blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 1
256. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
20. desember 2006
■ MENNING
Svava Bernharðsdóttir hefur
helgað sig víólunni nánast allan
sinn feril og fyrir nokkru sendi
hún frá sér geislaplötu | síða 38
■ FÓLK
Guðný Helgadóttir hefur
stundað Tai Chi í 15 ár og hefur
einnig verið að kenna það, m.a.
eldri borgurum | sIða36
FRJÁLST, ÓHÁÐ &
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, skrifar til Noregs:
Bréf frá leyniþjónustunni
■ Sent til tveggja norskra yfirmanna ■ Afrit til ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins
Eftir Gunnhildi ðrnu Gunnarsdóttur gag@bladid.net
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli, Jóhann R.
Benediktsson, sendi bréf til norsku leyniþjónust-
unnar og varnarmálaráðuneytisins í Noregi í nafni
íslensku leyniþjónustunnar.
Blaðið hefur afrit af bréfum Jóhanns til Torgeirs
Hagen, undirhershöfðingja, hjá norsku leyniþjón-
ustunni (NoDiss) og Sverre Diesen, hjá varnarmála-
ráðuneyti Noregs, undir höndum. Þar þakkar Jó-
hann þeim fyrir námskeið sem norsku stofnanirnar
stýrðu 2. til 13. október fyrir starfsmenn Jóhanns.
Hann ritar undir sem framkvæmdastjóri IIS, ís-
lensku leyniþjónustunnar (e. Icelandic Intelligence
Service, IIS-NATO).
„Þetta er einfaldlega vinnutitill sem við notum
á erlendum vettvangi," segir hann. Titlarnir ein-
faldi samstarfið við erlendar greiningardeildir.
„Þetta er ekki leyniþjónusta. Við erum ekki að
brjóta lög.“
Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, kannast
ekki við skammstöfunina IIS og veit ekki fyrir
hvað hún stendur. „Sýslumaðurinn á Keflavíkur-
flugvelli heyrir undir utanríkisráðuneytið."
Jóhann sendi afrit af bréfunum til norska
varnarmálaskólans, Forsvarets Skolesenter, og
Grétars Más Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra
utanríkisráðuneytisins.
Sjá einnig síðu 4
Á vakt í fjöruborðinu Danskur varðskipsmaður lét lifið þegar hann reyndi ásamt félögum sínum að koma skipverjum á rússnesku flutningaskipi til bjargar. Tólf menn voru um borð i
flutningaskipinu og björguðu flugmenn á þyrlu Landhelgisgæslunnar þeim öllum í land. Sjá einnig síðu 16
Nældu þér í alvöru
bónus fyrir jólin!
Potturinn stefnir í 50 milljónir.
Ofurpotturinn stefnir í 30 milljónir
og bónusvinningurinn í 22 milljónir.
ORÐLAUS
» síða 52
Jólapróf um stjörnur
Prófaðu þekkingu þína á
dramatískum lífsháttum
stjarnanna í Hollywood
sem virðast alltaf hafa
tíma til að gera eitthvað
misgáfulegt.
UEÐUR
Hvasst
Suðlæg átt, 13 til 20 m/s,
hvassast vestanlands. Tals-
verð rigning eða súld, en
úrkomulítið norðaustantil.
Hiti 5 til 12 stig, hlýjast um
landið austanvert.
» siða 2
Sérblað um
jólin fylgir
með Blaðinu
í dag
íp P&****?”
K'uuauiuma
LUTTU
Alltaf á miðvikttdöyum!
lotto.is
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum og -pökkum innanlands!
PÓSTURINN
www.postur.is