Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Blaðsíða 29
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 29
Kolaportið
„Ég hefverið grasekkill í
dag. Fór með krökkun-
um og mömmu í Kola-
portið. Hjálpræðisherinn
lék þarogsöngá kaffí-
stofunni viðstöddum til
gleði. Tveir rónar upptendruð-
ust mjög afflutningnum. Ég keypti Yes
plötu, einhvern samtíning aftónleikaupp-
tökum og sólólögum, virkar ekkert sér-
staklega góð. Ég gafKjartani gulan vara-
búning Liverpool sem þarna var til sölu á
tæpan 2000 kall. Það er æfmg hjá honum
á morgun. Hann er að verða læs en það
gerist aðallega með því að hann liggur f
fótboltabókum, m.a. íslenskri knatt-
spyrnu."
Ágúst Borgþór Sverrisson
- agustborgthor.blogspot.com
Niceland
„Kæru íslendingar....
....þið eruð fífl. Þessi
þjóð, þetta land, og
við. Engin þjóð í heim-
inum er eins stolt af
því og við að einfald-
lega vera til. Við erum sí-
fellt að furða okkur á þvi að
landið sem við búum áhafí ekki náð að
drepa okkur i gegnum árin, við erum sí-
fellt að furða okkur á þvi hvað við erum
rlk og sniðug, hæfíleikarík og fjölfróð,
menningarsinnuð og mögnuð. Nútiminn
hefur hinsvegar lent á okkur á 200 km
hraða, viö verðum að eignast allt það
flottasta og dýrasta, og þegar visareikn-
ingurinn feryfír limitið þá bendum við
bara á nágrannaþjóðirnar og segjum„En
þeir eru líka svona"... eins og það afsaki
þetta alltsaman..."
Bragi Páll Sigurðarson
- blog.central.is/favitinn
Októberfest
„Já það var gaman á
Októberfest I gær
enda varla annað
hægt þegar svona
skemmtilegt fólk (Há-
skólalistafólk) kemur
saman og drekkur bjór.
Toppurinn varsvo ósmekklegasta„við-
reynsla‘sem hefur nokkurn tíman verið
reynd við mig:Tilraun 1: Gaur: Hvað heitir
þú? Ég-.Auður. Tilraun 2(10 mínútum
seinna): Gaur: Ég kannast svo geðveikt við
þig... heitiru nokkuð Auður? Tilraun 3 (20
mlnútum seinna): Gaur: Mikið rosalega
ertu með stór brjóst!"
Auður Lilja
- kommunan.is/audur
Auður verður fyrsti kvenkyns ráoherrann
Aþessum degi árið 1970 tókAuður
Auðuns við ráðherraembætti fyrst
kvenna. Hún var dóms- og kirkju-
málaráðherra í rikisstjóm Jóhanns
Hafstein í tæpt ár eða allt þar til
Viðreisnarstjómin féll í kosningunum
1971. Auður fæddist á ísaflrði þann
18. febrúar 1911 og lést 19. október
árið 1999. Faðir hennar var Jón Auð-
unn Jónsson, en hann var einnig al-
þingismaður um tíma.
Auður var mikill brautryðjandi í
réttindabaráttu kvenna. Hún lauk
lögfræðiprófi ífá Háskóla íslands árið
1935, fyrst kvenna. Fimm árum síðar
tók hún við starfi lögfræðings rnæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur og gegndi
því starfi til 1960. Hún var forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur árin 1954
til 1959 og 1959 til 1960. Þann 19. nóv-
ember 1959 varð hún svo fyrstkvenna
til að taka við embætti borgarstjóra
Reykjavíkur, en því embætti gegndi
hún ásamt Geir Hallgrímssyni til 5.
október 1960. Auður var kosin á þing
fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1959 og
sat þar í fimmtán ár.
Eftir að glæstum þingferli lauk sat
hún meðal annars í útvarpsráði í þrjú
ár og sat Allsherjarþing Sameinuðu
Auður Auðuns Tók við embætti ráðherra á
þessum degi árið 1970, fyrst islenskra
kvenna. Hún var einnig fyrsti kvenkyns borg-
arstjórinn i Reykjavik.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Reykingar barna í Ingunnarsknla
Móöii nemanda í Ingunnarskóla
í Grafaiholti hringdi:
Ég get eklci orða bundist yfir
áhyggjum minum af því hversu
margir nemendur í sjöunda og átt-
unda bekk Ingunnarskóla eru byrj-
aðir að reykja. Dóttir mín er í bekk
þar sem allir sjöundu- og áttundu-
bekkingar eru saman í tímum, sam-
tals rúmlega 40 nemendur, og af
þeim eru, samkvæmt dóttur minni,
minnst 12 krakkar byrjaðir að
reykja.
Sjoppan sem er við hliðina á
skólanum, Grillhöllin, hefur selt ein-
hverjum af þessum krökkum sígar-
ettur þrátt fyrir að það sé bannað
samkvæmt lögum að selja ungling-
um undir 18 ára tóbak.
Dóttir mín er sem betur fer ekki
byrjuð að fikta við reykingar og við
hjónin gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að uppfræða hana og
reyna að forða henni frá þessum
ósóma. Þess vegna hringdi ég á
skrifstofu skólastjóra Ingunnarskóla
og bað um að fá að ræða þetta við
Ingunnarskóli í Grafarholti Þykir fyrirmyndarskóli nema varðandi reykingar.
skólastjórann Guðlaugu Sturludótt-
ur en eftir þrjú símtöl gafst ég upp
því hún var aldrei við. Eg skildi eftir
skilaboð til hennar en hún hefur
ekki sýnt þessu neinn áhuga.
Þetta er fyrirmyndarskóli, mjög
flottur, og er ég mjög ánægð með
kennsluna sem dóttir mín fær þar og
kannski þess vegna er ég hissa á
áhugaleysi skólastjómarinnar að
sinna ekki þessu máli. Hvet ég þess
vegna alla foreldra til að vera vak-
andi gagnvart þvi hvort börn þeirra
eru að fikta við reykingar og jafn-
. .<4wBo»vWa
I
Bömin reykja Móðir nemanda hvetur
skólastjórann til að bregðast við reykingum
nemenda.
ffamt hvet ég skólastjórann til að
gera eitthvað í málinu, þetta er að
mínu mati mjög alvarlegt mál.
Vond mál í Menntaskólanum á ísafirði
Menn taskólakennari I Reykjavík
skrifar.
Ég get nú ekki lengur orða bundist.
Hvað ætíar mitt stéttarfélag, Kennara-
samband Islands, lengi að halda áffam
þeim gjömingi sem raun ber vitni
varðandi mál kennara
Menntaskólans á ísa-
firði? Ég hef fylgst með
f^máli Ingibjargar Inga-
Jdóttur enskukennara
"gegn Ólínu Þorvarðar-
í dóttur skólameistara.
Ólína Þorvarðar-
dóttir Mennta-
skólakennari I
Reykjavík tekur upp
hanskann fyrirhana.
Satt að setja er ég furðu lostinn yfir
málefnafátækt formanns félags okkar í
því að verja gjörðir Ingibjargar. Nýj-
asta dæmi þess er þegar hann virðist
Lesendur
ekki sætta sig við niðurstöður mennta-
málaráðuneytisins eftir yfirferð á
enskuprófúm Ingibjargar, ef marka
má ffétt á vefnum bb.is á fsafirði.
Þar er einnig gefið í skyn að skóla-
meistari hafi „leldð" trúnaðarupplýs-
ingum þrátt fyrir að blaðamaður bb.is
segi annað. Ef rétt er að Ingibjörg hafi
haft rangt við í umræddum prófum og
það ekki bara einu sinni - heldur
tvisvar, er það heldur bágborinn mál-
staður að verja fyrir forystu Kennara-
sambandsins. Þá má spyija sig hvort
það sé réttíætanlegt að félagsgjöld
okkar kennara séu notuð til málarekst-
urs af þessu tagi, því ég tel líklegt að
lögfræðikostnaður Ingibjargar sé
greiddur af félaginu. Ég hálfskammast
mín fyrir að vera fr amhaldsskólakenn-
ari og þurfa að verja þessa vitleysu
þama fyrir vestan. Það er allavega lág-
markskrafa að talsmenn okkar fari
með rétt mál, því ef marka má umfjöll-
un á bb.is um þetta mál, virðist for-
maður Kennarasambandsins fara
með rangt mál ítrekað. Það er ekki
vænlegt til að bæta ímynd okkar kenn-
ara. Þótt sjálfúr sé ég kennari vil ég
ekki að gengið sé yfir öll velsæmis-
mörk í því að veija vondan málstað.
Rétt skal vera rétt.
í dag
árið 1972 sletti Helgi
Hóseasson skyri á
alþingismenn og fleiri
sem voru á leið frá Dóm-
kirkjunni í Alþingishús-
ið til þingsetningar.
þjóðanna árið 1967. Hún var einnig
formaður sendinefhdar íslands á
Kvennaráðstefriu Sameinuðu þjóð-
anna í Mexíkóborg árið 1975.
Auður var atkvæðamikil stjór-
málakona sem hafði raunveruleg
áhrif á íslenskt samfélag. Hún mddi
braut jafnréttis með framgöngu sinni
og verður ævinlega minnst fyrir
glæsilega og skörulega ffamkomu.
Ingveldur
Sigurðardóttir
skrifar um tónfístar-
og ráðstefnuhús.
Þroskaþjálfinn segir
Sparið flott-
ræfilsháttinn
Það em meiri ósköpin hvað við
verðum að fara ffam úr okkur á öU-
um sviðum. Nú er það tónlistarhúsið
og allt sem því viðkemur sem á að
troða einhvers staðar þar sem ekkert
pláss er fyrir það nema með því að
rífa fullt af húsum með æmum til-
kostnaði. Ég sé á hveijum degi land-
svæði hér í borginni sitt hvom megin
við Elliðaárdalinn þar sem er nóg
landrými og margir fallegir staðir
sem gætu vel verið ákjósanlegir. Mér
er lfka óskiljanlegt af hveiju þarf að
hafa stórt hótel á sama stað og sé
heldur ekki að það fari endi-
lega saman. Þó svo
aðnotaeigihús- -
ið fyrir ráðstefii- a r\ \] J"' 1
ur, þáerekki ' l"v'
endileganauð-
synlegt að hafa
hótel áfast við. Ég
er farin að Jiræð-
ast þessi óskapar
áform um hótel-
byggingar. Og svo
yrði þetta hús í eigu ríkisins. Ef það
ætti að vera eins og Þjóðleikhúsið,
þá er kominn stór baggi á ríldsspen-
ana enn einu sinni sem myndi skapa
þá kvöð að það yrði alltaf að hlaupa
undir bagga ef illa gengi. Það er að
vísu gott að vera stórhuga en ekki
endilega á kostnað okkar skattborg-
ara. Við getum ekki tekið meira á
okkur. Svo skapast smáríki í ríkinu
sem ná öllu út sem þeir vilja, eins og
Flugleiðir sem eiga orðið nánast allar
sérleyfisleiðir landsins og em þess
vegna að verða einokarar. Þeir hafa
verið rflásstyrktir til þess. Það er ekki
lítill rfldsstyrkur að fá öll leyfi rétt
upp í hendumar. Sama er uppi á
teningnum með tónlistar- og ráð-
stefnumiðstöð.
Flottræfilsháttur
Ingveldur óttast að
tónlistarhúsið verði
enn einn bagginn
á ríkisspenann.
Vill jafnræði með foreldrum
„Það er gaman að sjá að stjórn-
völd fara eftir tillögum félagsins,"
segir Garðar Baldvinsson, for-
maður Félags ábyrgra feðra.
Dómsmálaráðherra mun leggja
fram frumvarp á Alþingi á næst-
unni um breytingu á lögum um
forsjá í kjölfar skilnaðar þar sem
leitast verður við að rétta stöðu
foreldra sem skilja.
„Það mun taka að einhverju
leyti tillit til okkar tillagna, eri
aðallega eftir tillögum forsjár-
nefndar sem var skipuð af dóms-
málaráðherra. Það er alltof mikið
um að það halli verulega á annað
foreldrið þótt um sameiginlega
forsjá sé samið. Það er aðallega
vegna lagalegrar stöðu þess for-
eldris sem hefur lögheimili
barnsins, því það foreldri fær
barna- og húsaleigubæturn-
ar á meðan hitt foreldrið
borgar meðlag, jafnvel þótt
„Það er alltof mikið
um að það halli
verulega á annað
foreldrið."
það sé með barnið 30-50% af tím-
anum. Auðvitað þarf það foreldri
samt sem áður að fæða og hýsa
barnið þann tíma, en lögin taka
ekki tillit til þess.‘‘
Garðar segir að þjóðfélagið
hafi tekið töluverðum breyting-
um í kjölfar stofnunar félagsins
árið 1997. „Við höfum verið að
fetta fingur út í starfsemi stjórn-
valda eins og sýslumannsemb-
ættin og dómsmálaráðuneytið og
fundið fyrir gerbreytingu í vinnu-
brögðum þessara stofnana. Það
er hið besta mál, en betur má ef
duga skal. Við viljum að ágrein-
ingsmál um forsjá verði leyst á
áhrifaríkari og hraðvirkari máta
en nú er gert. Það eru dæmi um
að svona mál hafi tekið allt að
þrjú og hálft ár í kerfinu og feður
jafnvel ekki séð börnin í þann
tíma. Við vonum að skýrsla sem
Hannes Hlífar gerði um daginn
veki menn líka til umhugsunar
um slæma stöðu einstæðra for-
eldra sem lenda í ágreiningi við
fyrrverandi maka.‘‘
Vestur-lslendinga núna í nóvember.
»