Fylkir - 12.05.1967, Blaðsíða 1
19. árgangur.
Vestmannaeyjum, 12. maí 1967.
16. tölublað.
HÚN KEPPIR í SUMAR
í fyrra gengust Frjálsíþróttasamband
íslands og barnablaðið Æskan fyrir í-
þróttakeppni meðal barna. Var um svo-
nefnda þríþraut að ræða, og var keppt
í þremur greinum, 60 m. hlaupi, há-
stökki og knattkasti. Voru það aðal-
lega íþrótakennarar skólanna, sem sáu
um framkvæmd keppninnar, er fram
fór um land allt. Að henni lokinni var
bezti árangur í stigatolu sendur til
Kolbrun Kolbeinfdóttir frjálsíþróttasambandsins, en ákveðið
hafði verið, að 12 hæstu einstaklingar
að stigatölu, sex stúlkur og sex drengir myndu síðan keppa til úr-
slita nú í sumar. Einn þátttakandi frá Vestmannaeyjum náði þeim
góða árangri að vera meðal hinna sex beztu í úrslitum, en það er
Kolbrún Kolbeinsdóttir, dóttir Kolbeins Sigurjónssonar og Sigríð-
ar Sigurðardóttur frá Vatnsdal. Hún varð fjórða stigahæsta í sín-
um aldursflokki (stúlkur fæddar 1954), og náði mjög góðum ár-
angri í greinunum, hljóp 60 metrana á 9,4 sek, stökk yfir 1,31 m í
hástökki og varpaði knettinum 32 m. Úr þessu samanlögðu hlaut
hún 56,7 stig, en sú stigahæsta, sem er frá Reykjavík, hlaut 63,3
stig. Kolbrún hefur æft þessar greinar síðan hún keppti í undan-
úrslitunum og hefur náð mun betri árangri undanfarið, en hún
náði í haust, svo vel má vænta þess, að henni eigi eftir að ganga
vel í keppninni sjálfri.
Ráðgert er, að hinir stigahæstu leiði saman hesta sína nú í byrj-
un júní, og er í ráði að fá Laugardalsvöllinn í Reykjavík til afnota
fyrir keppnina, en er þó ekki að fullu afráðið ennþá. Verðlaun
verða veitt tveimur sigurvegurum í mótinu, dreng og stúlku, og er
það flugfar til Grænlands, sem Flugfélag íslands veitir þeim, sem
bera sigur af hólmi í viðureigninni.
Við óskum Kolbrúnu alls hins bezta í þessari keppni, og vonum
að hún verði frumkvöðull að því að hefja á ný á loft þá fornu
frægð, sem Vestmannaeyingar eitt sinn höfðu í frjálsum íþróttum,
en hafa nú legið niðri um skeið.
Happdnetti Sjdl|stsðis|loklisins
Nú ER AÐEINS TÆPUR HÁLFUR
MÁNUÐUR þar t-il dregið verður í hinu
glæsilega landshappdrætti Sjólfstæðisflokks
ins.
í boði eru 5 bílar, en miðinn kostar að'
eins 100 krónur.
Þeir, sem hafa fengið senda miða, eru
vinsamlega beðnir að gera skil sem fyrst á
skrifstofu flokksins í Samkomuhúsinu.
Sigfús J. Johnsen. Jóhann S. Hlíðar
Mannaskipti á framboðslisfa
Sjálfsfæðisflokksins.
Sigfús J. Johnsen, framkvæmdastjóri, hefur samkvæmt neðan-
skráðri greinargerð óskað eftir að draga sig til baka af framboðs-
lista flokksins við í hönd farandi kosningar, af ástæðum, sem þar
eru tilgreindar.
Hefur séra Jóhann S. Hlíðar fallizt á aíð taka sæti á listanum
í hans stað og fer greinargerð Sigfúsar hér á eftir. En hún hljóðar
svo:
„Að gefnu tilefni, með því að ég hef verið borinn sökum í
sambandi við sjótjón á m/b Sæfaxa NK 102, sem ég veit mig sak-
lausan af, en ekki mun gefast tími tii að afsanna fyrir í hönd far-
andi kosningar, hef ég tekið þá ákvörðun að fara fram á, að nafn
mitt verði nú tekið út af framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi, þar sem ég vil ekki verða þess valdandi, að mál-
um þessum verði blandað inn í flokksmálin og flokksbaráttuna,
ef það yrði flokknum að tjóni í kosningunum.
í framhaldi af þessari ákvörðun minni hefur Fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfélaganna í samráði við mig, farið þess á leit við séra Jóhann
Hliðar, að hann taki sæti mitt á framboðslistanum og hann orðið
við þeirri beiðni.
í trausti þess, að stuðningsmenn mínir og flokksins skilji þessa
afstöðu mína þá heiti ég á þá að veita flokknum heilshugar stuðn-
ing í komandi kosningum.
Vestmannaeyjum, 9. maí 1967.
SIGFÚS J. JÖHNSEN.