtur. Fjölskyldurnar báðar hafa misst unga drengi. Algjörar andstæður Sigurður Freyr Kristmundsson reyndi margoft að snúa við blaðinu og hætta í eiturlyfjum. Hann hafði líka til þess ríka ástæðu. Líf hans var að þróast í sömu átt og líf föður hans hafði gert fyrir meira en tutt- ugu árum. Faðir Sigurðar myrti mann árið 1976 og með þeirri vit- neskju hefur Sigurður Freyr lifað alla sína fullorðinsævi. Einn vinur hans segir að hann hafi alltaf óttast að Sigurður mundi hljóta sömu örlög og faðirinn næði hann ekki að brjótast úr hlekkjum eiturlyfjanna. Svo hratt stefndi hann á braut sjálfseyðileggingar. Kannski grun- aði Sigurð þetta sjálfan því hann reyndi oft að hætta í dópinu. í eitt skipti hélt hann sér edrú í meira en ár. Stundaði þá samkomur hjá Krossinum og segja vinir og fjöl- skyldumeðlimir að þá hafi hann sýnt sitt rétta andlit. Þá hafi hann verið góður og ljúfur drengur. Al- gjör andstæða mannsins sem hann breyttist í þegar eiturlyfin tóku aft- ur völdin, mannsins sem tók lrf Braga Halldórssonar á örskots- stundu. Með hnífsstimgu í hjarta- stað. andri@dv.is ,' *. . - r."- 1; r. •• -. - miiÍKI HINS \TNA FUNDUST jf* 800 MCTRA IÍKINU tlKÓPAVOGI | h»ia« faMHMta «m i méUínj TSTt' * 6 s -- DQPIÐ GERÐl m niinn NIQRQINI I Hanna Sigurðardóttir I Fjölskylda hennar er í sorg eftir I að sonurinn framdimorð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.